Fréttablaðið - 06.09.2013, Síða 62
6. september 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 42
BAKÞANKAR
Kolbeins Tuma
Daðasonar
Við sigruðum þá… næstum því
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir kollegum sínum frá Sviss í undan-
keppni heimsmeistaramótsins í Bern í
kvöld. Sem fyrr mun stór hluti þjóðarinnar
setjast við skjáinn með litlar opinberar
væntingar en hjartað fullt af draumum.
STÓRÞJÓÐIR hafa sótt Ísland heim í
keppnisleikjum og yfirgefið klakann með
skottið á milli lappanna. A-Þýskaland,
Spánn, Rússland og Tékkland hafa farið
tómhent upp í flugvél, auk þess sem ekki
ómerkari þjóðir en Frakkar og Þjóðverjar
hafa grátið töpuð stig í Laugardal.
VIÐ sigruðum þá næstum því“ er lína úr
skemmtilegri auglýsingu fyrir íslenska
bjórtegund. Þar segja íslenskir knatt-
spyrnuáhugamenn ferðamanni nokkrum
frá einum glæstasta sigri íslenska
landsliðsins: 3-2 tapinu gegn heims-
meisturum Frakka í París árið 1999.
SVO vel stóðu okkar menn sig í
þeim leik að í minningunni er eins
og við höfum unnið sigur. Reyndar
skoruðu Íslendingar fleiri mörk í
leiknum ef út í það er farið. Rík harður
Daðason, hetjan úr 1-1 jafnteflinu
gegn Frökkum á Laugardalsvelli
ári fyrr, hafði ekki stillt miðið betur en
svo snemma leiks að knötturinn hafnaði í
röngu marki. Hefði sá misskilningur ekki
átt sér stað er deginum ljósara að frækinn
3-2 sigur hefði unnist. Bölvuð óheppni.
ÚTISIGRAR Íslands í keppnisleikjum
hafa ekki verið daglegt brauð frá þeim
fyrsta gegn Tyrkjum árið 1980, langt í frá.
Fjarri heimaslóðum hefur reynst erfitt
að ná í góð úrslit. Enn hefur ekki unnist
sigur á stórþjóð á útivelli en jafntefli gegn
Sovétmönnum og Úkraínu standa lík-
ast til upp úr. Sigrum á Noregi, Norður-
Írlandi, Litháen og Ungverjalandi var að
sjálfsögðu einnig vel fagnað. Svo ekki sé
minnst á nýlegar frægðarfarir til Albaníu
og Slóveníu.
KARLALANDSLIÐINU gefst tækifæri
til að skrá sig í sögubækurnar í kvöld.
Sigur á fimmtánda sterkasta landsliði
heimsins yrði án nokkurs vafa sá stærsti
fjarri heimahögunum í sögunni. Sigurinn
yrði sá þriðji á útivelli í yfirstandandi
undankeppni en þeim árangri hafa okkar
menn aldrei náð. Landsliðsþjálfarinn er
raunsær bjartsýnismaður og segir þokka-
legar líkur á sigri. Mínar væntingar eru
litlar en draumarnir þeim mun fallegri.
„Við kennum stelpum og strákum
að koma fram á sviði, sýna sína
helstu kosti og fela gallana,“ segir
Konráð Gíslason, einkaþjálfari
og eigandi Icelandfitness. Hann
stendur fyrir pósunámskeiði fyrir
keppendur á Bikarmóti í fitness
og vaxtarrækt sem haldið verður
þann 14. september næstkomandi.
Undirbúningur fyrir mótið nú
er í fullum gangi en að sögn Kon-
ráðs taka um 120 manns þátt að
þessu sinni. „Hópurinn sem tekur
þátt í svona keppnum fer alltaf
stækkandi en það eru yfirleitt um
fimmtíu manns sem koma á nám-
skeiðin til okkar. Þetta er búið að
taka mikið frá fegurðarsamkeppn-
unum. Stelpurnar vilja frekar vera
með sixpakk og í góðu formi en
bara vera sætar.“
Þátttakendum er skipt í nokkra
hópa og meðal annars eru kennd-
ar pósur og frjálsar stöður. „Við
reynum að hafa gaman og stelp-
urnar mæta oftast í bikiníi og á
hælum eins og þær eru í þegar þær
koma fram í keppninni.“
Konráð segir alla geta lært að
pósa og að það að kunna að pósa sé
mjög mikilvægt fyrir keppendur
vilji fólk ná árangri. „Það er gríðar-
lega mikilvægt að kunna að pósa og
koma fram. Þú getur verið í gríðar-
legu formi og flottur en það skiptir
líka máli að kunna að gefa af sér á
sviðinu og sýna útgeislun.“ - hó
Vilja frekar vera
með sixpakk
Konráð Gíslason einkaþjálfari stendur fyrir pósunámskeiði fyrir keppendur í
Bikarmóti í fi tness. Segir mikilvægt að kunna að gefa af sér á sviðinu.
