Fréttablaðið - 06.09.2013, Qupperneq 66
6. september 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 46
KÖRFUBOLTI Pavel Ermolinskij
skrifaði í fyrradag undir tveggja
ára samning við KR og mun spila
með liðinu í Dominos-deildinni.
Þetta er gríðarlegur liðsstyrkur en
Pavel var kosinn besti leikmaður
deildarinnar þegar hann lék síðast
með liðinu veturinn 2010 til 2011.
Það er ljóst að KR-ingar verða
ekki árennilegir með Pavel í farar-
broddi. Það vekur athygli að þótt
Pavel sé ekki uppalinn í Vestur-
bænum er hann enn einn leik-
maðurinn sem kemur aftur í KR
eftir að hafa spilað annars staðar
síðustu ár. Í fyrra sneru aftur þeir
Helgi Már Magnússon og Brynjar
Þór Björnsson en í sumar voru þrír
uppaldir KR-ingar komnir heim
áður en Pavel ákvað að semja við
KR. Þetta eru þeir Magni Haf-
steinsson, Darri Hilmarsson og
Matthías Orri Sigurðarson. Sá
síðast nefndi er yngri bróðir lands-
liðsbakvarðarins Jakobs Sigurðar-
sonar og var búinn að vera í skóla
í Bandaríkjunum.
Magni er kominn aftur í KR
eftir níu ára fjarveru og Darri
er búinn að vera í burtu í þrjú
tímabil. Allir hafa þessir strákar
unnið Íslandsmeistaratitilinn með
félaginu og einhver þeirra hefur
tekið þátt í að vinna alla stóra titla
KR-liðsins á þessari öld (2000,
2007, 2009 og 2011).
Hér með fréttinni má sjá strák-
ana sem sneru heim í ár og í fyrra.
- óój
KR-ingar endurheimta sína stráka í körfunni
Fjórir fyrrverandi leikmenn karlaliðs KR verða aft ur í KR-búningnum á komandi tímabili í Dominos-deildinni.
HELGI MÁR MAGNÚSSON
Aldur: 31 árs.
Leikstaða: Framherji.
Lék í millitíðinni hjá: Solna Vikings,
Uppsala Basket og Stokkhólmi 08 í
Svíþjóð.
Kom: Sumar 2012.
Fór frá KR: Til Svíþjóðar 2009.
BRYNJAR ÞÓR BJÖRNSSON
Aldur: 25 ára.
Leikstaða: Bakvörður.
Lék í millitíðinni hjá: Jamtland í
Svíþjóð.
Kom: Sumar 2012.
Fór frá KR: Til Svíþjóðar 2011.
MAGNI HAFSTEINSSON
Aldur: 32 ára.
Leikstaða: Framherji.
Lék í millitíðinni hjá: Snæfelli og
Fjölni.
Kom: Sumar 2013.
Fór frá KR: Til Snæfells 2004.
DARRI HILMARSSON
Aldur: 26 ára.
Leikstaða: Framherji.
Lék í millitíðinni hjá: Hamar og Þór
Þorlákshöfn.
Kom: Sumar 2013.
Fór frá KR: Til Hamars 2010.
MATTHÍAS ORRI
SIGURÐARSON
Aldur: 19 ára.
Leikstaða: Bakvörður.
Lék í millitíðinni hjá: Í skóla í Banda-
ríkjunum.
Kom: Sumar 2013.
Fór frá KR: Til BNA 2011.
PAVEL ERMOLINSKIJ
Aldur: 26 ára.
Leikstaða: Bakvörður.
Lék í millitíðinni hjá: Sundsvall og Norrköping
í Svíþjóð.
Kom: Sumar 2013.
Fór frá KR: Til Svíþjóðar 2011.
HANDBOLTI Það er ávallt draumur hvers
íþróttamanns að hafa lifibrauð af íþrótt
sinni og gera það sem honum þykir
skemmtilegast á hverjum degi.
Þær Stella Sigurðardóttir og Karen
Knútsdóttir leika báðar með danska
handbolta liðinu SønderjyskE en Stella
ákvað eftir síðasta tímabil með Fram að
taka skrefið og gerast atvinnumaður í
handbolta.
Fram varð Íslandsmeistari í handknatt-
leik í lok síðasta tímabils og því kjörinn
tímapunktur fyrir þessa vinstri handar
skyttu að kveðja Safamýrina og gerast
atvinnumaður.
