Fréttablaðið - 06.09.2013, Qupperneq 70
6. september 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 50
„Ég er að spila með Dúndurfréttum
í Hörpunni á föstudagskvöldið og
svo spila ég í tveimur brúðkaupum
á laugardaginn. Þess á milli ætla
ég að hafa það notalegt með fjöl-
skyldunni.“
Matthías Matthíasson tónlistarmaður.
HELGIN
Tríóið Blær frá Garðabæ hefur gefið út sitt
annað lag og heitir það Allt.
„Það fjallar um það sem þig langar ótrúlega
mikið í en þegar þú færð það viltu það alls ekki
neitt. Ég samdi það með ákveðið atvik í huga,“
segir söngkonan Ylfa Marín Haraldsdóttir
spurð út í nýja lagið.
Hljómsveitin var stofnuð í janúar síðast-
liðnum. Aðspurð segir Ylfa Blæ spila draum-
kennt popp með alls konar ívafi og stefnum.
Auk Ylfu eru í hljómsveitinni þeir Ásgeir Örn
Sigurpálsson og Ellert Ólafsson. Öll stunda þau
nám við Háskóla Íslands.
Fyrsta lagið, Carol, leit dagsins ljós í byrjun
júní og í síðustu viku vann hljómsveitin keppn-
ina Eflum íslenskt tónlistarlíf sem Stúdíó
Hljómur á Seltjarnarnesi stóð fyrir. „Það
var ótrúlega skemmtilegt og kom virkilega
á óvart,“ segir Ylfa. Fjórar hljómsveitir tóku
þátt og í verðlaun var ókeypis hljóðritun á einu
lagi. „Það kemur sér mjög vel og við ætlum að
taka næsta lag okkar upp þar,“ segir hún um
verðlaunin. - fb
Draumkennt popp úr Garðabæ
Hljómsveitin Blær gefur út lagið Allt. Hún bar sigur úr býtum í keppninni Efl um íslenskt tónlistarlíf.
BLÆR Hljómsveitin Blær frá Garðabæ hefur gefið út
lagið Allt.
➜ Hljómsveitirnar Dikta og
Of Monsters and Men
koma einnig frá Garðabæ.
„Þetta var gaman en svolítið sér-
stakt,“ segir Stuðmaðurinn Tómas
M. Tómasson.
Afbrigði hljómsveitar hans
Bítladrengirnir blíðu spilaði á
skemmtistaðnum Café Rosenberg
á miðvikudagskvöld. Einn gest-
anna var frú Vigdís Finnboga-
dóttir, fyrrverandi forseti
Íslands.
„Við M ag nús
Einars son, Eðvarð
L á r u s s o n o g
Karl Pétur Smith
vorum að hita
upp fyrir Jeremy
Q uent i n , sem
kallar sig Small
Houses, sem var að
spila þarna. Hún kom
þarna inn og hélt að
það væru aðrir
tónleikar. Ég
sá að hún gaf
sig á tal við
strákana
og ætlaði
að hlusta
á nokkur lög. Svo var hún
eigin lega bara allt kvöld-
ið,“ segir Tómas. „Það
var afskaplega gaman
að hitta Vigdísi.“
Þeir félagar spiluðu
alls kyns lög, meðal
annars með Bítlunum
og Rolling Stones. „Við
spiluðum í tæpan klukku-
tíma og svo byrjaði Banda-
ríkjamaðurinn. Hún hlustaði
á hann líka og sagðist hafa
skemmt sér mjög vel.“
- fb
Spiluðu Bítlalög
fyrir Vigdísi
Tómas M. Tómasson spilaði óvænt fyrir frú Vigdísi
Finnbogadóttur á Rosenberg.
SPILAÐI FYRIR VIGDÍSI Tómas M. Tómasson og félagar spiluðu óvænt fyrir Vigdísi
Finnbogadóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SÓTTI TÓN-
LEIKA Vigdís
Finnbogadóttir
hlýddi á Bítla-
drengina blíðu.
„Ég vona svo sannarlega að þetta
verði ekki vandræðalegt en það
getur vel verið að svo fari,“ segir
söngvarinn og lagahöfundurinn
Friðrik Dór Jónsson, sem stjórnar
opnunarþætti nýrrar sjónvarps-
stöðvar á morgun.
Nýja sjónvarpsstöðin nefnist
Stöð 3 og fer í loftið klukkan 21
annað kvöld. Á stöðinni verður
boðið upp á innlent og erlent sjón-
varpsefni fyrir alla aldurshópa.
„Það var haft samband við mig og
ég beðinn um að stjórna opnunar-
þætti stöðvarinnar. Þetta er algjör
frumraun fyrir mig þar sem ég
hef ekki stjórnað sjónvarpsþætti
áður. Ég fiktaði aðeins við þátta-
gerð þegar ég var í menntaskóla,
þá vorum við vinirnir að taka upp
grínsketsa. Síðan þá hef ég ekk-
ert komið nálægt þáttagerð. Mér
finnst þetta vera ágætis tækifæri
fyrir mig og ég ætla bara að hafa
gaman af þessu,“ segir hann.
Spurður nánar út í þáttinn segir
Friðrik að þetta verði í megin-
dráttum spjallþáttur þar sem
hann tekur mann og annan tali.
„Ég mun spjalla við gesti og gang-
andi og kynna dagskrá stöðvar-
innar. Það verða einnig tónlistar-
atriði og fleira skemmtilegt. Þetta
verður fjörugur þáttur og ég ætla
að vera mjög hress,“ segir Friðrik
og hlær.
Friðrik Dór slær ekki slöku
við þessa dagana en hann
syngur lagið Glaðasti hundur
í heimi, sem situr í efsta sæti
vinsældarlista Rásar 2, stund-
ar nám í viðskiptafræði við
Háskóla Íslands og á von á sínu
fyrsta barni eftir rúmlega viku.
„Föðurhlutverkið leggst mjög vel
í mig. Það er allt klárt fyrir komu
barnsins. Ég hef litlar áhyggjur
af því að barnið fæðist á meðan
ég er í beinni útsendingu, en ef
það skyldi gerast þá væri það
bara frekar fyndið,“ segir hann
að lokum. asa@frettabladid.is
Ætlar að vera hress
Poppsöngvarinn og lagahöfundurinn Friðrik Dór Jónsson mun stýra opnunar-
þætti nýrrar sjónvarpsstöðvar á laugardaginn sem nefnist Stöð 3.
STJÓRNAR
SJÓNVARPS-
ÞÆTTI Í
FYRSTA SINN
Poppsöngvarinn
Friðrik Dór
Jónsson mun
stýra upphafs-
þætti Stöðvar
3 sem fer í
loftið kl 21.00 á
laugardaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Föðurhlutverkið
leggst mjög vel í mig.
➜ Tómas spilaði fyrir Ólaf
Ragnar Grímsson þegar
íslenska karlalandsliðið í
handbolta var hyllt hér um
árið í miðborg Reykjavíkur.
Vítamín sem mæta þörfum allra á heimilinu
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA LITLAR TÖFLUR NÝTT OG BETRA BRAGÐ SJÁ NÁNAR Á VITAMIN.IS
Icepharm
a