Fréttablaðið - 08.10.2013, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 8. október 2013 | SKOÐUN | 13
HEILSA
Teitur
Guðmundsson
læknir
ÖRUGGT START
MEÐ EXIDE RAFGEYMUM
Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir
bifreiða. Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
18
58 Exide rafgeymarnir fást hjá:
Þegar maður er ungur, sprækur
og í blóma lífsins er vanalega ekki
mikið verið að eyða tímanum í að
hugsa um öldrun eða það að verða
gamall. Það er svo margt annað
sem fangar hugann. Hið sama
gildir alla jafna um sjúkdóma. Það
er ekki fyrr en viðkomandi verður
veikur eða einhver sem er náinn
honum að hann staldrar við og fer
að velta hlutunum meira fyrir sér.
Það er eðlilegt og kannski bara
hollt að hafa ekki of miklar áhyggj-
ur af framtíðinni. Ef maður skoðar
allt það sem getur komið upp á
gæti það valdið vanlíðan og kvíða
sem líklega myndi bara ýta undir
heilsuleysi viðkomandi. Sumir
segja jafnvel að það sé engu hægt
að breyta hvort eð er en þeir hafa
rangt fyrir sér.
Við getum haft áhrif og við
eigum að gera það sem í okkar
valdi stendur til þess að viðhalda
heilsu og vellíðan. Auðvitað er þó
enginn sem stoppar tímann. Eitt af
því sem hræðir marga við það að
eldast er að verða minnisskertur,
vera úti á þekju eins og einhver
kallaði það, og þannig ekki lengur
eins virkur þátttakandi í daglegu
lífi, jafnvel hættulegur sjálfum
sér og öðrum og þurfa mikinn
stuðning við flestar athafnir dag-
legs lífs. Alzheimer-sjúkdómur er
þarna hvað þekktastur og algeng-
astur. Hann er alla jafna tengdur
við þá sem eldri eru, eða yfir 65
ára, þótt hann geti komið fram
fyrr. Sá sjúkdómur er ólæknanleg-
ur og vitað fyrir víst að hann þró-
ast á verri veg með tímanum.
Greina þarf á milli
Við vitum ekki enn nákvæmlega
hvað veldur Alzheimer-sjúkdómi
en meirihluti tilfella er samspil
erfða, lífsstíls og umhverfisþátta
sem með tímanum eyðileggja
taugafrumur með þeim afleiðing-
um að veruleg truflun verður á
eðlilegri starfsemi heila og tauga-
kerfis. Þar má nefna einna helst
minnistruflanir, erfiðleika við að
lesa umhverfi sitt og óáttun, mál-
truflanir, ritörðugleika auk þess
að tapa lesskilningi, að taka órök-
réttar ákvarðanir, verkstol, kvíða,
skapsveiflur, svefntruflanir og
ýmislegt fleira sem þessir ein-
staklingar og aðstandendur þeirra
finna fyrir. Félagslegur stuðningur
auk lyfja, þjálfunar, bætiefna og
næringar er þekkt og hafa áhrif en
lækna ekki sjúkdóminn, markmið-
in eru að stuðla að heilsusamlegra
líferni og draga úr líkum á hjarta-
og æðasjúkdómum hjá þessum ein-
staklingum.
Það eru þó fleiri sjúkdómar sem
geta valdið minnistruflun sem
svipar til Alzheimer-sjúkdóms
og þarf að greina þar á milli. Þá
er vel þekkt að næstalgengasta
ástæða vaxandi minnistruflana
er á grunni æðasjúkdóma þar sem
æðakölkun leikur aðalhlutverk-
ið. Slíku er hægt að sporna gegn
með heilbrigðu líferni og sérstak-
lega því að reykja ekki. Við vitum
að sumir sjúkdómar og áverkar
ýta beint eða óbeint undir minn-
isskerðingu með sjúkdómsgangi
sínum og má þar nefna sem dæmi
Parkinson-sjúkdóm, HIV-sýkingu,
eftirstöðvar höfuðáverka eftir slys
og íþróttaiðkun með ítrekuðum
höfuðhöggum. Þetta eru allt vanda-
mál sem er erfitt að snúa við, þró-
ast alla jafna til verri vegar og við
höfum ekki góð ráð til að leysa.
