Fréttablaðið - 01.10.2013, Qupperneq 6
1. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6
TYRKLAND, AP Forsætisráðherra Tyrklands
kynnti í gær tilslakanir gagnvart Kúrdum, sem
fela meðal annars í sér að tungumáli Kúrda
verður gert hærra undir höfði en hingað til.
Kúrdar eru hins vegar ekki sáttir og telja allt
of skammt gengið. Til dæmis verður börnum
Kúrda ekki frekar en hingað til leyft að stunda
skólanám á móðurmáli sínu, en þau hafa þó
fengið heimild til að sækja einkaskóla þar sem
leyfilegt verður að kenna sumar námsgreinar á
kúrdísku.
Mánuðum saman hefur verið beðið eftir því að
Recep Tayyip Erdogan forsætisráðherra kynnti
áform sín í þessum efnum, enda höfðu Kúrdar í
vor fallist á vopnahlé í trausti þess að verulegar
umbætur yrðu gerðar á stöðu þeirra í Tyrklandi.
Erdogan kynnti þessi áform í gær og sagði þær
mikilvægar lýðræðisumbætur, sem sýni að Tyrk-
land sé óðum að lýðræðisvæðast undir stjórn
hans og flokks hans, Réttlætis- og þróunar-
flokksins.
„Þetta er ekki lýðræðispakki heldur kosninga-
pakki Réttlætis- og þróunarflokksins,“ segir
Gultan Kisanak, annar tveggja leiðtoga flokks
Kúrda á tyrkneska þinginu.
Réttindabarátta Kúrda í Tyrklandi, sem ekki
síst snýst um stöðu tungumáls þeirra, hefur á
síðustu áratugum kostað tugi þúsunda lífið. - gb
Tyrkir kynna tilslakanir gagnvart Kúrdum, sem áratugum saman hafa barist fyrir auknum réttindum:
Kúrdar ósáttir við tilslakanir Erdogans
RECEP TAYYIP ERDOGAN Forsætisráðherra Tyrklands
kynnti lýðræðisumbætur á blaðamannafundi í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VEISTU SVARIÐ?
VINNUMARKAÐUR Alger sam-
staða virðist vera innan verka-
lýðshreyfingarinnar og Samtaka
atvinnulífsins um að kjarasamn-
ingar verði gerðir til skamms
tíma og er rætt um sex til tólf
mánaða samning. Menn leggja
líka mikla áherslu á stöðugleika
sem forsendu aukins kaup máttar.
Talsmenn Samtaka atvinnu-
lífsins hafa lýst þeirri skoðun
sinni að lítið svigrúm sé til launa-
hækkana, svigrúmið sé hálft til
tvö prósent.
Björn Snæ-
björnsson, for-
maður samn-
inganefndar
Starfsgreina-
sambandsins,
telur að svig-
rúmið sé meira.
Hann telur til
að mynda að
útflutnings-
greinarnar,
fiskvinnslan og
ferðaþjónustan
hafi bolmagn
til meiri hækk-
ana. Björn segir
að ein krafa
sé skýr og það
sé að hækka
lægstu laun.
Gagnvart
ríkis valdinu geri Starfsgreina-
sambandið þá kröfu að persónu-
afsláttur verði hækkaður. „Við
höfum ekki sett fram neina tölu
í því sambandi en það munar um
hvern þúsundkallinn. Þetta getur
verið blanda af launahækkunum
og skattabreytingum til að auka
kaupmáttinn,“ segir Björn og
bætir við að krafan um aukinn
kaupmátt sé númer eitt, tvö og
þrjú.
Þá segir hann að hið opinbera
verði að koma á betra húsnæðis-
og leigukerfi á félaglegu grunni.
„Hálfs til tveggja prósenta
launahækkun kemur ekki til
greina nema eitthvað fleira komi
til,“ segir Ólafía Rafnsdóttir, for-
maður VR. Hún segir að sam-
kvæmt kjarakönnun sem var gerð
meðal félagsmanna í VR hafi
komið fram krafan um stöðug-
leika sem forsendu kjarasamn-
inga. Önnur atriði sem eru félags-
mönnum í VR ofarlega í huga eru
minni skattheimta og aðgerðir til
að draga úr skuldavanda heimil-
anna. Þetta ásamt afnámi verð-
tryggingar á lánum og virðis-
aukaskatts á mat vælum töldu
félagsmenn í VR mikil vægar
áherslur í gerð kjarasamninga.
