Fréttablaðið - 06.09.2013, Side 60
6. september 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 40
Miðasala fer fram á Miði.is, Harpa.is, í miðasölu Hörpu og í síma 528-5050.
EINLEIKIN GAMANSEMI Í HÖRPU
KVÖLDSTUND MEÐ LADDA Í EIGIN PERSÓNU
Sýningar
hefjast aft
ur
7. septem
ber!
„Sprenghlægilegsýning fyrir
allan aldur!“- Sirrý, Rás 2
„Þessi vinnusmiðja er búin að
vera í gangi í nokkur ár og ég tek
nú við keflinu af Marteini Þórs-
syni leikstjóra,“ segir leik stjórinn
Árni Ásgeirsson, sem stýrir
vinnusmiðju á vegum Alþjóðlegu
kvikmyndahátíðarinnar í Reykja-
vík, Riff. Hátíðin fer fram dagana
26. september til 6. október.
Smiðjan stendur yfir í fimm
daga og fá þátttakendur hennar
tækifæri til þess að hitta þá leik-
stjóra og framleiðendur er sækja
Riff í ár.
„Vinnusmiðjan er ætluð ungu
kvikmyndagerðarfólki alls staðar
að úr heiminum. Það kemur til
okkar og sækir alls kyns nám-
skeið og fyrirlestra með starfandi
kvikmyndagerðarmönnum, leik-
stjórum, handritshöfundum og
framleiðendum. Þetta er kjörið
tækifæri fyrir þetta unga fólk að
reyna að mjólka upplýsingar úr
fagmönnunum.“
Annað markmið vinnusmiðj-
unnar er að aðstoða þátttak endur
hennar við að slípa til hand-
ritin að þeirra fyrstu kvikmynd
í fullri lengd. „Flestir þátttak-
endur smiðjunnar eru með hug-
mynd að sinni fyrstu kvikmynd
í fullri lengd og ráðgjafar okkar
munu aðstoða þá við að slípa hug-
myndina og kjarna hana. Unga
fólkið mun svo „pitcha“ hugmynd
sinni fyrir dómnefnd sem mun
að lokum veita verðlaun fyrir
áhugaverðustu söguna,“ út skýrir
Árni. „Svona smiðjur eru einnig
góð leið fyrir ungt fólk innan
bransans til að kynnast og „net-
work-a“, eins og maður kallar það
á ensku.“
Aðspurður segist Árni ekki
geta látið neitt uppi um hvaða
leikstjórar munu taka þátt í
smiðjunni að svo stöddu. „Það er
góð ástæða fyrir því að nöfnunum
er haldið leyndum, en ég get lofað
því að fólk verður ekki fyrir von-
brigðum.“
Enn er opið fyrir skráningu í
vinnusmiðjuna á vefsíðu Riff og
kostar þátttaka um fjörutíu þús-
und krónur. sara@frettabladid.is
Tekinn við kefl inu
Árni Ásgeirsson leikstjóri stýrir vinnusmiðju á vegum Alþjóðlegu kvikmynda-
hátíðarinnar í Reykjavík. Smiðjan er ætluð ungu kvikmyndagerðarfólki.
TEKINN VIÐ Árni Ásgeirsson stýrir vinnusmiðju á vegum Riff. Smiðjan er ætluð ungu kvikmyndagerðarfólki og enn er opið fyrir
skráningu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Lagasmiðurinn og kjaftaskurinn
Noel Gallagher úr hljóm sveitinni
Oasis segist hafa áhuga á að
starfa með Damon Albarn, söngv-
ara hljómsveitarinnar Blur, sam-
kvæmt heimildarmanni The Sun.
Oasis og Blur voru í mikilli vin-
sældakeppni á sínum tíma og blés
ansi köldu þeirra á milli á þeim
tíma. Það yrðu eflaust margir
hrifnir ef Gallagher og Albarn
stilltu sína strengi saman.
Hljómsveitin Oasis er hætt vegna
ágreinings bræðranna Liams og
Noels Gallagher. Blur er hins vegar
enn starfandi. Samkvæmt heim-
ildum The Sun tjáði Noel Gallagher
sig um það að Oasis ætlaði ekki að
koma fram á Glastonbury-hátíðinni
2014 og að sveitin myndi ekki spila
á næstunni.
