Fréttablaðið - 29.10.2013, Qupperneq 4
29. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
63 Íslendingar hafa fengið ígrætt nýra á Landspítal-
anum frá því í desember 2003
en þá fór fyrsta nýraígræðslan fram
á Íslandi.
Fram að þeim tíma fóru allar
nýraígræðslur fram erlendis. Fyrsti
Íslendingurinn gekkst undir ígræðslu
nýra í desember 1970. Aðgerðin fór
fram á sjúkrahúsi í London.
HÖFUNDARRÉTTUR „Við munum kæra
þetta,“ segir Snæbjörn Steingríms-
son, framkvæmdastjóri samtaka
myndréttarhafa á Íslandi (SMÁÍS),
en samtökin ætla að kæra síma-
fyrirtækið Tal sem og forsvars-
menn heimasíðunnar Flix.is, fyrir
brot á lögum um höfundarrétt.
Snæbjörn segir málið borðleggj-
andi, enda höfundarréttarlögin
skýr. Þar kveður meðal annars á
um að það sé óheimilt, án samþykk-
is rétthafa, að
sniðganga tækni-
legar ráðstafanir
til að vernda höf-
undarrétt. Snæ-
björn telur að
með því að bjóða
upp á tæknilegar
lausnir til þess
að nálgast efnis-
veitur, svo sem
Netflix eða Hulu, séu Tal og Flix að
gegn þessu lagaákvæði.
Flix hefur verið minna í
umræðunni en forsvarsmenn síð-
unnar auglýsa grímulaust tækni-
legar lausnir gegn þóknun svo fólk
geti nálgast efnisveiturnar. Það
sama á við um Tal.
„Það kemur okkur mjög á óvart
að svona flott fyrirtæki eins og Tal
sé að bjóða upp á svona lagað, en
við munum kæra það sem og Flix.
is,“ segir Snæbjörn sem telur engan
vafa á sekt fyrirtækjanna eftir að
hafa skoðað málið.
Fréttablaðið hafði samband við
nokkra lögfræðinga sem eru sér-
fræðingar á sviði laga um hug-
verkaréttindi. Einn þeirra sagði
símafyrirtækið stuðla að því eða
hvetja til þess að einstaklingurinn
villi á sér heimildir um það hvar
hann nýtir þjónustu efnisveitunn-
ar. Með þessu sé gengið á svig við
ákvörðun rétthafans um svæðis-
skiptingu en efnisveiturnar hafa
ekki gert samning um birtingu
á efninu hér á landi eins og fram
hefur komið í fjölmiðlum.
Annar lögmaður sem Frétta-
blaðið ræddi við sagði mögulegt að
fyrirtækin séu brotleg gegn lögum
þar sem forsvarsmenn þeirra viti
að þjónustan sem þeir bjóða upp á
verði notuð til þess að nálgast efn-
isveitur á ólöglegan hátt. Forsvars-
maður Istorrent var til að mynda
dæmdur í Hæstarétti Íslands árið
2010 á þeim forsendum. Enginn lög-
fræðingur þorði þó að fullyrða að
hér væri um að ræða klárt brot á
lögum um höfundarrétt.
Aðspurður hvenær Smáís muni
kæra fyrirtækin, svarar Snæbjörn
því til að það verði innan skamms.
Það þurfi að undirbúa svona mál
vel. valur@frettabladid.is
Ætla að kæra Tal og
Flix til lögreglunnar
Smáís hyggst kæra fyrirtækin Flix.is og Tal til lögreglunnar fyrir brot á lögum um
höfundarrétt. Segja tæknilausnir fyrirtækjanna klárt brot á höfundarréttarlögum.
Í lögum um höfundarrétt segir meðal annars: „Óheimilt er án samþykkis
rétthafa að sniðganga [...] hvers konar skilvirkar tæknilegar ráðstafanir
sem samkvæmt eðlilegri notkun eru ætlaðar til þess að vernda verk [...]“.
Þá segir: „Óheimilt er að framleiða, flytja inn, dreifa, selja, leigja, auglýsa
til sölu eða leigu eða eiga í viðskiptalegum tilgangi búnað, vörur eða íhluti
sem [...] eru kynnt eða auglýst sem leið til að komast fram hjá tækni-
legum ráðstöfunum.“
Óheimilt að sniðganga vernd verka
ÞJÓNUSTA Tal býður upp á tæknilegar lausnir svo viðskiptavinir geti nálgast Netflix
og Hulu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SNÆBJÖRN
STEINGRÍMSSON
UTANRÍKISMÁL Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson forsætisráðherra
afhenti Ernu Solberg, forsætisráð-
herra Noregs, þjóðargjöf Íslend-
inga til Norðmanna. Tilefnið er
að 100 ár eru liðin frá endurreisn
norska konungdæmisins.
Gjöfin var afhent við hátíðlega
athöfn í Þjóðarbókhlöðunni í Ósló
í gær. Gjöfin er fimm bindi sem
Hið íslenzka fornritafélag gaf út.
Það eru nýjar útgáfur norskra kon-
ungasagna: Sverris saga, Morkin-
skinna í tveimur bindum, Hákonar
saga og Böglunga saga. -skó
100 ár liðin frá endurreisn:
Norðmenn fá
fornrit að gjöf
ÞJÓÐARGJÖF AFHENT Sigmundur Davíð
afhendir hér Ernu Solberg, forsætisráðherra
Noregs, þjóðargjöfina. MYND/FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Fimmtudagur
8-15 m/s.
HVESSIR Á MORGUN Gengur í hvassa suðaustanátt á landinu á morgun og má
búast við vindhraða að 25 m/s við suðurströndina með slyddu en síðar rigningu.
