Fréttablaðið - 01.10.2013, Síða 16
1. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT
Lestrarhátíð í Reykjavík er ár legur
viðburður og verður í ár helguð
borgar ljóðum,“ segir Kristín Viðars-
dóttir, verkefnastjóri Reykjavíkur
Bókmenntaborgar, spurð um hátíð-
ina Ljóð í leiðinni sem hefst í dag.
„Það verða ljóð úti um allan bæ, ljóð-
línur utan á og inni í strætó, í strætó-
skýlum, veggspjaldasýning og alls
kyns viðburðir. Áherslan er lögð á
að koma ljóðinu út til borgarbúa. Á
vefjunum okkar, bæði farsímavefnum
og aðalvefnum, verður síðan hægt að
lesa öll Þessi ljóð í heild.“
Margir aðilar koma að hátíðinni,
meðal annars mun Borgarbókasafnið
útbúa ljóðakort af Reykjavík. Kortið
geymir staði í Reykjavík sem skáld
hafa ort um, hvort sem er götur, hverfi
eða hús. Þegar kortið er skoðað er
hægt að smella á tiltekinn stað og fá
upplýsingar um ljóðið og jafnvel lesa
það, því verið er að skanna ljóðin inn.
„Þetta verður ansi myndarlegt safn af
ljóðum sem fólk getur nálgast í tilefni
af hátíðinni.“
Lestrarhátíðin verður sett af borgar-
stjóranum í Reykjavík, Jóni Gnarr,
klukkan 11 í dag og opnar hann um
leið ljóðakortið. Síðan rekur hver við-
burðurinn annan og Kristín hvetur
fólk til að kynna sér dagskrána, sem
er að finna á heimasíðu Bókmennta-
borgarinnar. En hvað geta þeir sem
vilja taka virkan þátt í verkefninu
gert? „Þeir geta tekið þátt með því að
senda okkur efni, hvort heldur eru ljóð-
línur eða heil ljóð, frumsamin eða eftir
aðra,“ segir Kristín. Það er gert með
því að nota myllumerkið (e. hashtag)
#lestrar hatid og setja inn ljóð, ljóðlínur
eða ljóðrænar myndir á samfélagsvef-
ina Facebook, Twitter og Instagram.
Úrval þess efnis verður síðan birt á vef
Bókmenntaborgarinnar, bokmennta-
borgin.is.
Hátíðinni lýkur hinn 31. október
með ljóðarútuferð um Reykjavíkur-
borg þar sem skáld sem eiga ljóð í
bókinni Ljóð í leiðinni munu lesa upp.
fridrikab@frettabladid.is
Áhersla á að koma
ljóðinu til borgarbúa
Lestrarhátíðin Ljóð í leiðinni hefst í dag. Þemað í ár er borgarljóð og verður ljóðum og ljóð-
línum meðal annars komið fyrir á strætisvögnum og í biðskýlum, opnað ljóðakort af Reykja-
vík, gefi n út ljóðabók og fl eira og fl eira. Almenningur er hvattur til að taka virkan þátt.
LJÓÐ Í LEIÐINNI „Þetta verður ansi myndarlegt safn af ljóðum sem fólk getur nálgast í tilefni af hátíðinni,“ segir Kristín Viðarsdóttir,
verkefnastjóri Bókmenntaborgar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Elsku dóttir mín, systir okkar,
mágkona og frænka,
SÓLVEIG REYNISDÓTTIR
Brekkuási 5, Hafnarfirði,
sem lést 24. september, verður jarðsungin
frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn
2. október kl. 15.00.
Dóra S. Guðmundsdóttir
Eyjólfur Reynisson Guðbjörg S. Sigurz
Sigrún Reynisdóttir
og systkinabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
JÓHANNA ENGILRÁÐ
ALEXANDERSDÓTTIR
hjúkrunarheimilinu Skjóli við Kleppsveg,
áður Efstasundi 77, Reykjavík,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Skjóli
laugardaginn 28. september.
Þröstur G. M. Eyjólfsson Karen Jónsdóttir
Inga Dóra Eyjólfsdóttir
Alexander F. Eyjólfsson Hjördís Sveinsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn, barnabarnabarnabarn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
HELENA RAKEL MAGNÚSDÓTTIR
Sólvangsvegi 3, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum í Fossvogi,
þriðjudaginn 24. september.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Katrín Markúsdóttir Pétur Th. Pétursson
María Markúsdóttir Sigtryggur Stefánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
KARIN MAGNÚSSON
er látin.
Útförin verður gerð frá Garðakirkju á Álftanesi fimmtu daginn
3. október klukkan 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast Karinar er bent á minningarsjóð líknardeildar
Landspítalans Kópavogi.
Orri Ólafur Magnússon
Áslaug Emma Magnússon
Tatjana og Rudolf Zens
og barnabörnin.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR SIEMSEN
lyfjafræðingur
Svöluhrauni 12, Hafnarfirði,
lést á heimili sínu aðfaranótt laugardagsins
28. september. Útför hans fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn
8. október næstkomandi kl. 15.00.
Auður Snorradóttir
Guðmundur Siemsen Hrund Ottósdóttir
Snorri Siemsen Jón Kjartan Ágústsson
Rósa Siemsen Jóhann David Barðason
Anna Sigríður Siemsen
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
vináttu og hlýju vegna andláts og útfarar
ástkærrar eiginkonu minnar, móður,
tengdamóður og ömmu,
SJAFNAR ÞÓRARINSDÓTTUR
Hrísmóum 1, Garðabæ.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjartadeildar
Landspítalans.
Óli Kr. Jónsson
Jón Þór Ólason Ragna Soffia Jóhannsdóttir
Gústav Óli Jónsson
Edda Líf Jónsdóttir
Bjartur Þór Jónsson
Þökkum auðsýnda samúð
við andlát og útför
GUÐNÝJAR MAGNÚSDÓTTUR
frá Öngulsstöðum.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Furuhlíðar,
Dvalarheimilinu Hlíð, fyrir einstaka umönnun.
Sigurgeir Halldórsson
börn, tengdabörn og fjölskyldur.
Kvennaskólinn í Reykjavík var settur í
fyrsta skipti þennan mánaðardag árið
1874. Hann er einn af elstu skólum
landsins. Fyrsti skólastjóri Kvenna-
skólans var Þóra Melsteð. Hún var
stofnandi skólans, ásamt manni sínum,
Páli Melsteð. Upphaflega var Kvenna-
skólinn til húsa á heimili þeirra hjóna
við Austurvöll. Árið 1878 létu þau rífa
húsið og byggðu nýtt og stærra hús
á sama stað á eigin kostnað en árið
1909 flutti skólinn í eigið húsnæði að
Fríkirkjuvegi 9.
Eins og nafnið gefur til kynna var
Kvennaskólinn eingöngu fyrir stúlkur
og framan af var töluverð áhersla lögð
á fatasaum, handavinnu og teikningu í
skólanum. Þannig var það fyrstu öldina
sem hann starfaði en haustið 1977 hóf
fyrsti pilturinn þar nám.
ÞETTA GERÐIST: 1. OKTÓBER 1874
Kvennaskólinn tók til starfa
HEFÐ Peysufatadagurinn er fastur liður í
félagslífi Kvennaskólans.
MERKISATBURÐIR
1933 Ásta Magnúsdóttir verður fyrst kvenna til að gegna opin-
beru embætti á Íslandi er hún er skipuð ríkisféhirðir.
1947 Tekin er upp skömmtun á ýmsum varningi, eins og korn-
vöru, kaffi, sykri, búsáhöldum og hreinlætisvörum, til að spara
gjaldeyri.
1955 Fyrsta kjörbúðin er opnuð í Reykjavík, Liverpool í Austur-
stræti.
1979 Mesta sólarhringsúrkoma hér á landi mælist á Kvískerjum
í Öræfum, 243 millimetrar á einum sólarhring.
1981 Ökumenn og far-
þegar í framsæti bif-
reiða eru skyldaðir til að
spenna öryggisbeltin við
akstur.
2003 Eyririnn er lagður
niður og ein króna verð-
ur minnsta gjaldmiðils-
eining á Íslandi.