Fréttablaðið - 06.09.2013, Síða 54
6. september 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 34
FÖSTUDAGURHVAÐ? HVENÆR? HVAR?
„Maður er svolítið í pakkanum,
eins og sagt er. Það er svo mikið
að gera þessa dagana að ég veit
eiginlega ekki hvenær ég get hall-
að höfði mínu,“ segir tónlistar-
konan Védís Hervör Árnadóttir,
sem kemur fram á bryggjuballi á
Ljósanótt, fjölskylduhátíð Reykja-
nesbæjar, í kvöld klukkan 20.
Aðrir sem koma fram á útitón-
leikunum í kvöld eru Sigríður
Thorlacius ásamt Guðmundi
Óskari Guðmundssyni, Valgeir
Guðjónsson og þeir félagar KK og
Magnús Eiríksson. Gleðin heldur
áfram annað kvöld í Reykjanesbæ
þegar Rás 2 sendir beint út frá
útitónleikum þar sem koma fram
meðal annars dr. Gunni og vinir
hans, Ásgeir Trausti, hljómsveitin
Valdimar og Ojba Rasta.
Á bryggjuballinu í kvöld kemur
Védís Hervör fram með hljóm-
sveit sinni sem skipuð er þeim
Ásgeiri Ásgeirssyni gítarleikara,
Róbert Þórhallssyni bassaleik-
ara, Þorvaldi Þór Þorvaldssyni
trommara og Þórhalli Berg-
mann hljómborðsleikara. „Svo
fæ ég líka tvær drottningar til
að syngja bakraddir hjá mér, þær
Láru Rúnars dóttur og Hafdísi
Huld. Ég fer bara beint í elítuna
og vel aðeins það besta,“ segir
Védís Hervör, en tónleikarnir í
kvöld eru þeir fyrstu stóru sem
hún heldur með hljómsveitinni
eftir að hún sendi frá sér lagið
White Picket Fence í vor, en það
hefur heyrst töluvert á öldum ljós-
vakans í sumar.
Þær Lára og Hafdís Huld héldu
einmitt í víking ásamt Védísi Her-
vöru og Ragnheiði Gröndal í síð-
asta mánuði og héldu þær saman
tónleika á Vestfjörðum og Norður-
landi í tengslum við hið nýstofn-
aða KÍTÓN, félag kvenna í tónlist,
sem þær veita forstöðu. Félagið
hyggst standa vörð um hags-
muni tónlistarkvenna og grasrót
ungra tónlistarstúlkna og segir
Védís að önnur ferð um Suður-
land og Austfirði sé á döfinni
strax í haust. „Vonandi verða þá
fleiri konur með okkur, en félags-
starfið fer vel af stað og meðlimir
eru þegar orðnir yfir tvö hundruð
talsins. Þetta er nýtilkomið og við
erum að reka okkur á ýmislegt og
læra mikið, en þetta er ótrúlega
gaman. Svo erum við líka allar
með lítil börn og ég sjálf með tvo
gutta, svo það er nóg að gera,“
segir Védís Hervör. Auk þess að
sinna tónlistinni bregður hún sér í
ýmis hlutverk við undirbúning og
vinnslu námsefnisins Lærum og
leikum með hljóðin ásamt móður
sinni og fleirum.
Þessa dagana er tónlistarkonan
að taka upp nýtt efni á sína þriðju
breiðskífu ásamt hljómsveitinni,
en útgáfudagur hefur ekki verið
ákveðinn. Plötuna vinnur hún í
Geimsteini, upptökuveri Rúnars
Júlíussonar heitins, og lætur vel
af vistinni þar. „Það er rosalega
góður andi í Geimsteini og má
segja að andi Rúnars svífi yfir
vötnum. Manni líður nánast eins
og heima hjá sér í stúdíóinu og
þannig á það að vera.“
kjartan@frettabladid.is
Með nýtt band
á bryggjuballi í kvöld
Védís Hervör Árnadóttir kemur fram á útitónleikum á Ljósanótt, fj ölskylduhátíð
Reykjanesbæjar, í kvöld. Þessa dagana vinnur hún að sinni þriðju breiðskífu.
Það er svo mikið að
gera þessa dagana að ég
veit eiginlega ekki
hvenær ég get hallað
höfði mínu.
Védís Hervör Árnadóttir söngkona
Hljómsveitin Dúndurfréttir spilar meistara-
stykkið Dark Side of the Moon eftir hljómsveitina
Pink Floyd í Eldborgarsal Hörpu í kvöld. Dúndur-
fréttamenn héldu tvenna tónleika í Hörpu í vor
þar sem þeir spiluðu plötuna í heild sinni ásamt
öðrum perlum Pink Floyd og seldist upp á þá báða.
