Fréttablaðið - 08.10.2013, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 08.10.2013, Blaðsíða 16
8. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR| SKOÐUN | 16 Þegar herðir að ríkisbú- skapnum er hættara við að braki í grunnstoðum sam- félaga. Í slíkum aðstæð- um eru sumir hópar ber- skjaldaðri en aðrir fyrir niðurskurði í ríkisrekstri. Á meðal þeirra eru minni- hlutahópar eins og heyrn- arlausir og heyrnarskertir, sem hafa í áratugi barist fyrir því að grundvallar- mannréttindi þeirra séu varin. Þótt enn sé langt í land hefur heilmikið áunnist. Þannig er íslenskt táknmál jafn- rétthátt talaðri íslensku sem tján- ingarform í samskiptum manna hér á landi og ber ríki og sveit- arfélögum lagaleg skylda til að tryggja að allir sem þess þurfa eigi kost á þjónustu á íslensku táknmáli svo sem kveðið er á um í 13. gr. laga um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls nr. 61 frá 2011. Lögin kveða jafn- framt á um að óheimilt sé að mismuna mönnum eftir því hvort málið þeir nota. Með slíkri lögfestingu verður að telja að ríkið hafi þar með undirgengist þá skyldu að veita heyrnar- lausum og heyrnarskertum sömu tækifæri og öðrum til þátt- töku á hinum opinbera vettvangi, svo sem við stjórn lands síns, í samskiptum við yfirvöld og dóm- stóla og til að njóta menntunar. For- senda þess að geta tekið virkan þátt í samfélaginu með þeim hætti er að geta tekið við upplýsingum og tjáð sig, bæði á opinberum vettvangi og ekki síður í daglegu lífi sem þarf ekki nauðsynlega að tengjast sam- skiptum við hið opinbera, til dæmis á almennum vinnumarkaði. Stjórnarskrárvarin réttindi Að auki má benda á markmið laga um Samskiptamiðstöð heyrnar- lausra og heyrnarskertra nr. 129 frá 1990 sem kveða á um að lögun- um sé ætlað að stuðla að jafnrétti heyrnarlausra til þjónustu sem víðast í þjóðfélaginu á grundvelli táknmáls heyrnarlausra. Lögfest- ing framangreinds ákvæðis ber með sér að þjónusta við heyrnar- lausa og heyrnarskerta skuli ekki takmörkuð við hið opinbera. Með þessum hætti hefur löggjafinn útfært stjórnarskrárvarin rétt- indi til félagslegrar aðstoðar og bann við mismunun. Af fréttum að dæma er ljóst að skorið hefur verið niður í framlög- um ríkisins til túlkaþjónustu og nú er svo komið að ýmis þjónusta sem er nauðsynleg heyrnarlaus- um í daglegu lífi, svo sem þjón- usta með textasíma og myndsíma, hefur verið felld niður vegna fjár- skorts. Vernd þessara grunnrétt- inda heyrnarlausra og heyrnar- skertra hefur því verið færð neðar í forgangsröðina – aftur. Þó að ríkjum sé játað svigrúm til að bregðast við lakara efnahags- ástandi er ekki svo að stjórnvöld hafi óbundnar hendur af lögum ríkisins eða alþjóðlegum mannrétt- indasamningum og yfirlýsingum sem þau hafa undirgengist. Mann- réttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um slíkt svigrúm ríkja og í margvíslegu samhengi komist að þeirri niðurstöðu að minni fjár- munir ríkissjóðs réttlæti ekki brot gegn skyldum ríkis samkvæmt Mannréttindasáttmála Evrópu (sjá t.d. MDE: Burdov g. Rússlandi í máli nr. 59498/00, málsgr. 35). Það hefur stundum verið sagt að dýrt sé að vera fátækur og aug- ljóst að þegar harðnar í ári þurfi að beita köldu mati við að skera niður munað. Það er flestum ljóst að vernd grundvallarmannrétt- inda kostar fjármuni. Heyrnar- lausum og heyrnarskertum liggur á svari við því hvort mannréttindi séu munaður. Mannréttindavernd er ekki munaður Árið 1997 var miðstöð sjúkraflugs á Íslandi flutt til Akureyrar þar sem hún hefur verið síðan. Fyrir því þóttu liggja ýmis rök, ekki síst lega staðarins. Frá Akureyri má ná til flestra flugvalla á landinu á þrem- ur stundarfjórðungum. Fyrstu fimm árin var flugið aðeins mannað sjúkraflutninga- mönnum frá Slökkviliði Akureyrar. Í