Fréttablaðið - 01.10.2013, Qupperneq 12
1. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 12
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Við erum 60 ára í dag
Kæru viðskiptavinir
Þökkum ykkur fyrir traust og góð viðskipti í gegnum árin.
Í tilefni afmælis okkar og haustdaga í Mjódd bjóðum við ykkur
60% afslátt af allt að 6 flíkum, fimmtudaginn 3. október 2013
Starfsfólk Efnalaugarinnar Bjargar Mjódd
Efnalaugin Björg Mjódd, Álfabakka 12, Sími: 557-2400.
www.facebook.com/bjorgmjodd
Tveir af fimm læknum úr hjarta-
og brjóstholsskurðlækningateymi
Landspítalans sögðu upp störfum í
sumar vegna óánægju með starfs-
aðstöðu og kjör. Þeir hafa samþykkt
að koma aftur til starfa í þeirri trú
að aðbúnaður á spítalanum verði
bættur og að tímar niðurskurðar
séu að baki.
Bjarni Torfa-
son, yfirlækn-
ir hjarta- og
brjósthols skurð-
lækninga, stað-
festir að þessi
staða hafi komið
upp í sumar.
„En þeir ætla
að leggja okkur
áfram lið í þeim
hremmingum sem við förum í gegn-
um þessa dagana,“ segir Bjarni.
Ástæður þess að læknarnir töldu
rétt að hverfa frá Landspítalan-
um eru margþættar, segir Bjarni.
„Aðstaðan, heilsuspillandi hús næðið
sérstaklega, er afleit. Launin eru
mjög lág miðað við það sem býðst
annars staðar. Síðan hafa menn
daufheyrst við því að endurnýja
tækjakostinn. Þetta tæknivædda
teymi sem hér um ræðir er svo
algjörlega háð því að nýjasta tækni
sé aðgengileg. Þetta gerir starfsem-
ina erfiða og einnig að halda mönn-
um í vinnu.“
Beðið eftir góðum fréttum
Spurður hvort raunveruleg hætta
sé á því að teymið liðist í sundur
svarar Bjarni að „eins og er“ hafi
læknarnir orðið við beiðni um að
halda áfram störfum. Teymið mun
hins vegar ekki vera komið allt til
starfa fyrr en í lok febrúar á næsta
ári. Bjarni segir að það þýði einfald-
lega að gríðarlegt álag verði á þeim
læknum sem fyrir eru. „Þá ætti
þessi hnútur að byrja að rakna upp,
að því gefnu að í millitíðinni komi
ekki slæmar fréttir sem breyta
þessari stöðu. Menn hafa verið að
bíða eftir góðum fréttum, og eru
spenntir að heyra þær. Það er mjög
brothætt ástand á Landspítalanum
og það má ekkert bera út af. Það
eru heldur engar töfralausnir til,
eins og að atvinnulausir læknar
frá Asíulöndum komi hér inn í sér-
fræðistöður. Ekki er heldur hægt
að fá starfandi sérfræðinga t.d.
frá Norður löndunum til að koma í
afleysingar; menn koma ekki hingað
fyrir einn þriðja af laununum sem
þeir eru með heima hjá sér.“
Ófremdarástand
„Við erum líka orðin langeyg eftir
því að heyra eitthvað annað en að
við séum að eyða peningum,“ segir
Bjarni. „Við heyrum aldrei neitt
jákvætt um það sem við erum að
gera. Við heyrum aldrei neitt um
það sem við erum að framleiða.
Við framleiðum lífsgæðaár, það er
okkar afurð. Í því felst bæði að bæta
líðan og lengja líf fólks. Það er það
sem okkar starf gengur út á,“ segir
Bjarni sem bætir við að heilsu-
hagfræðin hafi verkfæri til að sýna
fram á það svart á hvítu hvað græð-
ist í krónum og aurum, ef það sé sá
mælikvarði sem menn vilja nota.
„Það eru gríðarlegar upphæðir í
þessu fólgnar. En það er bara eng-
inn sem talar okkar máli í þessu, og
þar með máli sjúklinganna.
Hér vísar Bjarni til mæli-
kvarða um hvert áunnið „lífs-
gæðaár“ (Quality adjusted life
year – QUALY). Síðan 1986 hafa
verið gerðar þúsundir hjarta skurð-
aðgerða á Landspítalanum, en þessi
mælikvarði hefur verið notaður til
að meta hvort reynist hagkvæmt að
hefja meðferð. „En þessi aðferð til
að meta árangur, og í tilfelli hjarta-
skurðlækningateymisins hleypur
hann á milljörðum, er framandi
fyrir fólk af því að henni er ekki
haldið á lofti. Til þess eru menn of
uppteknir af eyðslunni í heilbrigðis-
kerfinu en ekki framleiðslu lífs-
gæðaára,“ segir Bjarni. „Þeir sem
koma að hjartaskurðlækningum á
Íslandi eru ekki að sóa fé.“
Líf og dauði
Spurður hvort biðlistar á Land-
spítalanum hafi lengst þar sem
skurðteymið er bara á hálfum
afköstum segir hann svo vera og
langur biðlisti sé líka eftir hjarta-
þræðingu; sjúkdómsgreiningunni.
„Í þeim hópi er fjöldi manns sem
þarf eflaust að fara í hjartaskurð-
aðgerð að lokinni sjúkdómsgrein-
ingu. Ákveðin prósenta þess hóps
á engan möguleika á að ná heilsu
öðruvísi en í gegnum opna hjarta-
skurðaðgerð. Svipaða sögu er einnig
að segja um biðlista eftir aðgerðum
þar sem ekki er um lífið að tefla,
þeir lengjast stöðugt,“ segir Bjarni.
Þolinmæði skurðlækna á þrotum
Við lá að hjarta- og brjóstholsskurðlækningateymi Landspítalans liðaðist í sundur. Tveir af fimm læknum sögðu þá upp störfum en hafa
síðan fallist á að starfa áfram. Bjarni Torfason yfirlæknir segir launakjör læknanna hér útiloka að fylla í skörð þeirra sem fara.
BJARNI
TORFASON Í AÐGERÐ Frá 1986 hafa verið framkvæmdar þúsundir hjartaskurðaðgerða á Íslandi. Árangurinn er með því besta sem þekkist í
heiminum. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES