Fréttablaðið - 06.09.2013, Page 64
6. september 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 44SPORT
FÓTBOLTI „Ég geri enga kröfu um
sæti í byrjunarliðinu. Ég reyni
bara að sýna hvað ég get þegar
ég spila og ég reyni sérstaklega
að hafa gaman af þessu. Það
er mikil jákvæðni í kringum
íslenska liðið þessa dagana og
við höfum náð að standa svolítið
undir því.
Það er gríðarlegt tækifæri sem
við stöndum frammi fyrir núna
og við verðum að reyna að grípa
það með báðum höndum,“ sagði
Eiður Smári Guðjohnsen á hóteli
íslenska liðsins í gær.
Hann hefur verið að koma
sterkur inn í íslenska liðið upp á
síðkastið og margir vilja sjá hann
fá tækifæri í 90 mínútur.
Liðið tók eina morgunæfingu í
gær en það var síðasta æfing liðs-
ins fyrir leikinn. Leikmenn voru
í hvíld seinni partinn en munu
aðeins hrista sig til áður en þeir
halda á Stade de Suisse í leikinn
mikilvæga.
„Ég held að þetta sé þannig
leikur að ef við tökum einhver
stig með okkur heim væri það
frábært afrek. Það er óhætt að
segja að Sviss sé með sterkasta
liðið í þessum riðli. Við vitum vel
að þetta verður gríðarlega erfitt
en við verðum að reyna að spila
okkar besta leik.“
Eiður hefur ekki spilað mikið
upp á síðkastið og hefur verið
orðaður við brottför frá félagi
sínu Club Brügge. Treystir hann
sér í að spila í 90 mínútur?
„Ég er alltaf maður í að spila
en tek bara því hlutverki sem
mér er gefið. Það fer væntanlega
eftir því hvernig við setjum leik-
inn upp og hvernig hann þróast.
Það er alveg ljóst að við þurfum
að vera mjög agaðir og þolinmóð-
ir. Ef við gerum það þá höfum við
nóga góða leikmenn og liðsheild
til þess að gera út um leikinn.“
Gunnleifur Gunnleifsson
markvörður var sem fyrr létt-
ur í lundu er Fréttablaðið hitti á
hann í gær. Gunnleifur hefur átt
frábært ár í marki Breiðabliks og
margir sem tippa á að hann verði
í byrjunarliðinu í dag.
„Ég hef ekki hugmynd um
hvort ég verði í byrjunarliðinu.
Auðvitað er ég klár í að spila eins
og allir hinir. Þjálfararnir velja
liðið og við stöndum allir á bak
við þá,“ sagði Gunnleifur. Verð-
ur hann ekkert brjálaður ef hann
verður ekki valinn? „Ég er hætt-
ur að æsa mig yfir hlutunum. Ég
held minni ró og styð mitt lið.“
Það er hvorki svartsýni í
íslenska liðinu né minnimátt-
arkennd. Leikmenn ætla sér að
koma Sviss á óvart og fá eitthvað
út úr leiknum.
„Eins og venjulega hjá íslenska
landsliðinu er stemningin í
hópnum frábær. Ef við vinnum
þrjá af síðustu fjórum leikjunum
þá ættum við að vera í öðru sæti
og komast í umspil. Við ætlum að
reyna að ná því sem fyrst,“ sagði
Gunnleifur en í Sviss hafa heima-
menn ekki miklar áhyggjur af
íslenska liðinu.
„Ég vona að þeir haldi að þeir
geti tekið þetta með vinstri. Við
teljum okkur hafa fundið ein-
hverja veikleika hjá þeim. Það
verður svo að koma í ljós hvort
það það dugar okkur í þessum
leik.“
Gera ekki kröfu um neitt
Eiður Smári Guðjohnsen og Gunnleifur Gunnleifsson gætu komið inn í byrjunarlið Íslands í kvöld. Gunn-
leifur varði mark Íslands í síðasta leik og hefur staðið sig vel í sumar. Eiður Smári hefur aft ur á móti átt
fl ottar innkomur í liðið og breytt spili liðsins til hins betra.
Henry Birgir
Gunnarsson
henry@frettabladid.is
Valgarður Gíslason
valli@365.is
Frá Bern í Sviss
Gylfi Þór Sigurðsson verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu á Stade
de Suisse á morgun. Það hefur mikið gengið á hjá félagi hans,
Tottenham, upp á síðkastið.
Gareth Bale er farinn til Real Madrid og fjölmargir leikmenn
hafa verið fengnir til liðsins í hans stað og þeir eru ansi dýrir
margir hverjir. Svo margir að í nokkrum fjölmiðlum var því fleygt
fram að Gylfi yrði lánaður. Hvað var að gerast?
„Það var ekkert þannig í gangi. Hvorki hjá mér né
Tottenham. Ég hef byrjað þrjá af síðustu fjórum til
fimm leikjum. Ég er sáttur við það. Í toppklúbbunum
er samt alltaf mikil samkeppni um stöður og ég verð
því að berjast fyrir mínu,“ sagði Gylfi en ansi margir
leikmenn voru keyptir sem geta spilað sömu stöðu og
hann.
„Þeir eru kannski búnir að kaupa svolítið mikið af
miðjumönnum,“ sagði Gylfi og glotti við tönn. - hbg
Vildi ekki fara frá Spurs
40%
KAST-
OG
RENNS
LISSTA
NGIR
FLUGU
HJÓL
VEIÐIH
JÓL
REYKJAVÍK • Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • mánud.–föstud. 10–18 • laugard. 10–16
AKUREYRI • Tryggvabraut 1-3 • Sími 460 3630 • mánud.–föstud. 8–18 • laugard. 10–16 • ellingsen.is
RÝMINGA
RSALA VEIÐIVÖR
UR
Aðrar veiðivörur
á afslætti 25%
SPÚNAR VÖÐLUJAKKARSMÁVÖRUR
50%
AFSLÁTTU
R AF
ÖLLU
FRÁ LOOP
TÁBROTINN Þátttaka Alfreðs gegn Sviss
er í uppnámi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KLÁR Í SLAGINN Ragnar verður í
eldlínunni í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
REYNSLUBOLTAR Eiður Smári og Gunnleifur Gunnleifsson hafa verið í íslenska landsliðinu í mörg ár og mikil reynsla sem býr í
þeim báðum. Þeir hafa ekki verið í byrjunarliðinu undanfarið en spurning hvað gerist í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Meiðsli hafa verið að plaga íslenska liðið í undirbúningi leiksins.
Emil Hallfreðsson er farinn heim vegna sinna meiðsla og þeir Sölvi Geir
Ottesen og Gunnar Heiðar Þorvaldsson æfðu ekkert síðustu tvo daga vegna
meiðsla. Alfreð Finnbogason hefur aftur á móti verið að taka þátt í æfingum
síðustu daga en ekki var endilega búist við því.
„Ég hef verið betri en meiðslin skána með hverjum degi. Það verður naumt
að ég nái þessum leik. Ef ekki þá er mikill möguleiki á að ég nái leiknum eftir
helgi,“ sagði Alfreð í gær.
„Það er brot fremst í tánni og í raun ekkert hægt að gera. Ef ég vil spila þá
þarf að deyfa mig fyrir leikinn. Þá er aftur á móti möguleiki á því að ég verði
lengur frá í kjölfarið. Það hefur gengið ágætlega á æfingunum og ég hef gert
eins mikið og ég get,“ sagði Alfreð en er hann til í að láta sprauta sig fyrir
leikinn?
„Það verður bara að koma í ljós. Það verður gott að heyra hvernig læknirinn
metur þetta. Fyrst maður er kominn hingað þá vill maður auðvitað að spila en
sjáum hvað setur.“ - hbg
Gæti verið sprautaður fyrir leik
FÓTBOLTI Það mun væntanlega
mikið mæða á miðverðinum
Ragnari Sigurðssyni í leiknum
í kvöld. Sviss er með gríðarlega
öflugt sóknarlið og það verður
væntan lega nóg að gera hjá
Ragnari og félögum.
„Það er alltaf skemmtilegast
að spila við þjóðir sem eiga að
vera betri en við. Það er ákveðin
áskorun og við erum búnir undir
hana,“ sagði Ragnar ákveðinn.
„Þeir eru ótrúlega flinkir í
fótbolta. Ég held að þeir séu með
betra lið en við á pappírunum.
Það gefur aukinn kraft og við
verðum tilbúnir í slaginn.“
Ragnar ætlar enga virðingu
að bera fyrir mótherjum sínum
á morgun og mun láta þá finna
fyrir sér.
„Við verðum að brjóta þá niður
og vera sterkari og grimmari
í návígi. Það búast allir við því
að þeir valti yfir okkur og spili
í kringum okkur. Þá verðum við
að berja aðeins á þeim. Við erum
líka með sterka sóknarmenn. Ef
við spilum góða vörn og skorum
nokkur mörk gætum við tekið þá.
Ég held alltaf að ég vinni er ég
labba inn á völlinn og ég hef trú á
því að við séum að fara að vinna
leikinn.“
- hbg
Munum berja
á þeim