Fréttablaðið - 01.10.2013, Síða 8
1. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8
HEILBRIGÐISMÁL „Við óttumst að
það komi í okkar hlut að velja
og ákveða í hvaða bráðaútköll
verður farið á kvöldin og nótt-
unni,“ segir Ármann Höskulds-
son, yfirmaður sjúkraflutninga
hjá Heilbrigðisstofnun Suður-
lands.
Eins og komið hefur fram í
fréttum vantar
stofnunina 30
milljónir króna
til að halda úti
óbreyttum
sjúkraflutn-
ingum en í
dag eru tvær
áhafnir sjúkra-
bíla mannaðar
a l lan sólar-
hringinn. HSu
ræður yfir fjórum sjúkrabíl-
um og sextán starfa við sjúkra-
flutninga. Ef ekki fæst meira
fjármagn verður að fækka
sjúkraflutninga mönnum um
fjóra um áramótin.
Ármann segir að það þýði
breytingu á vaktakerfi. „Við
verðum með eina sjúkrabílaá-
höfn á vakt frá klukkan tíu á
kvöldin og til níu morguninn
eftir. Ef sjúkraflutningamenn-
irnir verða í útkalli og upp koma
bráð tilfelli eða alvarleg slys
verður enginn til taks. Þetta er
mjög bagalegt því þrjátíu pró-
sent allra bráðatilfella koma
upp á þessum tíma sólarhrings,“
segir Ármann og bætir við að
sjúkraflutningamenn séu veru-
lega áhyggjufullir.
Árnessýsla er átta þúsund fer-
kílómetrar. Íbúar eru um fimm-
tán þúsund og þar eru tíu þétt-
býlisstaðir. Auk þess eru um
átta þúsund sumarhús í sýsl-
unni. Meðalvegalengd í útkalli
er um 85 kílómetrar.
Ármann segir að sjúkraflutn-
ingamenn hjá FSu séu jafn-
margir og þeir voru 1998. En frá
þeim tíma hafi útköllum fjölgað
um 100 prósent. „Við höfum náð
að sinna þessu þokkalega með
þessari mönnun en við erum
mjög óttaslegnir ef kemur til
þess að það verði fækkað í hópn-
um,“ segir hann.
johanna@frettabaldid.is
Veikir og slasaðir gætu þurft
að bíða eftir sjúkraflutningi
Fái Heilbrigðisstofnun Suðurlands ekki meira fjármagn þarf að fækka sjúkraflutningamönnum um fjóra. Þá
yrði einn sjúkrabíll til taks á kvöldin og á nóttunni í stað tveggja. Þriðjungur útkalla er á þeim tíma sólarhrings.
ÓTTAST
FÆKKUN
Ármann
Höskulds-
son segir að
sjúkraflutn-
ingamenn í
Árnessýslu
hafi veru-
legar áhyggj-
ur af fækkun
sjúkraflutn-
ingamanna.
ÁRMANN
HÖSKULDSSON
Sjúkraflutningamenn hjá HSu á Selfossi fóru í 1.890 útköll á síðasta ári.
Af þeim voru 630 útköll þar sem fólk var lífshættulega veikt eða slasað. Í
rúmlega 900 útköllum var talið að um bráð veikindi væri að ræða eða slys
þar sem fólk var ekki talið í lífshættu. Í hvert útkall fóru að meðaltali tvær
klukkustundir og tuttugu mínútur. Sjúkraflutningamenn á Selfossi hafa
sinnt rúmlega 1.400 útköllum það sem af er þessu ári sem er líkur fjöldi
og á sama tíma og fyrir ári.
➜ Hátt í tvö þúsund útköll á ári
ÚTKÖLL SJÚKRAFLUTNINGA HSU Á SELFOSSI
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
2000
1750
1500
1250
1890
1642
1558
1718
1646
1391
1698
Ár
Fjöldi
MENNTUN Hagstofa Íslands hefur
reiknað út meðalrekstrarkostnað
á hvern nemanda í öllum grunn-
skólum sem reknir eru af sveitar-
félögum og er niðurstaðan sú að
meðalverð nemanda er rétt tæp-
lega ein og hálf milljón króna.
Útreikningur Hagstofunnar er
byggður á ársreikningum sveitar-
félaga fyrir liðið ár, að teknu tilliti
til verðlagsbreytinga til þess dags
sem útreikningur er gerður.
Niðurstöður útreikningsins eru
því þær að áætlaður rekstrar-
kostnaður á hvern nemanda í
grunnskólum sé 1.466.718 krónur í
september 2013. - vg
Hagstofan reiknaði kostnað:
Neminn kostar
1,5 milljónir
NEYTENDUR Frá ársbyrjun hefur
orðið veruleg söluaukning á
rjóma, ostum, drykkjarmjólk
og sprenging í smjörsölu, sam-
kvæmt tilkynningu frá Mjólkur-
samsölunni.