Forvarnir
Hins vegar er fjöldinn allur af
einstaklingum með minnistrufl-
anir sem byggja á sjúkdómum
eða vanda sem er hægt að lækna.
Því er nauðsynlegt að finna þá
og greina rétt svo þeir séu ekki
stimplaðir með ólæknandi minnis-
truflanir. Fólk á öllum aldri getur
lent í slíku og þarf ekki að vera
nein tenging við öldrun eða hrörn-
un. Sýkingar eins og heilahimnu-
og heilabólgur, lyme-sjúkdómur
og ómeðhöndluð sárasótt eru sjald-
gæfari vandi. Bætiefnaskortur,
eins og lágt B12, B6 og B1, saltt-
ruflanir í líkamanum, skjaldkirt-
ilsvandi, eitranir og óhófleg áfeng-
isneysla geta haft veruleg áhrif á
minnið og heilastarfsemi almennt.
Þá gleymist oft að súrefnisskortur
sem getur verið krónískur hefur
veruleg áhrif og þar sem hann er
líklega mjög algeng orsök og til-
tölulega auðmeðhöndlanlegur ætti
að muna eftir því hjá þeim sem eru
mögulega með kæfisvefn, lungna-
sjúklingum og auðvitað einnig
lengra gengnum hjartasjúklingum
með hjartabilun.
Það á því við eins og svo oft áður
að forvarnir og heilbrigt líferni
skipta verulegu máli, líka fyrir
heilann!
Ég man þig
og þú manst …?
Hins vegar er fjöld-
inn allur af einstak-
lingum með minnistruflanir
sem byggja á sjúkdómum
eða vanda sem hægt er að
lækna.
Ég er í ungmennaráði í
Æskulýðsfélaginu saKÚL
í Árbæjarkirkju. Við sem
erum í ungmennaráðinu
tökum þátt í öllum meiri-
háttar ákvörðunum um
starfið í vetur í saKÚL með
leiðtogum okkar. Æsku-
lýðsfélagið okkar heitir
reyndar Lúkas en við í ung-
mennaráðinu ákváðum að
það væri meira töff að lesa
það aftur á bak.
Okkur langar að gera
góðverk og skemmta okkur
í leiðinni. Því ætlum við í
æskulýðsfélaginu saKÚL
hinn 15. nóvember næst-
komandi að halda Biblíu-
maraþon og lesa Lúkas-
arguðspjallið í tólf tíma.
Peningurinn sem við
söfnum rennur til tækja-
kaupa á Landspítalan-
um svo hægt sé að kaupa
línuhraðal, eins og Agnes
biskup biður okkur um.
Við þekkjum flest ein-
hvern sem hefur feng-
ið krabbamein og ef við
getum hjálpað fólki með
krabbamein og öðru fólki
í vanda erum við alveg til í það.
Við skorum á önnur æskulýðsfé-
lög að gera slíkt hið sama og reyna
að safna meiri peningum en við í
saKÚL.
Maraþonið hefst 15. nóvem-
ber klukkan 22.00 og stendur til
klukkan 10.00 um morguninn. Við
yrðum rosalega glöð ef fólk gæti
styrkt okkur með áheitum og hjálp-
að okkur að hjálpa öðrum.
Hjálpið okkur að hjálpa öðrum
SAMFÉLAG
Anna Lilja
Steinsdóttir
nemandi í 9. bekk
og meðlimur í
ungmennaráði
saKÚL
➜ Okkur langar að gera
góðverk og skemmta okkur í
leiðinni.