Einnig spiluðu þeir í Hofi á Akureyri. Samanlagt
hafa um 3.400 manns sótt tónleikana hér á landi.
Fjörutíu ár eru liðin síðan Dark Side of the
Moon kom út og hefur platan selst í yfir fimm-
tíu milljónum eintaka. Platan á heimsmetið í veru
á bandaríska Billboard-vinsældarlistanum þar
sem hún dvaldi í samfleytt 741 viku eða meira en
fjórtán ár. Í rólegri viku seljast á milli átta til níu
þúsund eintök af plötunni á viku, bara í Banda-
ríkjunum.
Enn eru til miðar á tónleikana í kvöld og fást
þeir á Midi.is.
Feta í fótspor Pink Floyd
Hljómsveitin Dúndurfréttir spilar Dark Side of the Moon eft ir Pink Floyd í kvöld.
DÚNDURFRÉTTIR Hljómsveitin Dúndurfréttir spilar plötuna Dark Side of the Moon í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Opnanir
15.00 Sýningin Gott báðum megin
opnar í dag í Kubbnum, sýningarsal
myndlistardeildar Listaháskólans að
Laugarnesvegi 91. Sýnendur eru nem-
endur LHÍ úr ýmsum deildum sem eiga
það sameiginlegt að hafa dvalið í skipti-
námi eða starfsnámi á síðustu önn.
Verkin eru innblásin af þeirri reynslu og
unnin í ýmsa miðla. Sýningin stendur
til 13. september. Aðgangur er ókeypis
og allir velkomnir.
Umræður
12.10 Listamannaspjall í tengslum
við sýningu Spessa, Nafnlaus hestur,
fer fram í hádeginu í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur. Spessi mun þar, ásamt Ein-
ari Kárasyni rithöfundi og Jóni Proppé,
tala um tilurð sýningarinnar. Sýning
Spessa stendur yfir til 15. september.
Málþing
12.30 Hádegisfyrirlestur tónlistardeildar
Listaháskólans fer fram í dag. Ig Hen-
neman og Ab Baars munu fjalla um verk
sín og flytja brot af frumsömdu efni úr
efnisskrá sinni Haustlög. Fyrirlesturinn fer
fram í Sölvhóli, Sölvhólsgötu 13. Aðgangur
er ókeypis og allir eru velkomnir.
Tónlist
12.00 Tríóið Kandís flytur gamlar
dægurperlur í Háteigskirkju. Efnisskráin
inniheldur dúetta, tríó og einsöngslög.
Flytjendur eru Særún Harðardóttir
sópran, Auður Guðjohnsen mezzo-
sópran og Lilja Eggertsdóttir söngur og
píanó. Tónleikarnir standa til 12.30 og
er miðaverð 1.000 krónur.
21.30 Ragnheiður Gröndal og Ice-
landic Folk Ensemble koma fram á
Heimstónlistarklúbbi Café Haiti. Flutt
verða íslensk þjóðlög í nýstárlegum
útsetningum. Aðgangseyrir er 1.500
krónur.
23.00 Sváfnir Sigurðarson og félagar
leika og syngja á Obladí oblada við
Frakkastíg 8.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
6. SEPTEMBER
ÖNNUM KAFIN
Védís Hervör ferð-
aðist um Vestfirði
og Norðurland
ásamt Ragnheiði
Gröndal, Hafdísi
Huld og Láru
Rúnarsdóttur í
lok ágúst. Þær
tvær síðastnefndu
syngja bakraddir á
tónleikum Védísar
á Ljósanótt í kvöld.
Ragnheiður Gröndal
hefur verið virk í ís-
lensku tónlistarlífi
um árabil og sent frá
sér fjórar sólóplötur;
Ragnheiður Gröndal
árið 2003, Vetrarljóð
árið 2004, After the
Rain árið 2005 og Þjóð-
lög árið 2006. Hún kom
einnig fram á Hróars-
kelduhátíðinni í Dan-
mörku árið 2003.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Viðskiptatækifæri
Áhugasamir aðilar hafi samband við Guðna Halldórsson
sími 414 1200, gudni@kontakt.is
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
Adventure
Car Rental
Til sölu er vinsæl bílaleiga í fullum rekstri með 25 vel búna
jeppa í útleigu. Góð nýting og miklar bókanir framundan.
Fullbúið verkstæði, varahlutir, tvö lén, tvær heimasíður
og fullkomið bókunarkerfi fylgir með í kaupunum.
H
a
u
ku
r
0
9
.1
3