Noel Gallagher hefur
áhuga á samstarfi
Noel Gallagher úr Oasis hefur áhuga á að vinna með
Damon Albarn, söngvara Blur.
HEFUR ÁHUGA Á SAMSTARFI Noel
Gallagher hefur áhuga á að vinna með
Damon Albarn.
Söngleikurinn Mary Poppins fer
aftur á svið Borgarleikhússins í
dag. Alls eru fimmtíu manns á
sviðinu í Mary Poppins og mikill
fjöldi á bak við tjöldin.
Tónlistin úr söngleiknum er nú
komin út á geisladisk. Tónlistar-
stjóri er Agnar Már Magnús-
son en hann leiðir ellefu manna
hljómsveit sem spilar í sýning-
unni. Bergur Þór Ingólfsson leik-
stýrir verkinu og Gísli Rúnar Jóns-
son annaðist þýðingu á lausu og
bundnu máli.
Leikmyndahönnuður er Petr
Hloušek og María Ólafsdóttir
hannar búninga. Danshöfundur
sýningarinnar er einn vinsælasti
danshöfundur Evrópu, Lee Proud,
og Íslenski dansflokkurinn tekur
þátt í sýningunni. Jóhanna Vig-
dís Arnardóttir og Guðjón Davíð
Karlsson eru í hlutverkum Mary
Poppins og sótarans Berts. - ósk
Poppins snýr aft ur
Viðamesta sýning Borgarleikhússins til þessa.
FRÁ ÆFINGU MARY POPPINS Hér má sjá dansarann Leif Eiríksson og leikarana
Guðjón Davíð Karlsson og Jóhönnu Vigdísi Arnardóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Tískuvikan í New York hófst
formlega með verðlaunahátíðinni
Style Awards. Kynnir hátíðar-
innar var Nicole Richie. Verðlaun
voru veitt í nokkrum flokkum og
kom það sjálfsagt fáum á óvart
að stjörnustílistinn Rachel Zoe
var valin best klædda konan árið
2012. Zoe er eftirsóttasti stílist-
inn í Hollywood en fastakúnnar
hennar eru stjörnur á borð við
Jennifer Garner, Anne Hathaway,
Cameron Diaz, og Demi Moore.
Zoe á von á sínu öðru barni á
næsta ári en fyrir á hún soninn
Skyler sem er tveggja ára.
Best klædda
konan 2012
BEST KLÆDD Stjörnustílistinn Rachel
Zoe var valin best klædda konan á Style
Awards. NORDICPHOTOS/GETTY
➜ Þátttakendur eru valdir
inn í vinnustofuna og því ekki
víst að allir sem sækja um fái
pláss. Umsækjendur þurfa að
búa yfir reynslu og helst vera
með hugmynd að mynd í fullri
lengd, þótt slíkt sé ekki nauð-
synlegt.
Hinn 76 ára gamli stór-
leikari Jack Nicholson
er sagður hafa lagt leik-
listina á hilluna. Ef marka
má heimildir vefsíðunnar
Radaronline er minnis-
leysi talið ástæða þess að
Jack er hættur að leika.
Jack hefur hægt og rólega
dregið sig í hlé frá leiklist-
inni og hefur ekkert sést
á hvíta tjaldinu síðan árið 2010,
þegar hann lék í kvikmyndinni
How Do You Know sem fékk mis-
góða dóma. „Hann mun
samt sitja á hliðarlínunni
á heimaleikjum Los Ange-
les Lakers,“ sagði heim-
ildarmaður Radaronline
en Nicholson er dyggur
stuðningsmaður þeirra í
NBA-deildinni og kryddar
oft tilveruna á leikjum.
Nicholson hefur unnið
þrenn Óskarsverðlaun
á ferli sínum og verður hans án
nokkurs vafa sárt saknað í kvik-
myndaheiminum.
Hættur í leiklist
Leikarinn Jack Nicholson leggur leiklistina á hilluna.
JACK NICHOLSON