Fréttablaðið - 08.10.2013, Blaðsíða 40
FRÉTTIR
AF FÓLKI
Mest lesið
1 Móðir drengs með ADHD: „Kennarar
og skólastjórnendur eru bara hafnir
yfi r lög“
2 Skrímslatrukkasýning fór úr bönd-
unum
3 Sundlaugargestir björguðu manni frá
drukknun
4 „Ekkert haturspasta á mínum
borðum takk“
5 Eini krullótti spói landsins
Fjölmennt á
Hljómatónleikum
Á laugardag voru haldnir stór-
tónleikar í Hörpu í tilefni þess að
hálf öld er liðin frá því að hin ástsæla
hljómsveit Hljómar kom fram á sínu
fyrsta balli í Krossinum í Keflavík.
Fram komu meðal annarra Stefán
Hilmarsson, Unnsteinn Manuel
Stefánsson, Valdimar Guðmundsson
og Ágústa Eva Erlendsdóttir, en auk
þeirra spiluðu meðlimir
Hljóma nokkur lög á
tónleikunum. Júlíus
Freyr Guðmundsson,
sonur Rúnars Júl
heitins, kom fram
með þeim.
Á tónleikunum mátti
sjá marga góða gesti,
en meðal annarra
voru þau Þórður
Jörundsson
úr Retro
Stefson, Oddur
Júlíusson
leikari og Elín
Eyþórsdóttir
söngkona. - ósk
Yoko Ono á Borginni
Friðarsúlan í Viðey verður tendruð
með fallegri athöfn á fæðingardegi
Johns Lennon annað kvöld klukkan
átta. Yoko Ono, ekkja Lennons,
býður öllum sem vilja koma og taka
þátt í friðarathöfninni fría siglingu
yfir sundið. Heimildir
herma að Yoko
sé komin til
landsins og að
hún hafi verið
á Borginni á
sunnudags-
kvöldið
ásamt fylgd-
arliði. Þar
snæddi hún
fiskisúpu og
humarköku
ásamt úrvali
af sjávar-
réttum. -jme
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín