Fréttablaðið - 08.10.2013, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 08.10.2013, Blaðsíða 19
N ú þegar liðnir eru þrír fjórðu ársins er athyglivert að rýna í sölutölur fólksbíla á árinu. 6.218 fólks- bílar seldust til 30. september. Er þessi sala minni en á sama tíma í fyrra og munar 153 bílum, eða 2,5%. Framan af árinu voru sölutölur hærri en í fyrra en hægst hefur á sölunni undanfarna tvo mán- uði. Í fyrra seldust 7.902 bílar allt árið. Ef gert er ráð fyrir því að á síðustu þremur mánuðum ársins verði salan lík sölunni í september, sem nam 348 bílum, yrði heildarsala ársins aðeins 7.250 bílar, eða um 650 færri en í fyrra. Er það alls ekki í takt við þær spár sem voru um bílasölu í upphafi árs. Flestir áttu von á því að salan myndi aukast aðeins og næði jafnvel allt að 9.000 bíla sölu. Hætt er við því að það muni ekki ganga eftir. Hekla með  órðung Söluhæsta umboðið er eins og í fyrra Hekla með 1.562 bíla, eða 25,1% sölunnar, en Brim- borg hefur selt 1.099 bíla, eða 17,7%. Toyota hefur selt 968 bíla og Lexus 18 að auki, sam- tals 986 bíla, sem er hlutdeild upp á 15,9%. Fjórða stærsta um- boðið er Bílabúð Benna með 536 bíla, þar af er sala á Chevrolet- bílum 526 bílar og Porsche 10 bílar. Nemur það 8,6% sölunn- ar. BL er með 506 bíla, eða 8,1%. Suzuki hefur selt 448 bíla með sitt eina merki, eða 7,2%. Askja hefur selt 430 bíla sem samsvar- ar 6,9%. Bernhard hefur selt 304 Honda-bíla og 45 Peugeot-bíla, samtals 349 bíla, eða 5,6%. Af einstökum bílamerkjum er To- yota söluhæst með 968 bíla. Þar á eftir kemur Volkswagen með 784 bíla og Skoda, sem einnig tilheyr- ir Heklu, með 647 bíla. Í fjórða sætinu er Chevrolet með 526 selda bíla. Í því fimmta er svo Kia með 493 bíla, sjötta er Suzuki með 448 bíla, sjöunda Honda með 304 bíla, áttunda Nissan með 272 selda bíla. Ford er í níunda sæt- inu með 250 bíla og næsta sæti á einnig Brimborg með Mazda- merkið og 212 selda bíla. Í ellefta sæti er svo Mercedes Benz með 125 bíla. Er það mest selda lúxus- bílamerkið á Íslandi, en í öðru sæti kemur Audi með 103 selda bíla og þar á eftir Volvo 60, BMW 58 og Lexus 18. Kia slær við stærri bróðurnum Athygli vekur að japanskir bílar eru 2.332, eða 37,5% allr- ar sölu fólksbíla. Þýskir bílar eru 1.111, eða 17,9%. Volkswa- gen er þar langsöluhæst með 794 bíla, Mercedes Benz með 125, Audi 103, BMW 58, Opel 21 og Porsche 10. Þriðja stærsta fram- leiðsluþjóðin er Suður-Kórea með 798 bíla en litli bróðirinn Kia slær við þeim stærri þar sem Kia hefur selst í 493 eintökum en Hyundai 305. Bandarískir bílar eru næstum jafn margir eða 786. Chevrolet-bílar eru þar í meiri- hluta, eða 526, Ford 250 og Jeep 10. Fimmta stærsta framleiðslu- þjóðin er Tékkland í formi eins merkis, Skoda, sem selst hefur í 647 eintökum. Í sjötta sætinu er Frakkland, en selst hafa 160 Ren- ault-bílar, 63 Citroën og 45 Peu- geot, samtals 268. Í sjöunda sæti er svo Svíþjóð með 60 Volvo-bíla og Bretland kemur rétt á eftir með 57 Land Rover-bíla. Eru þá upptaldar þær átta þjóðir sem framleiða bíla sem seldir eru hér á landi en verksmiðjur þeirra dreifast reyndar um fleiri lönd en hér eru upptaldin. ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 2013 BÍLAR FÓLKSBÍLASALA MINNI EN Í FYRRA Framan af árinu var salan meiri en í fyrra en hægst hefur verulega á sölunni undanfarna tvo mánuði. SKODA OCTAVIA er söluhæsta einstaka bílgerðin hérlendis með um 400 selda bíla.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.