Fréttablaðið - 01.10.2013, Síða 15

Fréttablaðið - 01.10.2013, Síða 15
ÞRIÐJUDAGUR 1. október 2013 | SKOÐUN | 15 Við erum stödd á sjúkrahúsi þar sem liggja margir sjúk- lingar með ýmis vandamál, sumir liggja á venjulegri deild, þeir veikari á gjörgæsludeild- inni undir stöðugu eftirliti og bundnir við tæki sem pípa ef eitthvað fer úrskeiðis. Ákvarð- anir eru teknar á öllum deild- um spítalans á hverjum degi um það hvernig meðferð skuli háttað og hvaða rannsóknir ein- staklingar eigi að undirgangast, annaðhvort til þess að staðfesta eða hrekja greiningu þá sem unnið er með hverju sinni eða til þess að fylgjast með því að sú meðferð sem veitt er sé að skila árangri. Inngripin eru margvís- leg, allt frá því að gefa töflur til þess að skera fólk upp eða gefa því geislameðferð vegna ill- kynja sjúkdóms. Markmiðið er að skila þessum einstaklingum aftur út í samfélagið til þess að þeir geti notið lífsins áfram, en líka til þess að þeir haldi áfram að vera nýtir þjóðfélagsþegnar og geti lagt sitt af mörkum, í hverju sem það kann að felast. Nauðsynlegur spítali Ekki er gerður neinn greinar- munur á efnahag, menntun, kyni eða aldri þeirra sem leita á þennan spítala. Þar er að finna öflugt fagfólk sem vinnur þverfaglega og í teymi að því að veita bestu mögulegu þjónustu hverju sinni, með sama mark- mið fyrir alla, að líkna þeim og lækna þá sem þangað leita. Eðli- lega eru hæðir og lægðir í slíku starfi og þeir sem standa á gólf- inu eru á stundum örþreyttir og teygðir en þeir gefa samt sitt besta, annað er ekki í boði. Þetta er landsliðið, þangað leita allir sem ekki geta fengið þjónustu annars staðar. Það að reyna ekki er ekki til í orðabók þeirra sem þarna starfa og gildir einu hvert vandamálið er. Stundum tapar maður orrustu og lýtur í lægri hlut fyrir þeim sem kemur að sækja viðkomandi. Sumir tengja slíkt við trúarbrögð, aðrir við gang lífsins. En viðureignirn- ar eru svo miklu, miklu fleiri sem vinnast á hverjum degi og það skapar ánægju og vissu um það að starfið skiptir máli sem unnið er á þessum spítala. Þegnar landsins eru sammála því að þessi spítali eigi rétt á sér, hann sé hreinlega nauðsyn- legur, og þeir styðja ötullega við bakið á honum með því að gefa gjafir og fé og borga skatt- ana sína, enda vita þeir ekki hvenær þeir kynnu að þurfa á þjónustu hans að halda. Þetta er eins konar trygging fyrir því að hann haldi áfram sínu öfl- uga starfi, mennti heilbrigðis- starfsfólk á heimsmælikvarða og stundi vísindastarf af hæsta gæðaflokki með fjölda rit- rýndra greina í tímaritum víða um heim. Spítalinn er næsta sjálfbær og getur sinnt öllum þeim verkum sem til er ætlast af honum og býr yfir öflugum tækjakosti til þess að tryggja að svo sé. Hann getur gert allar þær rannsóknir sem þarf til þess að vel menntaðir og eftir- sóknarverðir starfskraftar hans geti sinnt sjúklingunum á sem bestan hátt og tryggt öryggi þeirra. Spítalinn er eftirsóknar- verður vinnustaður. Ekkert má út af bregða Það er nánast ekki til sá ein- staklingur í þjóðfélaginu sem hefur ekki fengið að kynnast með beinum eða óbeinum hætti því sem fram fer innan veggja spítalans, annaðhvort sem sjúk- lingur eða aðstandandi. Það er tilfinningalegur rússibani sem einkennir þessi samskipti oft á tíðum og er heiðarleiki og gagnsæi aðalsmerki þeirrar þjónustu sem hann veitir af bestu getu hverju sinni. Þegar á móti blæs standa menn saman um að leysa úr þeim vanda sem upp kemur, hversu smávægi- legur sem hann kann að vera, og tala saman. Sú samfélags- lega ábyrgð sem hvílir á herðum ráðamanna, stjórnenda, starfs- fólks og almennings er öllum ljós. Í þessum pistli er rætt um ímyndaðan spítala og nauðsyn þess að taka rökréttar ákvarð- anir hverju sinni með hag sjúk- lingsins að leiðarljósi. Starf- semi spítalans snýst nefnilega eingöngu um það að líkna og lækna, um það ríkir víðtæk sátt í samfélagi þessa spítala. Þegar læknar taka ákvarðanir um endurlífgun byggir það á líkum á árangri og því hversu lífvæn- legur sjúklingurinn er. Stundum tekur maður ákvörðun um að hætta. Ef við yfirfærum þessa myndlíkingu á Landspítalann erum við núna í miðri endur- lífgun og það má ekkert út af bregða því þá missum við sjúk- linginn. Adrenalín! Endurlífgun eða ekki Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameins- félagsins til að berjast gegn krabbameini hjá konum. Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar enn á ný með bleikum taxaljósum og munu bílstjórarnir taka fagnandi á móti þér. Taktu bleikan bíl næst þegar þú pantar leigubíl! „Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október. Styrkjum starfsemi Krabbameins- félagsins Hreyfill / Bæjarleiðir er styrktaraðili árvekniátaks Krabbameinsfélagsins í október og nóvember Tökum bleikan bíl! HENSON LAGERSALA Aðeins í fimm daga miðvikud. 2. ok tóber kl.11-18. - fimmtud. 3. o któber kl.11-18 . - föstud. 4. ok tóber kl.11-18 - laug ard. 5. október kl.11-16. - sun nud. kl. 13-17. Staðsetning: B rautarholti 24 HEILSA Teitur Guðmundsson læknir Það er nánast ekki til sá einstaklingur í þjóðfélag- inu sem hefur ekki fengið að kynnast með beinum eða óbeinum hætti því sem fram fer innan veggja spítalans, annaðhvort sem sjúklingur eða aðstandandi. AF NETINU Hvaðan er svona hugmynd komin? Ég er nokkuð sammála fíladelfíumanninum sem álítur að það sé heldur hallærislegt hjá borgaryfirvöldum að vera að atast í trúarsamkomunni Hátíð vonar. Þessi regnboga- gjörningur á gangbrautinni við Laugardalshöll var út í hött. Hvaðan er svona hugmynd komin? En það verður að segjast eins og er að trú af því tagi sem þarna er boðuð er flestum Íslendingum framandi. Prédíkari af sauða- húsi Franklins Graham er frekar eins og sölumaður en kristinn klerkur. Öll umgjörðin minnir líka á sölumennsku. Og bókstafstrú eins og þarna er iðkuð er afar fjarlæg hinni mildu íslensku þjóðkirkjukristni. Þess vegna virkaði íslenski biskupinn út úr kú þar sem hún sat við hliðina á Franklin Graham. Það má vera að nægilega stór prósenta þjóðarinnar sé spennt fyrir svona kristindómi til að sækja slíka samkomu, aðrir hafa komið af forvitni. En almennt eru Íslendingar frjálslyndir í trúmálum [...] eyjan.pressan.is/silfuregils Egill Helgason

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.