Fréttablaðið - 08.10.2013, Blaðsíða 30
8. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 22
LEIKLIST ★★★ ★★
Jeppi á Fjalli
HÖFUNDUR LUDVIG HOLBERG LEIK-
STJÓRN BENEDIKT ERLINGSSON ÞÝÐING
BRAGI VALDIMAR SKÚLASON LEIKMYND
GRETAR REYNISSON BÚNINGAR AGNIESZKA
BARANOWSKA LÝSING BJÖRN BERGSTEINN
GUÐMUNDSSON HLJÓÐ GUNNAR SIGUR-
BJÖRNSSON TÓNLIST OG TEXTI MEGAS OG
BRAGI VALDIMAR SKÚLASON
Jeppi á Fjalli eftir Ludvig Holberg
er dönsk sveitaklassík frá öndverðri
átjándu öld, sniðin eftir frönsk-
um og rómverskum munstrum. Þó
að Danir hafi látið Jeppa og aðrar
kómedíur Holbergs sér vel líka nú á
þriðju öld, fer því víðs fjarri að þær
séu einhverjar heimsbókmenntir.
Byggingin er sjaldnast með mikl-
um glæsibrag né persónurnar geð-
ugar. Boðskapnum einatt troðið ofan
í kok áhorfandans. Ætli satíran um
lærdómshrokann, Erasmus Mont-
anus, sé ekki einna skást þeirra, sú
sem helst mætti hafa gaman af nú
á tímum?
Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi
einhvers konar kabarett-músík-
al upp úr Jeppa á Nýja sviðinu nú
fyrir helgi. Benedikt Erlingsson
leikstýrir og kippir inn á sviðið
heilu bandi. Megas semur tónlist
og söngtexta ásamt Baggalútnum
Braga Valdimar Skúlasyni, sem
þýðir leiktextann, rækilega styttan
og frjálslega með farinn. Það var
allt snoturlega gert hjá þeim, ljúft
og þægilegt áheyrnar. En í heild er
sýningin afskaplega misleit. Þar eru
innan um skemmtileg atriði sem má
brosa og jafnvel stöku sinnum hlæja
að, með góðum vilja, en til hvers er
verið að draga þennan gamlingja
fram og poppa upp fyrir okkur nú,
það mega guðirnir vita.
Vissulega er þarna tæpt á sígild-
um alvörumálum, svo sem alkó-
hólisma og valdasýki múgamanna.
Jeppi bóndi er drykkjusjúklingur;
drekkur frá sér vit og rænu á leið
í kaupstaðinn, lendir í höndunum á
óprúttnum baróni og skósveinum
hans, sem drusla garminum heim
í höll baróns og leggja í rekkju
hans. Þegar karl vaknar telja þeir
honum trú um að hann sé húsbónd-
inn sjálfur, allt hans fyrra eymdar-
líf aðeins illur draumur. Þar með
talinn hjúskapur hans og skassins
hennar Nillu sem er meðvirknin
uppmáluð, sýknt og heilagt berj-
andi á bónda fyrir fylleríið. Sjálfur
reynist Jeppi gersamlega forstokk-
aður, þegar hann fer að trúa á allt
platið, og vill nú sem óðast hengja
mann og annan. Eins gott að hann
drekkur sig aftur út úr og hægt að
skila honum á fjóshauginn sem hann
var hirtur upp af. Og áhorfandanum
ætti að hafa skilist hversu fráleitt
sé að hleypa almúganum til valda,
nauðsynlegt að muna að völdin séu
best geymd hjá aðli og arfakóngi,
einvöldum af Guðs náð. Þörf kenn-
ing það, árið 2013.
Það er sem sagt margt skrýt-
ið í þessari sýningu og ekki allt
ánægjulegt. Sviðsgólfið er þakið
flöskum í hundraðatali, sem eiga
víst að minna á að Jeppi sé alki,
ef það skyldi nú fara fram hjá ein-
hverjum. Á sviðinu er einnig gríðar-
stór tromla eða hjól, af því tagi sem
oft eru sett í búr hjá hömstrum að
klifra í og hlaupa; það vantar bara
vatnspyttinn til að gera þetta að
fullkomnu Vesturporti. Sumir leik-
enda fá stöku sinnum að hendast
upp í græjuna og sýna listir sínar, í
sönnum portverskum stíl, en annars
er hún furðulítið notuð, miðað við
alla fyrirferðina. Hafi hún einnig
átt að tákna eitthvað sérstakt, mega
aðrir en ég skýra það út.
Frammistaða leikenda er mis-
jöfn, vægast sagt, og sumir alls
ekki á réttum stað. Músíkantarn-
ir eru oft kallaðir til að taka þátt
í leiknum: nýgræðingurinn Björn
Stefánsson, trúlega betur þekktur
sem Bjössi í Mínus, stóð sig einna
best af þeim. Bergþór Pálsson leik-
ur baróninn, en Bergþór er söngv-
ari, ekki leikari, og á ekki heima á
öðru atvinnusviði en óperusviði. Úr
ógeðfelldri persónu barónsins gæti
snjall leikari gert sér góðan mat,
sú varð ekki raunin hér. Hin ágæta
leikkona Ilmur Kristjánsdóttir á
ekki heldur að koma nærri kven-
vörgum eins og frú Nillu; til þess
hefur hún ekki þær vígtennur sem
til þarf. Þeir Bergur Þór Ingólfs-
son og nýliðinn Arnmundur E.B.
Björnsson brillér uðu hins vegar
sem kómískt dúó, jafn kostuleg-
ir sem málóðir málafærslumenn
og syngjandi hjúkkur að reyna
að vera sætar og sexý. En það er
Ingvar E. Sigurðsson í hlutverki
Jeppa sem ber kvöldið uppi með
afburða vönduðum leik, hreinum
stjörnuleik. Það er ár og dagur
síðan ég hef séð fylliraft – afsak-
ið: fárveikan alkóhólista – sýndan
svo vel á leiksviði, mann sem er
tekinn að brenna út af langvar-
andi drykkju. Ásjónan að stirðna,
augun að slokkna. Það var óhugn-
anlegt og fyndið í senn, nákvæm-
lega eins og vera ber. Hvaða leiðir
eru þessum snillingi, honum Ing-
vari, ekki færar?!
Leikir Holbergs gegndu sögu-
legu hlutverki á sinni tíð, ekki
aðeins hjá Dönum, heldur einnig
hér hjá okkur. En nú ætti þessi
konungholli móralisti að fá að
hvíla í friði í sinni dönsku grund.
Íslensku leikhúsi væri nær að
fara að sinna leikjum lærimeist-
ara hans, Moli ères, sem hér hafa
lengst af verið sorglega vanrækt-
ir. Eru hinir bestu þeirra þó löngu
orðnir sameign mannkyns, óbrot-
gjörn list ofar stað og stund, eitt
af því sem hver kynslóð áhorf-
enda á að fá að kynnast og njóta.
Jón Viðar Jónsson
NIÐURSTAÐA: Gömul dönsk sveita-
klassík, framreidd í frekar bragðlausri
íslenskri kabarettfroðu, er ekki spenn-
andi réttur. En Ingvar E. bjargar kvöldinu
með stjörnuleik sem enginn leiklistar-
unnandi má missa af.
Jeppi í Vesturporti
STJARNAN
„Hvaða leiðir
eru þessum
snillingi,
honum Ingvari,
ekki færar?!“
spyr Jón Viðar.
Láttu hjartað ráða
„Hrískökurnar mínar eru glútenlausar og góðar
með ýmsu áleggi. Þær eru hollar og henta því vel
á milli mála.“
MENNING