mars 2002 hófu læknar á Sjúkra- húsinu á Akureyri og Heilsugæslu- stöðinni á Akureyri að sinna lækn- isþjónustu í fluginu. Sú þjónusta hefur haldist bláþráðalítið í 11 ár. Starfsemin er orðin viðamikil og eru farin um 500 flug á ári. Þjón- ustu læknis er krafist í rétt innan við helmingi þeirra. Sjúkraflugið er nú sjálfsagður hluti af heilbrigðis- þjónustu landsmanna. Þykir nauð- synlegt að þeir hafi jafnan aðgang að þessu öryggisneti. Munu heil- brigðisstarfsmenn víða um land geta borið því vitni að þessi þjónusta hafi verið allgóð. Fluglækni hefur verið greitt bak- vaktakaup utan dagvinnutíma og yfirvinnutaxti í útkalli. Dagvinna hefur ekki verið greidd. Því hafa læknar sem fara í útköll á dagvinnu- tíma þurft að hlaupa frá verkum og samstarfsfólk að ganga í þau. Það veldur óhagræði og óþægindum fyrir vinnufélaga og sjúklinga. Viðbótarfjárveiting fékkst árið 2012 sem nam 20% stöðugildi. Það dugar einungis til að halda utan um vaktskema, búnað og kennslu. Eftir sem áður er enginn læknir í fullu starfi við að sinna því mikilvæga starfi sem sjúkraflugið er. Þessu ríður á að breyta. Ekki er gott að þátttaka læknis í sjúkraflugi á dagvinnutíma bygg- ist á miskunnsemi deilda sem hafa hann í vinnu. Slík frumherjahugsun endist ekki að eilífu. Vinnuveitend- ur útkallslæknis þreytast að lokum á endalausu brotthvarfi og taka að synja um notkun hans. Í framtíð- inni þarf að koma þessari starfsemi í horf sem hún á skilið og ekki bygg- ir á góðmennsku og sjálfboðastarfi. Það verður best gert með því að ráð- inn sé umsjónarlæknir að sjúkra- fluginu í fullt starf. Hann sinni útköllum á dagvinnutíma, skipu- leggi vaktir og menntun og þrói starfið. Með því yrði læknamönnun sjúkraflugs stöðugri til lengri tíma og drægi úr hættu á að starfsemin koðnaði niður. Hún fengi þann sess sem hún hefur í raun áunnið sér fyrir löngu. Þetta fyrirkomulag þarf að tryggja sem fyrst. Forsvarsmenn sjúkraflugs hafa sótt um fjárveitingu til velferðar- ráðuneytisins. Þeir vænta þess að stjórnvöld horfi ekki fram hjá mikil- vægi málsins. Undanfarin misseri hefur verið upp og ofan hvernig gengur að manna læknastöður á landsbyggðinni. Á sama tíma hefur dregið úr sjúkrahússtarfsemi í fámennari byggðum. Fyrir vikið mun sjúkraflug gegna stærra hlut- verki á komandi tímum. Það er alls ekki hættandi á að láta þessa þjón- ustu leggjast af út af einum saman sparnaði, niðurskurði og skamm- sýni. Hér þarf að láta verkin tala. Hildigunnur Svavarsdóttir framkvæmdastjóri bráða-, fræðslu- og gæðasviðs Pálmi Óskarsson forstöðulæknir slysa- og bráðamóttöku Stefán Steinsson umsjónarlæknir sjúkrafl ugs Sigurður E. Sigurðsson framkvæmdastjóri lækninga Þátttaka lækna í sjúkrafl ugi MANNRÉTTINDI Hrefna Dögg Gunnarsdóttir lögmaður ➜ Það er alls ekki hættandi á að láta þessa þjónustu leggjast af... ➜ Heyrnarlausum og heyrnarskertum liggur á svari við því hvort mann- réttindi séu munaður. NISSAN QASHQAI NISSAN QASHQAI DÍSIL 4WD VERÐ FRÁ 4.990 ÞÚS. KR. KAUPAUKI AÐ ANDVIR 500 ÞÚS. KR. · Vetrardekk · Dráttarbeisli · iPad 32 GB BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is 500 ÞÚS. KR. KAUPAUKI FYLGIR QASHQAI Þeir sem kaupa Qashqai eru að leita að fallegum fjórhjóla- drifnum bíl sem er hagkvæmur í rekstri og góður í endursölu. Qashqai eyðir einungis frá 4,6 l/100 km Qashqai 1,6 dCi beinsk. Verð: 4.990 þús. kr. Qashqai+2 1,6 dCi beinsk. 7 manna Verð: 5.390 þús. kr. Qashqai 2,0 bensín, sjálfsk. Verð: 5.790 þús. kr. Qashqai 2,0 dCi sjálfsk. Verð: 6.090 þús. kr. iPad 32GBfylgir með ásamt veglegri hlífðartösku ÐI GE bílar Reykjanesbæ www.bilahusid.is 421 8808 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 E N N E M M / S ÍA / N M 5 8 9 14

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.