Fréttablaðið - 08.10.2013, Síða 19
N
ú þegar liðnir eru
þrír fjórðu ársins er
athyglivert að rýna
í sölutölur fólksbíla
á árinu. 6.218 fólks-
bílar seldust til 30.
september. Er þessi
sala minni en á sama tíma í fyrra
og munar 153 bílum, eða 2,5%.
Framan af árinu voru sölutölur
hærri en í fyrra en hægst hefur
á sölunni undanfarna tvo mán-
uði. Í fyrra seldust 7.902 bílar
allt árið. Ef gert er ráð fyrir því
að á síðustu þremur mánuðum
ársins verði salan lík sölunni í
september, sem nam 348 bílum,
yrði heildarsala ársins aðeins
7.250 bílar, eða um 650 færri en í
fyrra. Er það alls ekki í takt við
þær spár sem voru um bílasölu
í upphafi árs. Flestir áttu von á
því að salan myndi aukast aðeins
og næði jafnvel allt að 9.000 bíla
sölu. Hætt er við því að það muni
ekki ganga eftir.
Hekla með órðung
Söluhæsta umboðið er eins og
í fyrra Hekla með 1.562 bíla,
eða 25,1% sölunnar, en Brim-
borg hefur selt 1.099 bíla, eða
17,7%. Toyota hefur selt 968
bíla og Lexus 18 að auki, sam-
tals 986 bíla, sem er hlutdeild
upp á 15,9%. Fjórða stærsta um-
boðið er Bílabúð Benna með 536
bíla, þar af er sala á Chevrolet-
bílum 526 bílar og Porsche 10
bílar. Nemur það 8,6% sölunn-
ar. BL er með 506 bíla, eða 8,1%.
Suzuki hefur selt 448 bíla með
sitt eina merki, eða 7,2%. Askja
hefur selt 430 bíla sem samsvar-
ar 6,9%. Bernhard hefur selt 304
Honda-bíla og 45 Peugeot-bíla,
samtals 349 bíla, eða 5,6%. Af
einstökum bílamerkjum er To-
yota söluhæst með 968 bíla. Þar á
eftir kemur Volkswagen með 784
bíla og Skoda, sem einnig tilheyr-
ir Heklu, með 647 bíla. Í fjórða
sætinu er Chevrolet með 526
selda bíla. Í því fimmta er svo
Kia með 493 bíla, sjötta er Suzuki
með 448 bíla, sjöunda Honda með
304 bíla, áttunda Nissan með 272
selda bíla. Ford er í níunda sæt-
inu með 250 bíla og næsta sæti
á einnig Brimborg með Mazda-
merkið og 212 selda bíla. Í ellefta
sæti er svo Mercedes Benz með
125 bíla. Er það mest selda lúxus-
bílamerkið á Íslandi, en í öðru
sæti kemur Audi með 103 selda
bíla og þar á eftir Volvo 60, BMW
58 og Lexus 18.
Kia slær við stærri bróðurnum
Athygli vekur að japanskir
bílar eru 2.332, eða 37,5% allr-
ar sölu fólksbíla. Þýskir bílar
eru 1.111, eða 17,9%. Volkswa-
gen er þar langsöluhæst með 794
bíla, Mercedes Benz með 125,
Audi 103, BMW 58, Opel 21 og
Porsche 10. Þriðja stærsta fram-
leiðsluþjóðin er Suður-Kórea með
798 bíla en litli bróðirinn Kia
slær við þeim stærri þar sem
Kia hefur selst í 493 eintökum en
Hyundai 305. Bandarískir bílar
eru næstum jafn margir eða 786.
Chevrolet-bílar eru þar í meiri-
hluta, eða 526, Ford 250 og Jeep
10. Fimmta stærsta framleiðslu-
þjóðin er Tékkland í formi eins
merkis, Skoda, sem selst hefur í
647 eintökum. Í sjötta sætinu er
Frakkland, en selst hafa 160 Ren-
ault-bílar, 63 Citroën og 45 Peu-
geot, samtals 268. Í sjöunda sæti
er svo Svíþjóð með 60 Volvo-bíla
og Bretland kemur rétt á eftir
með 57 Land Rover-bíla. Eru þá
upptaldar þær átta þjóðir sem
framleiða bíla sem seldir eru hér
á landi en verksmiðjur þeirra
dreifast reyndar um fleiri lönd
en hér eru upptaldin.
ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 2013
BÍLAR
FÓLKSBÍLASALA MINNI EN Í FYRRA
Framan af árinu var salan meiri en í fyrra en hægst hefur verulega á sölunni undanfarna tvo mánuði.
SKODA OCTAVIA er söluhæsta
einstaka bílgerðin hérlendis
með um 400 selda bíla.