Fréttablaðið - 08.10.2013, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 08.10.2013, Blaðsíða 30
8. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 22 LEIKLIST ★★★ ★★ Jeppi á Fjalli HÖFUNDUR LUDVIG HOLBERG LEIK- STJÓRN BENEDIKT ERLINGSSON ÞÝÐING BRAGI VALDIMAR SKÚLASON LEIKMYND GRETAR REYNISSON BÚNINGAR AGNIESZKA BARANOWSKA LÝSING BJÖRN BERGSTEINN GUÐMUNDSSON HLJÓÐ GUNNAR SIGUR- BJÖRNSSON TÓNLIST OG TEXTI MEGAS OG BRAGI VALDIMAR SKÚLASON Jeppi á Fjalli eftir Ludvig Holberg er dönsk sveitaklassík frá öndverðri átjándu öld, sniðin eftir frönsk- um og rómverskum munstrum. Þó að Danir hafi látið Jeppa og aðrar kómedíur Holbergs sér vel líka nú á þriðju öld, fer því víðs fjarri að þær séu einhverjar heimsbókmenntir. Byggingin er sjaldnast með mikl- um glæsibrag né persónurnar geð- ugar. Boðskapnum einatt troðið ofan í kok áhorfandans. Ætli satíran um lærdómshrokann, Erasmus Mont- anus, sé ekki einna skást þeirra, sú sem helst mætti hafa gaman af nú á tímum? Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi einhvers konar kabarett-músík- al upp úr Jeppa á Nýja sviðinu nú fyrir helgi. Benedikt Erlingsson leikstýrir og kippir inn á sviðið heilu bandi. Megas semur tónlist og söngtexta ásamt Baggalútnum Braga Valdimar Skúlasyni, sem þýðir leiktextann, rækilega styttan og frjálslega með farinn. Það var allt snoturlega gert hjá þeim, ljúft og þægilegt áheyrnar. En í heild er sýningin afskaplega misleit. Þar eru innan um skemmtileg atriði sem má brosa og jafnvel stöku sinnum hlæja að, með góðum vilja, en til hvers er verið að draga þennan gamlingja fram og poppa upp fyrir okkur nú, það mega guðirnir vita. Vissulega er þarna tæpt á sígild- um alvörumálum, svo sem alkó- hólisma og valdasýki múgamanna. Jeppi bóndi er drykkjusjúklingur; drekkur frá sér vit og rænu á leið í kaupstaðinn, lendir í höndunum á óprúttnum baróni og skósveinum hans, sem drusla garminum heim í höll baróns og leggja í rekkju hans. Þegar karl vaknar telja þeir honum trú um að hann sé húsbónd- inn sjálfur, allt hans fyrra eymdar- líf aðeins illur draumur. Þar með talinn hjúskapur hans og skassins hennar Nillu sem er meðvirknin uppmáluð, sýknt og heilagt berj- andi á bónda fyrir fylleríið. Sjálfur reynist Jeppi gersamlega forstokk- aður, þegar hann fer að trúa á allt platið, og vill nú sem óðast hengja mann og annan. Eins gott að hann drekkur sig aftur út úr og hægt að skila honum á fjóshauginn sem hann var hirtur upp af. Og áhorfandanum ætti að hafa skilist hversu fráleitt sé að hleypa almúganum til valda, nauðsynlegt að muna að völdin séu best geymd hjá aðli og arfakóngi, einvöldum af Guðs náð. Þörf kenn- ing það, árið 2013. Það er sem sagt margt skrýt- ið í þessari sýningu og ekki allt ánægjulegt. Sviðsgólfið er þakið flöskum í hundraðatali, sem eiga víst að minna á að Jeppi sé alki, ef það skyldi nú fara fram hjá ein- hverjum. Á sviðinu er einnig gríðar- stór tromla eða hjól, af því tagi sem oft eru sett í búr hjá hömstrum að klifra í og hlaupa; það vantar bara vatnspyttinn til að gera þetta að fullkomnu Vesturporti. Sumir leik- enda fá stöku sinnum að hendast upp í græjuna og sýna listir sínar, í sönnum portverskum stíl, en annars er hún furðulítið notuð, miðað við alla fyrirferðina. Hafi hún einnig átt að tákna eitthvað sérstakt, mega aðrir en ég skýra það út. Frammistaða leikenda er mis- jöfn, vægast sagt, og sumir alls ekki á réttum stað. Músíkantarn- ir eru oft kallaðir til að taka þátt í leiknum: nýgræðingurinn Björn Stefánsson, trúlega betur þekktur sem Bjössi í Mínus, stóð sig einna best af þeim. Bergþór Pálsson leik- ur baróninn, en Bergþór er söngv- ari, ekki leikari, og á ekki heima á öðru atvinnusviði en óperusviði. Úr ógeðfelldri persónu barónsins gæti snjall leikari gert sér góðan mat, sú varð ekki raunin hér. Hin ágæta leikkona Ilmur Kristjánsdóttir á ekki heldur að koma nærri kven- vörgum eins og frú Nillu; til þess hefur hún ekki þær vígtennur sem til þarf. Þeir Bergur Þór Ingólfs- son og nýliðinn Arnmundur E.B. Björnsson brillér uðu hins vegar sem kómískt dúó, jafn kostuleg- ir sem málóðir málafærslumenn og syngjandi hjúkkur að reyna að vera sætar og sexý. En það er Ingvar E. Sigurðsson í hlutverki Jeppa sem ber kvöldið uppi með afburða vönduðum leik, hreinum stjörnuleik. Það er ár og dagur síðan ég hef séð fylliraft – afsak- ið: fárveikan alkóhólista – sýndan svo vel á leiksviði, mann sem er tekinn að brenna út af langvar- andi drykkju. Ásjónan að stirðna, augun að slokkna. Það var óhugn- anlegt og fyndið í senn, nákvæm- lega eins og vera ber. Hvaða leiðir eru þessum snillingi, honum Ing- vari, ekki færar?! Leikir Holbergs gegndu sögu- legu hlutverki á sinni tíð, ekki aðeins hjá Dönum, heldur einnig hér hjá okkur. En nú ætti þessi konungholli móralisti að fá að hvíla í friði í sinni dönsku grund. Íslensku leikhúsi væri nær að fara að sinna leikjum lærimeist- ara hans, Moli ères, sem hér hafa lengst af verið sorglega vanrækt- ir. Eru hinir bestu þeirra þó löngu orðnir sameign mannkyns, óbrot- gjörn list ofar stað og stund, eitt af því sem hver kynslóð áhorf- enda á að fá að kynnast og njóta. Jón Viðar Jónsson NIÐURSTAÐA: Gömul dönsk sveita- klassík, framreidd í frekar bragðlausri íslenskri kabarettfroðu, er ekki spenn- andi réttur. En Ingvar E. bjargar kvöldinu með stjörnuleik sem enginn leiklistar- unnandi má missa af. Jeppi í Vesturporti STJARNAN „Hvaða leiðir eru þessum snillingi, honum Ingvari, ekki færar?!“ spyr Jón Viðar. Láttu hjartað ráða „Hrískökurnar mínar eru glútenlausar og góðar með ýmsu áleggi. Þær eru hollar og henta því vel á milli mála.“ MENNING

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.