Fréttablaðið - 08.10.2013, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 08.10.2013, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 8. október 2013 | SKOÐUN | 13 HEILSA Teitur Guðmundsson læknir ÖRUGGT START MEÐ EXIDE RAFGEYMUM Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir bifreiða. Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda. PI PA R\ TB W A • SÍ A • 13 18 58 Exide rafgeymarnir fást hjá: Þegar maður er ungur, sprækur og í blóma lífsins er vanalega ekki mikið verið að eyða tímanum í að hugsa um öldrun eða það að verða gamall. Það er svo margt annað sem fangar hugann. Hið sama gildir alla jafna um sjúkdóma. Það er ekki fyrr en viðkomandi verður veikur eða einhver sem er náinn honum að hann staldrar við og fer að velta hlutunum meira fyrir sér. Það er eðlilegt og kannski bara hollt að hafa ekki of miklar áhyggj- ur af framtíðinni. Ef maður skoðar allt það sem getur komið upp á gæti það valdið vanlíðan og kvíða sem líklega myndi bara ýta undir heilsuleysi viðkomandi. Sumir segja jafnvel að það sé engu hægt að breyta hvort eð er en þeir hafa rangt fyrir sér. Við getum haft áhrif og við eigum að gera það sem í okkar valdi stendur til þess að viðhalda heilsu og vellíðan. Auðvitað er þó enginn sem stoppar tímann. Eitt af því sem hræðir marga við það að eldast er að verða minnisskertur, vera úti á þekju eins og einhver kallaði það, og þannig ekki lengur eins virkur þátttakandi í daglegu lífi, jafnvel hættulegur sjálfum sér og öðrum og þurfa mikinn stuðning við flestar athafnir dag- legs lífs. Alzheimer-sjúkdómur er þarna hvað þekktastur og algeng- astur. Hann er alla jafna tengdur við þá sem eldri eru, eða yfir 65 ára, þótt hann geti komið fram fyrr. Sá sjúkdómur er ólæknanleg- ur og vitað fyrir víst að hann þró- ast á verri veg með tímanum. Greina þarf á milli Við vitum ekki enn nákvæmlega hvað veldur Alzheimer-sjúkdómi en meirihluti tilfella er samspil erfða, lífsstíls og umhverfisþátta sem með tímanum eyðileggja taugafrumur með þeim afleiðing- um að veruleg truflun verður á eðlilegri starfsemi heila og tauga- kerfis. Þar má nefna einna helst minnistruflanir, erfiðleika við að lesa umhverfi sitt og óáttun, mál- truflanir, ritörðugleika auk þess að tapa lesskilningi, að taka órök- réttar ákvarðanir, verkstol, kvíða, skapsveiflur, svefntruflanir og ýmislegt fleira sem þessir ein- staklingar og aðstandendur þeirra finna fyrir. Félagslegur stuðningur auk lyfja, þjálfunar, bætiefna og næringar er þekkt og hafa áhrif en lækna ekki sjúkdóminn, markmið- in eru að stuðla að heilsusamlegra líferni og draga úr líkum á hjarta- og æðasjúkdómum hjá þessum ein- staklingum. Það eru þó fleiri sjúkdómar sem geta valdið minnistruflun sem svipar til Alzheimer-sjúkdóms og þarf að greina þar á milli. Þá er vel þekkt að næstalgengasta ástæða vaxandi minnistruflana er á grunni æðasjúkdóma þar sem æðakölkun leikur aðalhlutverk- ið. Slíku er hægt að sporna gegn með heilbrigðu líferni og sérstak- lega því að reykja ekki. Við vitum að sumir sjúkdómar og áverkar ýta beint eða óbeint undir minn- isskerðingu með sjúkdómsgangi sínum og má þar nefna sem dæmi Parkinson-sjúkdóm, HIV-sýkingu, eftirstöðvar höfuðáverka eftir slys og íþróttaiðkun með ítrekuðum höfuðhöggum. Þetta eru allt vanda- mál sem er erfitt að snúa við, þró- ast alla jafna til verri vegar og við höfum ekki góð ráð til að leysa. Forvarnir Hins vegar er fjöldinn allur af einstaklingum með minnistrufl- anir sem byggja á sjúkdómum eða vanda sem er hægt að lækna. Því er nauðsynlegt að finna þá og greina rétt svo þeir séu ekki stimplaðir með ólæknandi minnis- truflanir. Fólk á öllum aldri getur lent í slíku og þarf ekki að vera nein tenging við öldrun eða hrörn- un. Sýkingar eins og heilahimnu- og heilabólgur, lyme-sjúkdómur og ómeðhöndluð sárasótt eru sjald- gæfari vandi. Bætiefnaskortur, eins og lágt B12, B6 og B1, saltt- ruflanir í líkamanum, skjaldkirt- ilsvandi, eitranir og óhófleg áfeng- isneysla geta haft veruleg áhrif á minnið og heilastarfsemi almennt. Þá gleymist oft að súrefnisskortur sem getur verið krónískur hefur veruleg áhrif og þar sem hann er líklega mjög algeng orsök og til- tölulega auðmeðhöndlanlegur ætti að muna eftir því hjá þeim sem eru mögulega með kæfisvefn, lungna- sjúklingum og auðvitað einnig lengra gengnum hjartasjúklingum með hjartabilun. Það á því við eins og svo oft áður að forvarnir og heilbrigt líferni skipta verulegu máli, líka fyrir heilann! Ég man þig og þú manst …? Hins vegar er fjöld- inn allur af einstak- lingum með minnistruflanir sem byggja á sjúkdómum eða vanda sem hægt er að lækna. Ég er í ungmennaráði í Æskulýðsfélaginu saKÚL í Árbæjarkirkju. Við sem erum í ungmennaráðinu tökum þátt í öllum meiri- háttar ákvörðunum um starfið í vetur í saKÚL með leiðtogum okkar. Æsku- lýðsfélagið okkar heitir reyndar Lúkas en við í ung- mennaráðinu ákváðum að það væri meira töff að lesa það aftur á bak. Okkur langar að gera góðverk og skemmta okkur í leiðinni. Því ætlum við í æskulýðsfélaginu saKÚL hinn 15. nóvember næst- komandi að halda Biblíu- maraþon og lesa Lúkas- arguðspjallið í tólf tíma. Peningurinn sem við söfnum rennur til tækja- kaupa á Landspítalan- um svo hægt sé að kaupa línuhraðal, eins og Agnes biskup biður okkur um. Við þekkjum flest ein- hvern sem hefur feng- ið krabbamein og ef við getum hjálpað fólki með krabbamein og öðru fólki í vanda erum við alveg til í það. Við skorum á önnur æskulýðsfé- lög að gera slíkt hið sama og reyna að safna meiri peningum en við í saKÚL. Maraþonið hefst 15. nóvem- ber klukkan 22.00 og stendur til klukkan 10.00 um morguninn. Við yrðum rosalega glöð ef fólk gæti styrkt okkur með áheitum og hjálp- að okkur að hjálpa öðrum. Hjálpið okkur að hjálpa öðrum SAMFÉLAG Anna Lilja Steinsdóttir nemandi í 9. bekk og meðlimur í ungmennaráði saKÚL ➜ Okkur langar að gera góðverk og skemmta okkur í leiðinni.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.