SønderjyskE mætir dönsku meisturunum
í Midtjylland í fyrsta leik á útivelli í kvöld.
„Þetta var klárlega rétta skrefið fyrir
mig að koma hingað út og fara í atvinnu-
mennskuna,“ segir Stella Sigurðardóttir.
„Það er frábært að búa hér í þessum
fallega bæ og gott að hafa kærastann mér
við hlið,“ segir Stella en hún býr í Aabenraa
í Danmörk sem er við landamæri Þýska-
lands. Handknattleiksmaðurinn Tandri
Már Konráðsson er sambýlismaður Stellu
en hann leikur með danska liðinu TMT og
þekkir parið handboltalífið vel. Tandri lék
áður með Stjörnunni og HK.
„Þetta voru strax mikil viðbrigði fyrir
mig en hér úti eru allir leikir erfiðir og
liðin ótrúlega sterk. Við erum með nokk-
uð sterkan hóp ef hann er fullskipaður
en aftur á móti urðum við fyrir mikilli
blóðtöku í síðasta æfingaleik liðsins fyrir
mót. Þá urðu tvær stelpur fyrir því óláni
að meiðast illa og verða nokkuð lengi frá
keppni.“
SønderjyskE þarf því á öllu sínum leik-
mönnum að halda strax frá upphafi móts
en línumaður liðsins sleit krossband í hné
og verður frá út tímabilið. Einnig er eina
örvhenta skytta liðsins töluvert meidd og
missir af upphafi mótsins.
„Fyrir utan að þetta eru tveir frábærir
leikmenn þá eru þær gríðarlega mikil vægir
karakterar í hópnum. Ég mun líklega spila
hægra megin fyrir utan í kvöld en ég ætti
alveg að ráða við það. Hægri skyttan var í
raun mín staða þegar ég kom upp í meist-
araflokkinn hjá Fram og ég hóf minn feril
þar. Reyndar hef ég lítið leikið þá stöðu í
nokkur ár en það ætti samt að ganga upp í
leiknum á morgun.“
Stella hefur undanfarin ár verið ein
besta handknattleikskona Íslands og farið
á kostum í N1-deildinni. Nú er stóra prófið
fram undan.
„Það er allt til alls hérna úti og frá bærar
aðstæður fyrir okkur. Það er einnig gott að
hafa íslenskan þjálfara sem maður getur
leitað til.“
Ágúst Jóhannsson er þjálfari Sönder-
jyskE sem og landsliðsþjálfari Íslands
og þekkir hann því bæði Stellu og Karen
vel. Hann tók við liðinu fyrir skömmu en
SönderjyskE hafnaði í níunda sæti dönsku
úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.
„Við ætlum að halda sæti okkar í
deildinni á þessu tímabili og það er aðal-
markmið liðsins. Síðan verður staðan tekin
um jólin og þá þarf kannski að setja sér ný
markmið,“ segir Stella.
„Við erum að fara að mæta dönsku meist-
urunum í fyrstu umferð og maður er í raun
mjög spenntur en einnig er töluvert stress í
gangi í hópnum,“ segir Karen Knútsdóttir í
samtali við Fréttablaðið.
„Þetta verður líklega nokkuð erfitt tíma-
bil en við höfum fulla trú á okkar mann-
skap og ætlum okkur að dvelja áfram í
efstu deild.“
Karen er leikstjórnandi liðsins. Hún gekk
í raðir SønderjyskE í sumar og mikið mun
mæða á henni í vetur.
„Ég hef ekki náð
að taka nægilega vel
þátt í undirbúnings-
tímabilinu en verð
klár fyrir leikinn á
morgun.“
stefanp@365.is
Rétt skref að fara í atvinnumennsku
Stella Sigurðardóttir og Karen Knútsdóttir leika báðar með danska handknattleiksliðinu SønderjyskE en þær þurfa að láta til skara
skríða með liðinu strax frá byrjun. Mikil meiðsli hafa herjað á liðið korteri fyrir mót og mun mæða mikið á þeim frænkum.
ÆVINTÝRI Frænkurnar
Stella Sigurðardóttir (til
vinstri) og Karen Knúts-
dóttir (til hægri) lifa
drauminn í Danmörku.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARALDUR
16BLSBÆKLINGUR
STÚTFULLUR AF SJÓÐHEITUM OPNUNAR-TILBOÐUM
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
STÆRSTA TÖLVU-VERSLUN LANDSINS Í HALLARMÚLA 2
NÝ VERSLUN