Fréttablaðið - 01.10.2013, Page 19
ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2013
BÍLAR
E
inn af sögufrægari
bílum íslenskrar bíla-
sögu er „Haga músin“,
eða Renault 11CV, sem
fluttur var inn í 195
eintökum í einu lagi
árið 1947 án tilskil-
inna leyfa, á tímum innflutnings-
hafta. Dómsmál gekk út af þess-
um innflutningi, en á meðan
dvöldu þessir bílar innan girð-
ingar nálægt Haga við Hofsvalla-
götu og biðu þess að gegna mik-
ilvægu hlutverki. Þaðan er heit-
ið skemmtilega „Hagamúsin“
komið. Voru þeir af árgerð 1946.
Fluttir inn án tilskilinna leyfa
Innflutningsaðili þessara bíla var
Reinhard Lárusson og átti hann
fyrirtækið Columbus hf. sem
hafði umboð fyrir Renault-bíla á
Íslandi. Reinhard hafði árið áður
flutt inn 147 Renault-bíla, en
þegar kom að þessum innflutn-
ingi hafði hann aðeins fengið
innflutnings- og gjaldeyris leyfi
fyrir fjórum bílum, en svo voru
allt í einu komnir 195 bílar til
landsins og var hann þá kærður.
Fór svo að Reinhard var dæmdur
til hárra fjársekta og allir bílarn-
ir, fyrir utan þá fjóra sem hann
hafði fengið leyfi fyrir, gerð-
ir upptækir af ríkinu. Var þeim
komið fyrir við Haga og máttu
dúsa þar í rúmt ár. Þá var tekin
ákvörðun um að styrkja nýstofn-
að happdrætti SÍBS og voru bíl-
arnir notaðir sem aðalvinningar
í fyrsta stórhappdrætti hins nýja
félags.
Fólksbílunum ölgaði
skyndilega um sex prósent
Innflutningur þessara bíla vakti á
sínum tíma mikla athygli en árið
1947 voru fluttir inn 7.164 bílar,
þar af 3.479 fólksbílar. Því fjölg-
aði fólksbílunum skyndilega um
sex prósent með þessum innflutn-
ingi Reinhards. Undir vélarhlíf-
inni á Renault 11CV var fjögurra
strokka vél sem skilaði tíu hest-
öflum. Ekki hafa mörg eintök af
þessum sérstaka bíl varðveist en
eitt þeirra á þó Ólafur Steinars-
son, nýráðinn sveitarstjóri á Þórs-
höfn, en hann gerði bílinn upp á
þann ágæta hátt sem á myndinni
sést. Hann eignaðist bílinn fjór-
tán ára og gerði hann upp með að-
stoð föður síns og annarra góðra
manna. Bíllinn er þó staddur í
Reykjavík nú, þar sem Ólafur
alla jafna býr. Annað eintak er á
byggðasafninu í Görðum skammt
frá Akranesi og bíll í ökuhæfu
ástandi í Vík í Mýrdal. Enn frem-
ur stendur til að gera upp einn á
samgönguminjasafninu að Stóra-
gerði í Skagafirði.
Heimilisbíll margra Íslendinga
Svo skemmtilega vill reyndar
til að á heimili greinarritara
var svona bíll heimilisbíllinn til
margra ára og var hann aðal-
lega keyrður af móður hans, en
annar bíll var tiltækur á heim-
ilinu. Hann fór nokkrar söguleg-
ar ferðir út á land og þá yfirleitt
troðinn af farþegum og farangri.
Þar sem foreldrar móðurinnar
á heimilinu bjuggu á Siglufirði
voru ferðir tíðar þangað og varð
á þeim tíma að fara um Siglu-
fjarðarskarð, fyrir gerð Stráka-
ganga. Urðu þá farþegar oft að
fara úr bílnum og ýta honum upp
erfiðustu kaflana, enda engir
kraftar í kögglum „Hagamúsar-
innar“. Minnisstæð eru einnig
þau mistök greinarritara á frost-
köldum morgni að leggja varir
sínar að stálgrind sem stóð upp
úr framsætunum og festa þær
rækilega á helfrosnu stálinu.
Reyndist þrautin þyngri að að-
skilja þær og stöngina köldu.
HAGAMÚSIN Á STAÐ Í HJÖRTUM MARGRA
Árið 1947 voru fluttir inn 195 Renault 11CV-bílar án tilskilinna innflutnings- og gjaldeyrisleyfa og gerðir upptækir af ríkinu.