Fréttablaðið - 06.09.2013, Page 72
FRÉTTIR
AF FÓLKI
Mest lesið
1 Í ósamstæðum skóm á fundi með
Obama
2 Yfi rsteig enskuhræðslu í beinni sjón-
varpsútsendingu
3 Ríkið greiðir milljónir vegna herferðar
sem var hætt við
4 Sigmundur Davíð hitti Obama– „Hann
er mjög viðkunnanlegur“
5 Pylsuvagninn á Selfossi skilaði sex
milljóna hagnaði
6 Fann múmíu uppi á háaloft i
Jóhanna Guðrún
kennir söng
Jóhanna Guðrún verður með söng-
námskeið í Tónskóla Eddu Borg í
vetur. Námskeiðið stendur yfir í tíu
vikur og er ætlað öllum þeim sem
hafa gaman af því að syngja en vilja
læra örlítið meira, t.d. hvernig á að
syngja í hljóðnema. Einnig læra þeir
ýmislegt um framkomu og undir-
búning fyrir flutning laga. Jóhanna
Guðrún, sem hefur verið búsett í
Noregi með kærasta sínum Davíð
Sigurgeirssyni, mun miðla
af dýrmætri reynslu
sinni en Íslendingum
er enn í fersku minni
þegar hún
lenti í
öðru
sæti í
Eurovisi-
on árið
2009
með
laginu Is
it true?.
- fb
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
ht.is
ÞVOTTAVÉLAR
Ánægður með hótelið
Eins og kunnugt er fundaði
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra með leiðtogum
Norðurlandanna og Barack Obama
Bandaríkjaforseta í Stokkhólmi
fyrr í vikunni. Þar gisti forsætis-
ráðherra á Victory Hotel og var sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
hæstánægður með gistinguna.
Forsætisráðherra var sérstaklega
hrifinn af því hvernig hótelið er
skreytt að innan
með gömlum
munum sem
tengjast
siglingum og
sjómennsku,
enda mikill
áhugamaður
um gömul hús
og hluti. - hg