Fréttablaðið - 08.10.2013, Blaðsíða 4
8. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
45,6% landsmanna keyptu föt, skó
eða íþróttavörur í gegnum netið
á síðasta ári.
Þetta er tvöfalt hærra hlutfall en
fyrir fimm árum, þegar það var 22
prósent. Heimild: Hagstofa Íslands
EFNAHAGSMÁL Tilkynnt verður
á næstu dögum hvenær fyrsta
áfangaskýrsla hagræðingarhóps
ríkisstjórnarinnar verður kynnt,
segir Sigurður Már Jónsson, upp-
lýsingafulltrúi ríkisstjórnarinn-
ar. Alls bárust 570 ábendingar
frá almenningi um það sem betur
mætti fara í ríkisfjármálunum.
Ekki stendur til að birta ábend-
ingarnar opinberlega og hefur
þingflokkur Vinstri grænna farið
formlega fram á að fá ábending-
arnar, fundargerðir hagræðingar-
hópsins og önnur gögn afhent.
Sigurður segir að flestum
spurningum þingflokks Vinstri
grænna verði væntanlega svarað
með birtingu áfangaskýrslunnar.
Virða verði nafnleynd þeirra sem
sent hafa inn ábendingar.
Spurður hvort til standi að eyða
persónuupplýsingum úr ábending-
unum og birta þær að því loknu
opinberlega segir hann að ekki sé
útséð með að þörf verði á því.
Í svari Ásmunds Daða Einars-
sonar, formanns hagræðingar-
hópsins, við fyrirspurn sem barst
í gegnum vefinn spyr.is, segir að
margir hefðu veigrað sér við að
senda inn ábendingar nema gegn
nafnleynd. Þar segir jafnframt
að hópurinn telji sér ekki fært að
fara yfir hverja einustu ábend-
ingu og eyða persónuupplýsingum
með birtingu í huga. - bj
Tilkynnt á næstu dögum hvenær hagræðingarhópur ríkisstjórnarinnar skilar fyrstu áfangaskýrslunni:
Ábendingar almennings ekki opinberaðar
SAMGÖNGUR „Miðað við þær for-
sendur sem ráðherrann leggur upp
með líst okkur vel á að setja hluta
vegaframkvæmda í einkafram-
kvæmd,“ segir Hreinn Haraldsson
vegamálastjóri. Hanna Birna Krist-
jánsdóttir innanríkisráðherra sagði
við Fréttablaðið í gær að hún vildi
auka samstarf hins opinbera við
einkaaðila í vegaframkvæmdum.
Hreinn segir að Vegagerðin sé
nú að skoða þá kosti sem í boði eru.
Hann tekur sem dæmi að Sunda-
braut í Reykjavík, Svínvetninga-
braut í Húnavatnssýslu og vegur
um Öxi séu vegaframkvæmdir sem
hægt væri að setja í einkafram-
kvæmd. Þær uppfylli þau skilyrði
sem innanríkisráðherra setur en
það er að slíkar framkvæmdir komi
ekki til álita nema vegfarendur hafi
kost á annarri leið samhliða einka-
framkvæmdinni.
Svínvetningabraut myndi liggja
fyrir sunnan Blönduós og stytta
hringveginn um 12 til 15 kílómetra
eftir því hvaða vegstæði yrði valið.
Vegfarendur hefðu val um hvort
þeir færu um Blönduós eða færu
Svínvetningaleið.
Vegurinn um Öxi gæti legið frá
Háubrekku í Berufjarðardal að
Reiðeyri í Berufirði og myndi stytta
leiðina milli suðurhluta Austfjarða
og Egilsstaða um 60 kílómetra. Fólk
gæti valið um hvort það færi firðina
eða um Öxi.
Sundabraut gæti stytt norður-
leiðina um níu til tíu kílómetra. Þar
hefðu menn val um hvort þeir færu
um Ártúnsbrekku og Vesturlands-
veg eða hina nýju Sundabraut.
Júlíus Vífill Ingvarsson borgar-
fulltrúi segir sér lítast vel á að fara
í framkvæmdir við Sundabraut.
„Mér líst vel á að fólk hafi val um
það hvort það greiðir beint fyrir að
nota samgöngumannvirki eða ekki.
Sundabraut getur verið góður kost-
ur hvað þetta varðar.“
Júlíus Vífill segir það skoðun
langflestra að Sundabraut sé arð-
bær framkvæmd en menn verði að
hafa í huga að stilla gjaldtöku í hóf.
Síðustu spár um umferð um Sunda-
braut, sem eru raunar nokkurra
ára gamlar, gera ráð fyrir að 20 til
30 þúsund bílar færu um brautina
daglega.
Spurningar vakna um hvaða
einkaaðilar gætu verið tilbúnir að
taka að sér að fjármagna vegafram-
kvæmdir. Lífeyrissjóðirnir komu til
að mynda að fjármögnun Hvalfjarð-
arganga.