Grínistinn Eddie Murphy kom fólki á óvart á samskiptamiðl-
inum Twitter á dögunum með því að frumflytja þar nýtt lag.
Snoop Lion, sem áður var þekktur sem Snoop Dogg, syngur
einnig í laginu. Lagið heitir Red Light og er reggílag. Lagið
verður á væntanlegri plötu leikarans sem mun heita 9.
Eddie Murphy, sem er betur þekktur sem grínisti og leikari,
er enginn nýgræðingur þegar kemur að söng og hefur sungið
í fjölda kvikmynda sem hann hefur leikið í. Murphy hefur
einnig gefið út þrjár sólóplötur en þær komu út á árunum 1985
til 1993. Á þeim plötum naut hann einnig aðstoðar margra
snillinga á borð við Stevie Wonder, Nile Rodgers og Michael
Jackson. Hans stærsti smellur hingað til er lagið Party All the
Time sem kom út árið 1985.
Eddie Murphy og
Snoop Lion saman
Leikarinn Eddie Murphy hefur gefi ð út nýtt lag og
nýtur aðstoðar rapparans vinsæla, Snoop Lion.
GEFUR ÚT LAG Eddie Murphy gefur út lag
með Snoop Lion. NORDICPHOTOS/GETTY
STELLINGAR Tilvonandi keppendur í fitness æfa sig í að pósa. MYND/IFITNESS
JOBS 5, 8, 10.40
ELYSIUM 8, 10.20
KICK ASS 2 8, 10.20
STRUMPARNIR 2 3.30, 5.45 2D
PERCY JACKSON 3.30, 5.45
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
T.V. - Bíóvefurinn
5%
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
VARIETY
ROGER EBERT
NEW YORK TIMES
SAN FRANCISCO CHRONICLE
COSMOPOLITAN
JULIANN GAREY / MARIE CLAIRE
S.E. FOX-TV
SCOTT MANTZ / ACCESS HOLLYWOOD
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
THIS IS US 3D KL. 6 - 8
JOBS KL. 8 / HROSS Í OSS KL. 6
2 GUNS KL. 10.15 / ELYSIUM KL. 10
-H.G., MBL -V.G., DV
„ÆSISPENNANDI!“
- ENTERTAINMENT WEEKLY
„HROSS Í OSS ER AFAR FRUMLEG
OG ÁHUGAVERÐ MYND“
THIS IS US 3D KL. 3.30 - 5.45 - 8 - 10.15
THIS IS US 3D LÚXUS KL. 3.30 - 5.45
JOBS KL. 8 - 10.40
FLUGVÉLAR 2D ÍSL TAL KL 3.20 - 5.50
ELYSIUM KL. 8 - 10.25
ELYSIUM LÚXUS KL. 10.25
PERCY JACKSON KL. 3.20 - 5.40
2 GUNS KL. 8 - 10.30
2 GUNS LÚXUS KL. 8
STRUMPARNIR 2D ÍSL TAL KL. 3.20 - 5.40
THIS IS US 3D KL. 5.45 - 8 - 10.15
HROSS Í OSS KL. 6 - 8 - 10
ELYSIUM KL. 10.20
PERCY JACKSON KL. 5.40 - 8
2 GUNS KL. 8 - 10.30
STRUMPARNIR 2D ÍSL TAL KL. 5.40
Miðasala á: og
-H.S., MBL
-S.B., DV
-H.K., MBL /
MONITOR
SANNSÖGULEG MYND UM
ÆVI STEVE JOBS STOFNANDA
APPLE, MEÐ ASHTON KUTCHER
Í AÐALHLUTVERKI.
S I G H T S E E R S S I G H T S E E R S S I G H T S E E R S S I G H T S E E R S S I G H T S E E R S S I G H T S E E R S S I G H T S E E R S
SJÁ SÝNINGARTÍMA Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas