Fréttablaðið - 01.10.2013, Blaðsíða 1
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Þriðjudagur
14
GÓÐUR MILLIBITIHnetur og möndlur eru hollar og góðar. Þær henta mjög vel sem millibiti ef hungrið kallar. Hnetur og möndlur eru prótínríkar og innihalda E-vítamín, fólínsýru, magnesíum, trefjar og andoxunarefni.
É g er íþróttakennari og hef starfað sem einka-þjálfari í World Class í 18 ár. Á þessum tíma hefur margt breyst varðandi áherslur í heilsu og líkamsrækt. Fólk er að mörgu leyti orðið með-vitaðra og umræðan um heilsu og vellíðan meiri en grunnurinn er alltaf sá sami þótt breiddin og fram-boð hafi aukist,“ segir Lóló og bætir við að hennar markmið með þjálfun hafi alltaf verið það sama, að bæta heilsuna og daglega líðan. „Fólk kemur til mín í alls konar ástandi og með mismunandi mark-mið en stór hluti finnur fyrir vöðvabólgu, eymslum hér og þar, er með gigt eða einhvers konar krank-leika og þá mæli ég alltaf með Sore No More. Það virkar strax og maður ber það á sig og maður finnur gríðar legan mun. Svo er frábært að nota það á gagnaugun við höfuðverk, á efri vörina við kvefi og á bringuna við hósta. Ég er rosalega hrifin af þessari vöru enda er hún náttúruleg og án allra kemískra aukaefna og hentar því öllum aldri. Ég á tvo stráka sem æfðu fótbolta og ég notaði Sore No More mikið á þá sem ég hefði auðvitað ekki gert nema ég hefði 100% trú á vörunni.“
HLUTI AF ÞVÍ AÐ LÁTA SÉR LÍÐA BETUR
Lóló kenni hóptíma í World Class Laugum sem
nefnast mix pilates og er fyrir fólk á öllum aldri
sem vill styrkja kvið- og bakvöðva og bæta líkams-
stöðuna. „Svo hef ég kennt reglulega skriðsunds-
námskeið og aðsóknin er bara að aukast ef eitthvað
er. Næsta námskeið hefst 7. október í Laugardals-
lauginni,“ segir Lóló og brosir sín hlý
er alveg s
saman. Mataræði, hreyfing, hugarfar, samskipti og
sjálfsmynd. Þú þarft að geta horft í spegil og verið
sátt(ur) í eigin skinni óháð aldri, kyni eða útliti. Öll
viljum við vera virkir þátttakendur í eigin lífi, halda
heilsu og horfa bjartsýn til framtíðar en síðast en
ekki síst að geta lifað í núinu og notið lífsins Ég
tala mikið við fólkið mitt ogfyri h
VIRKAR Á ALLAGENGUR VEL KYNNIR Matthildi Rósenkranz Guðmundsdóttur, eða Lóló, kannast margir við, enda hefur hún verið áberandi í íslensku þjóðlífi í ára-
tugi. Lóló er ein af þeim sem hafa notað Sore No More hita- og kæligelið
síðan það kom á markað fyrir sex árum og mælir með því fyrir alla.
Astmi og lungnaþembaskerðir súrefni í blóði.Hvað gerir SUPERBEETS?
U
m
b
o
ð
: w
w
w
.v
it
ex
.is
Örvar Nitric Oxide framleiðslu strax.
30% meiri súrefnisupptaka 30% æðaútvíkkun betra blóðflæði, réttur blóðsykur aukin fitubrennsla, 20% meira þrek, orka og úthald.SUPERBEETS Rauðrófukristall
100% lífrænt og því fullkomlega öruggt.Fæst í apótekum, heilsubúðum, World Class og Sportlíf.
MÆLIR MEÐLóló Rósenkrans íþróttakennari (lolo@worldclass.is) notar Sore No
More.
ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2013
BÍLAR
2 SÉRBLÖÐ
Bílar | Fólk
Sími: 512 5000
1. október 2013
230. tölublað 13. árgangur
MR þolir ekki meira
Menntaskólinn í Reykjavík fær
minnst framlög á hvern nemanda
frá ríkinu. Framlög til hans lækkuðu
þegar langflestir skólar fengu meira.