Þórey Þórðardóttir, fram-
kvæmdastjóri Landssamtaka lífeyr-
issjóða, segir að uppfylli fjárfesting
það að vera til hagsbóta fyrir sjóð-
félagana séu sjóðirnir tilbúnir að
taka þátt, annars ekki. Menn vegi
saman áhættu og ávöxtun í hverri
fjárfestingu og taki ákvörðun út frá
því. Það gildi jafnt um fjárfestingu
í vegaframkvæmdum sem öðrum
framkvæmdum.
johanna@frettabladid.is
SVONA ERUM VIÐ
HAGRÆTT Hagræðingarhópurinn leitar
leiða til að hagræða í ríkisrekstrinum
en víða hefur verið hagrætt verulega
síðustu ár, til dæmis á Landspítalanum.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓLK Ásdís Kristjánsdóttir hag-
fræðingur hefur verið ráðin for-
stöðumaður nýs efnahagssviðs
Samtaka atvinnulífsins.
Ásdís starfaði áður hjá fjár-
málaráðuneytinu og Kaupþingi.
Hún hefur veitt greiningardeild
Arion banka forstöðu undan-
farin þrjú ár, að því er segir á
vef SA. Þar kemur einnig fram
að efnahagssviðinu sé ætlað að
styrkja samtökin á sviði hagrann-
sókna og efla greiningu á stöðu
íslenskra fyrirtækja og efnahags-
lífs. - gar
Nýtt efnahagssvið hjá SA:
Ráðin frá Arion
í forstöðustarf
ÁSDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR Forstöðu-
maður greiningardeildar Arion skiptir
um starf. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓLK Karen Kjartansdóttir
fréttakona hefur verið ráðin í
starf upplýsingafulltrúa Lands-
sambands íslenskra útvegs-
manna (LÍÚ).
„Karen er bókmenntafræðing-
ur og hefur starfað við fjölmiðla
frá árinu 2005. Hún hefur lengst
af unnið á Fréttablaðinu en hóf
störf 2010 á fréttastofu Stöðvar
2 og gegndi síðast starfi vara-
fréttastjóra á Stöð 2,“ segir á vef
LÍÚ. - gar
Fréttakona í nýtt starf:
Karen ráðin til
útvegsmanna
Lundey
Viðey
Gufunes
Grafarvogur
Álfsnes
Kollafj örður
Geldingarnes
Leiruvogur
Þerney
Rauða línan sýnir hvar fyrirhugað
vegstæði Sundabrautar liggur.
Hvalfjarðargöng eru eina stóra einkaframkvæmdin í vegamálum á Íslandi.
Hlutafélagið Spölur var stofnað um gangagerðina. Árið 2011 var stærsti
einstaki hluthafinn í Speli Faxaflóahafnir. Aðrir stórir hluthafar voru Ríkis-
sjóður Íslands, Elkem á Íslandi, Hvalfjarðarsveit og Vegagerðin.
Bandaríska líftryggingarfélagið John Hancock, Mutual Life Insurance
inc., tók að sér stærstan hluta langtímafjármögnunar gangagerðarinnar. Þá
komu að fjármögnun verksins íslenskar lánastofnanir, einkum lífeyrissjóð-
ir. Landsbréf hf. sáu um skuldabréfasölu til fimmtán íslenskra lífeyrissjóða.
Hvalfjarðargöng voru einkaframkvæmd
Sundabraut talin henta sem
einkaframkvæmd í vegagerð
Vegagerðinni líst vel á að setja hluta vegaframkvæmda í einkaframkvæmd. Sundabraut er nefnd sem dæmi
um verkefni sem gæti hentað til slíks. Lífeyrissjóðir gætu komið að fjármögnun verksins verði ávöxtun tryggð.
VEGSTÆÐI SUNDABRAUTAR
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Fimmtudagur
10-18 m/s V-til, annars yfi rleitt 8-13.
BREYTINGAR Dregur úr vindi og úrkomu á morgun og verður yfirleitt bjart og kalt
fram eftir degi. Gengur því næst í sunnanátt með heldur hlýnandi veðri og rigningu
vestan til á fimmtudag.
2°
3
m/s
3°
4
m/s
4°
3
m/s
8°
7
m/s
Á morgun
8-15 A-til, annars hægari.
Gildistími korta er um hádegi
9°
8°
8°
10°
9°
Alicante
Basel
Berlín
25°
18°
17°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
18°
18°
17°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
15°
15°
26°
London
Mallorca
New York
20°
25°
20°
Orlando
Ósló
París
30°
17°
20°
San Francisco
Stokkhólmur
18°
16°
2°
3
m/s
5°
5
m/s
3°
2
m/s
4°
3
m/s
1°
2
m/s
4°
4
m/s
-2°
5
m/s
4°
2°
5°
2°
0°
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sigurður Helgi Grímsson sigurdurhg@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
20-30
þúsund bílar mundu fara
um Sundabrautina daglega
samkvæmt nýjustu spám,
sem eru raunar nokkurra
ára gamlar.