Fyrirtækið býst við áfram-
haldandi þróun næstu vikur og
fyrirtæki í mjólkuriðnaði hafa
ákveðið að kaupa alla fram-
leiðslu bænda fullu afurða-
stöðvaverði frá októberbyrjun til
áramóta. - vg
Mikil söluaukning á smjöri:
Sala á smjöri
eykst til muna
REYKJAVÍKURBORG Tillögur Jóns Gnarr borgarstjóra um aðgerðir
í ellefu liðum til þess að útrýma kynbundnum launamun hjá
Reykjavíkur borg verða ræddar á fundi borgarstjórnar í dag.
Í október 2012 var leiðréttur launamunur á heildarlaunum
kynjanna 5,8 prósent.
Aðgerðahópur um kynbundinn launamun sem borgarstjóri
skipaði í apríl 2012 skilaði skýrslu í byrjun september og eru til-
lögur borgarstjóra byggðar á henni.
Samkvæmt tillögunum verður núverandi fyrirkomulag fastra
yfirvinnusamninga endurskoðað en launamunurinn birtist helst
í yfirvinnu- og akstursgreiðslum. Einnig stendur til að innleiða
kynhlutlaust viðbótarlaunakerfi, aðgengi að upplýsingum um
laun og þróun launa stórbætt og stjórnendur koma til með að fá
fræðslu með reglubundnum hætti.
Launamunur hjá Reykjavíkurborg hefur minnkað síðan 2009. Í
krónum talið úr 48.654 krónum í 35.944 krónur.
- nej
Leiðréttur launamunur á heildarlaunum 5,8%:
Borgarstjórn gegn
launamun kynjanna
PERSÓNUVERND Maður sem taldi
sig hafa verið beittan harðræði við
handtöku á veitingastað í Kringl-
unni mátti ekki fá upptöku af hand-
tökunni úr eftirlitsmyndavél, sam-
kvæmt úrskurði Persónuverndar.
Það var lögreglumaðurinn sem sá
um handtökuna sem kvartaði vegna
málsins. Maðurinn sem var hand-
tekinn fékk sér lögfræðing vegna
málsins og sá fékk upptökuna af
meinta harðræðinu afhenta.
Lögreglumaðurinn taldi að þegar
lögreglan óskaði eftir sömu upp-
töku hafi hún ekki fengið hana
afhenta. Því neitar forsvarsmaður
veitinga staðarins og segir í úrskurði
Persónu verndar að framkvæmda-
stjóri hans haldi því fram að hann
hafi afhent lögreglu upptökurnar
jafnskjótt og þeirra var óskað. Hann
gaf jafnframt skýrslu um málið.
Í niðurstöðu Persónuverndar
segir að framkvæmdastjóra veit-
ingastaðarins hafi verið óheimilt að
afhenda lögmanninum upptökuna,
honum hafi einungis verið heimilt
að afhenda lögreglu hana. - vg
Mátti ekki afhenda upptöku af meintu harðræði lögreglu öðrum en lögreglu:
Óheimilt að afhenda upptöku
KRINGLAN Atvikið átti sér stað á
veitingastaðnum Portinu í Kringlunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HEILBRIGÐISMÁL Embætti land-
læknis og heilsuklasinn Heilsu-
vin skrifa á morgun undir sam-
starfssamning um „Heilsueflandi
samfélag“ í Mosfellsbæ.
„Heilsueflandi samfélag miðar
að því að þróa samfélagslegan
ramma utan um markvissa og
heildræna heilsueflingu,“ segir á
vef Landlæknis. Verkefnið eigi að
ná til allra aldurshópa í gegnum
skóla, vinnustaði og starf eldri
borgara og stuðla að góðri heilsu-
og auknum lífsgæðum. - gar
Landlæknir og Mosfellsbær:
Nýr rammi um
heilsueflingu
DÓMSMÁL Baldur Kolbeinsson
var dæmdur í tíu mánaða óskil-
orðsbundið fangelsi í Héraðsdómi
Suðurlands fyrir helgi fyrir að
hafa ráðist á þrjá fangaverði á
Litla-Hrauni fyrr á árinu.
Hann veittist með ofbeldi að
fangavörðunum og sló meðal
annars ítrekað í höfuð eins
þeirra svo gleraugu hans fóru af.
Baldur afplánar þegar dóm fyrir
fjölmörg afbrot. Honum er einnig
gert að greiða allan málskostnað
vegna dómsmálsins. - vg
Fangi fær tíu mánaða dóm:
Dæmdur fyrir
árás á þrjá verði
KYNBUNDINN LAUNAMUNUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
MINNKANDI MUNUR Þrátt fyrir að launamunur kynjanna sé enn til staðar hefur hann
minnkað síðan árið 2009. Á myndinni til vinstri má sjá hversu mikið launamunurinn
hefur minnkað í krónum talið, annars vegar árið 2009 og hins vegar árið 2012.
48.654
35.944
3,7%
3,4%
.
2012
2009
Munur á dag-
vinnulaunum
kynja í pró-
sentum
Munur á heildar-
launum kynja í
krónum