Ólafía segir að ríkisvald-
ið, sveitarfélögin, verkalýðs-
hreyfingin og Samtök atvinnu-
lífsins verði að koma að
samningaborðinu eigi að takast
að semja um aukinn kaupmátt.
„Við höfum séð launahækkanir
fuðra upp á verðbólgubálinu og
vitum að samstaða er eina færa
leiðin út úr vítahring verðbólgu.
johanna@frettabladid.is
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
NÝ DÖGUN
www.nydogun.is www.sorg.is sorg@sorg.is
Sr. Svavar Stefánsson fjallar um sjálfsvíg á fyrirlestri
hjá Nýrrri dögun, samtökum um sorg og sorgarviðbrögð,
3. október n.k. í safnaðarheimili Háteigskirkju.
Fyrirlesturinn hefst kl. 20:00
Í kjölfarið fer af stað stuðningshópur fyrir aðstandendur
sem misst hafa í sjálfsvígi.
Sjá vetrardagskrá Nýrrar dögunar á www.sorg.is
Allir velkomnir.
Fyrirlestur um
sjálfsvíg
Fjölbreyttir tímar þar sem bæði er
dansað ZUMBA Fitness og ZUMBA Toning.
Einföld og skemmtileg dansspor.
Hefst 8. október
Þri. og fim. kl. 16:30
Þjálfari: Hjördís Zebitz
Verð kr. 13.900.-
í form!
TILBOÐ ÓSKAST Í:
- fasteignina að Nýbýlavegi 10, Kópavogi
- rekstur Bílasprautunar og réttinga Auðuns
- tæki og búnað Bílasprautunar og réttinga Auðuns
Nánari upplýsingar veita Ólafur Örn Svansson hrl. eða
Halldór Reynir Halldórson hdl., Forum lögmönnum,
Aðalstræti 6, Reykjavík, síma 562 3939.
Opið hús verður haldið að Nýbýlavegi 10 þriðjudaginn
1. október n.k. milli kl. 16 og 17. Tilboð þurfa að hafa borist
til skrifstofu Forum lögmanna eigi síðar en kl. 16
fimmtudaginn 3. október n.k.
Starfsgreinasambandið er fjölmennasta landssamband verkafólks á Ís-
landi, en félagar í sambandinu eru rúmlega 52 þúsund. Fullgildir félags-
menn VR eru hátt í þrjátíu þúsund talsins og starfa við meira en eitt
hundrað starfsgreinar.
Semja fyrir um 80 þúsund launþega
Vilja meiri kaupmátt
og minni skattbyrði
Áherslur verkalýðshreyfingarinnar eru smátt og smátt að skýrast. Samstaða er um
skammtímasamning sem feli í sér kaupmáttaraukningu. Starfsgreinasambandið
vill hækkun persónuafsláttar. Félagmenn í VR leggja áherslu á minni skattheimtu.
BJÖRN
SNÆBJÖRNSSON
HÆKKUN
PERSÓNU-
AFSLÁTTAR
S tarfsgreina-
sambandið telur
að fiskvinnslan sé
ein þeirra starfs-
greina sem hafi
bolmagn til að
hækka laun. Sam-
bandið leggur
líka áherslu á að
stjórnvöld hækki
persónuafslátt.
ÓLAFÍA B.
RAFNSDÓTTIR
VILJA AUKINN KAUPMÁTT Verkalýðshreyfingin vill að komandi kjarasamningur
skili auknum kaupmætti. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
1. Frá hvaða landi eru hjónin Haile
Kebede og Tsgie Yirga, sem kynntust
hér á landi?
2. Hve margir eru nú á biðlista eftir
hjúkrunarrými á landinu?
3. Hvert verður farið með Ólympíu-
kyndilinn þann 7. nóvember næst-
komandi?
SVÖR:1. Frá Eþíópíu. 2. 279. 3. Út í geiminn.