Þar á bæ segja menn að skólinn þoli
ekki meiri niðurskurð. 2
Fái hæli í Reykjavík Innanríkis-
ráðuneytið á nú í samningaviðræðum
við Reykjavíkurborg um að borgin
taki við hælisleitendum. 4
Áhersla á kaupmátt Verkalýðssam-
tök leggja áherslu á kaupmáttaraukn-
ingu og skattalækkanir í kröfugerð
sinni. 6
Gætu þurft að bíða Fái Heilbrigðis-
stofnun Suðurlands ekki aukin fjár-
framlög gætu veikir og slasaðir þurft
að bíða eftir sjúkraflutningum. 8
SKOÐUN Hönnunarmiðstöð hefur
lyft grettistaki í kynningu íslenskra
hönnuða, skrifar Ólafur Mathiesen. 14
MENNING The Vintage Caravan
gerði samning við stærstu sjálfstæðu
þungarokksútgáfu heims. 30
SPORT Skúli Jón Friðgeirsson segir
þjálfaraskipti gærdagsins það besta
sem fyrir hann gat komið. 26
KRINGLUNNI • SÍMI 551 3200
Peysa
Kr. 5.490.-
30 dagar
í Hrekkjavöku
Hryllilegt úr
val
af hræðilegu
m
vörum!
Nú er opio allan
sólarhringinn
í Engihjalla
Bolungarvík 5° N 2
Akureyri 7° S 2
Egilsstaðir 10° S 3
Kirkjubæjarkl. 10° SA 2
Reykjavík 8° N 3
HÆGUR VINDUR Í dag verður víðast
hvar hæg breytileg átt og rigning, einkum
SA-til, en yfirleitt þurrt NV-til. Hiti 4-10
stig. 4
HEILBRIGÐISMÁL Tveir af fimm læknum úr hjarta-
og brjóstholsskurðlækningateymi Landspítalans
sögðu upp störfum í sumar vegna óánægju með
starfsaðstöðu og kjör.
Bjarni Torfason, yfirlæknir hjarta- og brjóst-
holsskurðlækninga, staðfestir að þessi staða hafi
komið upp í sumar. „En þeir ætla að leggja okkur
áfram lið í þessum hremmingum sem við erum að
fara í gegnum þessa dagana.“
Spurður hvort raunveruleg hætta sé á því að
teymið liðist í sundur svarar Bjarni að „eins og
er“ hafi læknarnir orðið við beiðni um að halda
áfram störfum.
Heimildir Fréttablaðsins herma að hér gæti
skapast ófremdarástand liðist teymið í sundur, en
það stendur á milli þess að senda þurfi sjúklinga
í stórum stíl erlendis til lækninga með gríðar-
legum tilkostnaði.
Þá má áætla að hver aðgerð yrði þrisvar sinnum
dýrari, og er þá hvorki talinn ferðakostnaður né
heldur óþægindi sjúklings og aðstandenda.
Ef starfsemin legðist niður er ekki sjálfgefið
að hægt væri að ná slíku teymi saman að nýju,
því allir læknarnir búa yfir mikilli sérþekkingu.
Að baki eiga þeir margra ára grunnnám og langt
sérnám auk þess sem nauðsynlegt er að afla sér
þjálfunar og reynslu erlendis í allt að áratug til
að uppfylla þær kröfur sem starfið krefst.
- shá / shá síðu 12
Hjartaskurðlæknateymi Landspítalans við það að liðast í sundur í sumar:
Útilokað að fylla skörð læknanna
En þeir ætla að leggja
okkur áfram lið í þessum
hremmingum sem við erum
að fara í gegnum þessa dag-
ana.
Bjarni Torfason
yfirlæknir á LSH
SAMFÉLAGSMÁL „Þetta er bara byrj-
unin á miklu stærra verki,“ segir
Gunnar Jóhannsson, einn af eig-
endum Héðinshúss við Seljaveg í
Vesturbænum sem fengu ástralska
listamanninn Guido van Helten til
þess að fegra ásýnd hússins.