-1°
7
m/s
0°
8
m/s
2°
5
m/s
5°
15
m/s
Á morgun
10-23 m/s, hvassast syðst.
Gildistími korta er um hádegi
4°
1°
3°
0°
-1°
Alicante
Basel
Berlín
25°
15°
14°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
13°
13°
11°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
12°
12°
25°
London
Mallorca
New York
12°
25°
11°
Orlando
Ósló
París
27°
9°
14°
San Francisco
Stokkhólmur
14°
10°
2°
5
m/s
3°
7
m/s
-1°
4
m/s
-1°
4
m/s
-2°
3
m/s
0°
5
m/s
-4°
4
m/s
4°
2°
2°
2°
1°
Nýjar uppljóstranir um víðtæka njósnastarfsemi Bandaríkjanna:
Spánarstjórn leitar skýringa
MÓTMÆLI Í BANDARÍKJUNUM Njósna-
starfsemi Bandaríkjanna hefur vakið hörð
viðbrögð víða um heim. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Í ÓSLÓ Þjófarnir eru helst á höttunum
eftir farsímum.
NOREGUR Lögreglan í Ósló í Nor-
egi ætlar að auka eftirlit á götum
úti vegna fjölda rána í borginni
að undanförnu. Greint var frá
því á vef Aftenposten í gær að 98
rán hefðu verið framin það sem
af er október en 103 í september.
36 hafa verið handteknir vegna
26 rána. Flest ránin eru framin
að kvöldi til um helgar og flest í
miðborginni.
Þjófarnir eru helst á höttunum
eftir farsímum, einkum Apple-
vörum, að því er haft er eftir
lögreglunni. - ibs
Fjöldi rána á götum Ósló:
Lögregla mun
verða sýnilegri
SVEITARSTJÓRNIR Léleg nýting á
hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Nausti á Þórshöfn á þessu ári
hefur í för með sér tíu millj-
óna króna tap fyrir sveitarfé-
lagið Langanesbyggð. Þetta kom
fram á kynningu sem heima-
menn héldu fyrir þingmenn
kjördæmisins.
„Málaflokkurinn þarf rekstrar-
tryggingu frá ríkinu til frambúð-
ar þannig að tap lendi ekki inni
í bókum sveitarfélagsins þegar
svo ber undir,“ sagði í kynningu
heimamanna sem kváðu þó horf-
urnar fyrir árið 2014 betri. - gar
Léleg nýting á Þórshöfn:
Milljónatap á
dvalarheimili
DANMÖRK Stjórnendur taka það
ekki alvarlega þegar læknar og
hjúkrunarfræðingar segjast hafa
áhyggjur af öryggi sjúklinga.
Þetta er mat þriðja hvers lækn-
is og hjúkrunarfræðings sem
þátt tóku í könnun danska ríkis-
útvarpsins í samvinnu við Félag
ungra lækna og Félag hjúkrunar-
fræðinga í Danmörku.
Samkvæmt könnuninni hafa
yfir 80 prósent lækna og hjúkrun-
arfræðinga rætt við stjórnendur
um áhyggjur sínar. - ibs
Þriðjungur danskra lækna:
Stjórnendur
hlusta ekki
SPÁNN, AP Utanríkisráðherra
Spánar hafði samband við sendi-
herra Bandaríkjanna í gær, eftir
að spænska dagblaðið El Mundo
skýrði frá því að bandarískir leyni-
þjónustumenn hefðu skráð hjá sér
60 milljónir símtala á Spáni á einum
mánuði um síðustu áramót.
Fyrir viku birtust svipaðar upp-
lýsingar um njósnir Bandaríkjanna
í Frakklandi og Þýskalandi. Frétt-
irnar vöktu hörð viðbrögð franskra
og þýskra ráðamanna.
Jose Manuel Garcia-Margallo,
utanríkisráðherra Spánar, sagðist
enga staðfestingu hafa fengið á því
að njósnir þessar hefðu átt sér stað.
El Mundo vísar í skjöl sem banda-
ríski uppljóstrarinn Edward Snow-
den hafði í fórum sínum. Skjölin
sýna að bandaríska Þjóðarörygg-
isstofnunin skráði hjá sér meira en
60 milljónir símtala á Spáni á tíma-
bilinu frá 10. desember 2012 til 8.
janúar 2013. Símtölin voru þó ekki
hleruð, en skráð hvaðan var hringt
og hvert, klukkan hvað og hve lengi
símtalið stóð. - gb
SAMGÖNGUR Icelandair hóf í gær
áætlunarflug til Newark-flugvallar
við New York, en þangað verður
flogið fjórum sinnum í viku. New-
ark verður ellefti áfangastaður Ice-
landair í Norður-Ameríku og 36.
staðurinn í leiðakerfinu á þessu ári.
Icelandair hefur flogið til JFK-
flugvallarins í New York í rúm
65 ár og í tilkynningu frá fyrir-
tækinu segir að það muni halda
áfram. Í sumar flaug Icelandair
fjórtán sinnum í viku til JFK. Þá
hefur einnig verið flogið daglega
til borgarinnar í nokkur ár utan
sumartímans. - þj
Bættu við áfangastað:
Fyrsta flugið til
Newark í gær
Fjölbreyttir tímar þar sem bæði er
dansað ZUMBA Fitness og ZUMBA Toning.
Einföld og skemmtileg dansspor.
Hefst 8. október
Þri. og fim. kl. 16:30
Þjálfari: Hjördís Zebitz
Verð kr. 13.900.-
í form!