„Við rákumst á þennan lista-
mann fyrir tilviljun í sumar
þar sem hann var að spreyja og
fengum hann með okkur í þetta,“
útskýrir Gunnar, sem fékk van
Helten gagngert til landsins í
verkefnið.
Myndirnar sem van Helten
spreyjar eru upp úr íslensku leik-
verki sem sett var upp á sjötta
áratugnum. „Verkið samanstendur
af þremur ljósmyndum sem teknar
eru úr mismunandi senum úr leik-
ritinu,“ segir Gunnar.
Van Helten hófst handa við
verkið rétt fyrir helgi og mun
ljúka því á næstu vikum eftir því
sem veður leyfir. - nej
Vegglistaverk í Vesturbænum:
Fegrar ásýnd
Héðinshússins
SNILLINGUR „Þetta er einn fremsti veggjakrotari heims,“ segir Gunnar Jóhannsson, einn af eigendum hússins sem verkið er
spreyjað á. „Ef hægt er að kalla hann veggjakrotara,“ bætir Gunnar við. „Hann er snillingur, þessi maður.“ MYND/PJETUR
SAMGÖNGUR Eigendur flugvéla
sem lagt er á Reykjavíkurflugvelli
greiða svipað eða minna í gjöld til
flugvallarins á sólarhring en öku-
menn í miðborginni greiða fyrir
gjaldskyld bílastæði. Notendur
flugvallarins greiða um 30 prósent
af rekstrarkostnaði flugvallarins
en ríkið greiðir afganginn.
Þegar flugvél er lent á Reykja-
víkurflugvelli greiðir eigandi henn-
ar lendingargjald, þúsund krónur á
hvert tonn, sem á einungis við um
vélar sem eru þyngri en tvö tonn.
Lauslegur samanburður Frétta-
blaðsins á lendingargjaldi sam-
bærilegra flugvalla sýnir að gjald-
ið er mun hærra í öðrum löndum
og hleypur í sumum tilvikum á
hundruðum þúsunda.
Að auki eru engin stæðisgjöld
rukkuð á Reykjavíkurflugvelli
fyrstu sex klukkutímana eftir að
vél er lagt þar. Að þeim tíma lokn-
um er rukkað eftir þyngd vélarinn-
ar, um 1.100 krónur á hvert tonn
fyrir fyrstu tvo sólarhringana og
þar á eftir 680 krónur á sólarhring.
„Það er ekki langt síðan þessi
gjöld voru hækkuð og þá kvörtuðu
innlendir flugrekendur vegna þess
að allar hækkanir hafa áhrif á far-
miðagjöld þeirra,“ segir Friðþór
Eydal, talsmaður Isavia, sem fer
með rekstur flugvallarins.
Spurður hvort gjaldið sé ekki of
lágt samanborið við til að mynda
bílastæðagjöld í Reykjavík segir
hann gjöldin ekki samanburðar-
hæf. „Flugvallargjöld og stæðis-
gjöld fyrir flugvélar byggja á allt
öðrum hlutum en rekstur bíla-
stæða. Gjaldtaka á flugvöllum hér
á landi tekur ekki mið af gjaldtöku
bifreiðastæða heldur af gjaldtöku
á öðrum flugvöllum í öðrum lönd-
um,“ segir Friðþór.
Róbert Marshall, alþingis maður
og fulltrúi Bjartrar framtíðar í
umhverfis- og samgöngunefnd
Alþingis, segir fyrirkomulag
gjaldanna ekki koma sér á
óvart. „Þetta er eitt af
þeim dæmum sem sýna
að skipulagsmálum er um margt
áfátt á Reykjavíkurflugvelli,“
segir Róbert. - hg
Ódýrara að leggja flugvél
en einkabíl í miðborginni
Aðeins kostar nokkur þúsund krónur að leggja einkaþotu á Reykjavíkurflugvelli í tvo sólarhringa. Eftir það
kostar það 680 krónur á sólarhring. Talsmaður Isavia segir gjöldin sambærileg við það sem tíðkist erlendis.
Þetta er eitt af þeim
dæmum sem sýna að
skipulagsmálum er um
margt áfátt á Reykjavíkur-
flugvelli.
Róbert Marshall, fulltrúi í umhverfis- og
samgöngunefnd Alþingis