Fréttablaðið - 29.10.2013, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 29.10.2013, Blaðsíða 42
SPORT 29. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR FÓTBOLTI Miðasala á umspilsleik Íslands og Króatíu í undankeppni HM 2014, sem fram fer á Laugardalsvelli 15. nóvember, hefst í dag. Miðarnir verða til sölu á vefsíðunni midi.is. „Við höfum h rei n lega ekk i ákveðið tímann enn,“ sagði Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands, spurður hvenær miðarnir færu í sölu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins spila þar inn í áhyggjur af því að miðasölukerfið fari á hliðina sökum mikils álags. „Það hefur lengi verið vitað að eftirspurnin er miklu meiri en framboðið. Það verða alltaf einhverjir ósáttir við að fá ekki miða á völlinn,“ segir Þórir um áhuga landans á leiknum. Þórir segir forsvarsmenn sambandsins hafa viðhaldið sama miðaverði og í undanförnum leikjum til þess að gæta sanngirni í garð íslenskra knattspyrnuunnenda. „Svo gildir í raun bara fyrstur kemur fyrstur fær,“ segir Þórir. Stuðningsmenn landsliðsins þurfa því að vera vel á verði í dag. Vangaveltur hafa verið um hættuna á því að óprúttnir aðilar reyni að endurselja miðana á hærra verði. Slík starfsemi þekkist víða erlendis en lítið hefur farið fyrir henni til þessa. Hins vegar hefur eftirspurnin líklega aldrei verið meiri. „Auðvitað höfum við velt því fyrir okkur. Því er hámark sett á fjölda miða sem þú getur keypt,“ segir Þórir. Hann bætir við að verði vart við að sami aðili sé að kaupa fleiri miða en leyft sé geti KSÍ hafnað sölunni. Þá hvetur Þórir fólk til þess að koma með ábendingar verði það vart við að fólk reyni að hagnast á endursölu miða. - ktd Svartamarkaðsbrask alltaf hætta „Fyrstur kemur fyrstur fær“ gildir þegar miðasala á Króatíuleikinn hefst í dag. FAGNAÐ Í ÓSLÓ Aron Einar Gunnarsson og Jóhann Berg Guðmunds- son þegar umspilssætið var í höfn eftir jafnteflið í Noregi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI Karlalandslið Íslands sækir Króata heim á Maksim- ir-leikvanginn í Zagreb hinn 19. nóvember. Landslið mótherjanna spilar allajafna heimaleiki sína á Maksimir-leikvanginum í Zagreb. Það mun liðið gera þegar íslensku strákarnir mæta í heimsókn. Umhverfis völlinn er hlaupa- braut en íslenskir stuðningsmenn hafa löngum kvartað yfir hlaupa- brautinni á Laugardalsvelli. Fjar- lægð áhorfenda frá vellinum er sögð minnka stemninguna og taka Króatar undir það sjónarmið. „ Enginn kann að meta h laupabraut i r í k r i ngum knattspyrnuvelli í dag,“ segir k r ó at í sk i bl a ð a m a ð u r i n n Aleksandar Holiga. Hann segir hlaupabrautina þó ekki það vandamál sem sé efst í huga landa sinna. „Við köllum leikvanginn ýmist þann ljótasta í Evrópu eða skömm Maksimir,“ segir Holiga en Maksimir er nafn á hverfinu í Zagreb þar sem má meðal annars finna stóran almenningsgarð auk leikvangsins. Leikvangurinn fagnaði 100 ára afmæli á síðasta ári en miklum fjármunum hefur verið varið í endurbætur á honum. Holiga segir það þó ekki að sjá enda löngu ljóst að rífa þurfi leikvanginn. Það hafi staðið til í áratugi en ekki hafi fengist nægt fjármagn. Skiptar skoðanir eru á því hvort nýjan leikvang skuli byggja á rúst- um þess gamla, verði hann rifinn, eða hvort byggja eigi í úthverfinu. „Staðsetningin hefur tilfinn- ingalegt gildi fyrir suma,“ segir Holiga um þá sem v i lja ha lda leikvanginum á sama stað. Vandamálið sé hins vegar að umferðaræðar geri staðsetn- inguna a l ls ekki góða. Þrátt fyrir allt segir Holiga að andrúmsloftið á Maksimir geti verið rafmagnað á sumum leikjum. Áhugi fólks á landsliðinu sé hins vegar ekki þess eðlis að reikna megi með slíku þegar strákarnir okkar mæti í heimsókn. „Manni líður samt alltaf kjánalega á leikvanginum enda virkar hver stúka eins og hún hafi verið byggð fyrir annan leikvang. Þá virkar hún líka galopin á öllum hliðum.“ kolbeinntumi@frettabladid.is Kunnuglegt vandamál Hætt er við því að stuðningsmenn landsliðsins þurfi að vökva raddböndin vel fyrir leikinn gegn Króötum í Zagreb. Hlaupabraut skapar vel þekkt vandamál. LITRÍKUR Maksimir-leikvangurinn tekur rúmlega 38 þúsund manns í sæti. NORDICPHOTOS/GETTY ALEKSANDAR HOLIGA HANDBOLTI „Þetta er sérstakur s t y r k t a r s a m n i n g u r s e m við félagarnir gerðum við húsbílaleiguna Kúkú Campers,“ segir Kristinn Björgúlfsson, leikmaður ÍR. Reynsluboltarnir Sturla Ásgeirs- son, Ingimundur Ingimundarson auk Kristins hafa sett svip á upp- hitun liðsins með sérstökum der- húfum og hafa margir spurt sig hver ástæðan er fyrir þeim. „Það var alltaf leyfilegt hér í gamla daga hjá ÍR að leikmenn máttu selja aðra ermina og gera eigin styrktarsamning, en núna hefur verið tekið fyrir allt slíkt.“ Kristinn starfar sjálfur hjá Kúkú Campers og hugmyndin kom frá yfirmanni hans einn daginn í vinnunni. „Ég var að fara að taka á móti viðskiptavinum og fannst sniðugt að mæta á staðinn með svona derhúfu til að vera sýnilegri. Þá kom yfirmaðurinn minn með þá hugmynd að við myndum hita upp með þessar derhúfur fyrir leiki, og vandamálið væri leyst.“ Kúkú Campers býður erlendu ferðafólki að leigja bíla sem einn- ig er hægt að gista í á ferðinni um landið. „Leikmönnum er frjálst að selja auglýsingar á búninga svo lengi sem þær eru ekki á vinstri ermi, sú ermi er ætluð fyrir aðal- styrktaraðila deildarinnar,“ segir Róbert Geir Gíslason, starfsmað- ur HSÍ, en Kristinn er sáttur með þessa nýju útfærslu þeirra ÍR- inganna. „Við fáum meiri athygli með þessu,“ segir Kristinn léttur. - sáp Með sérsamning við húsbílaleigu Nokkrir leikmenn ÍR-inga hita upp með skemmtilegar derhúfur fyrir leiki. DERHÚFUR Kristinn og Ingimundur þungt hugsi með húfurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SYKURLAUST STREPSILS með jarðaberjabragði Við eymslum og ertingu í hálsi! - nú sykurlaust og með jarðaberjabragði Strepsils Jordbær Sukkerfri munnsogstöflur. Inniheldur: 2,4-tvíklóróbensýlalkóhól 1,2 mg, amýlmetakresól 0,6 mg. Ábendingar: Eymsli og erting í hálsi. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir og börn 6 ára og eldri: 1 munnsogstafla er látin leysast hægt upp í munni á 2-3 klst. fresti. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virku efnunum eða einhverju hjálparefnanna. Varnaðarorð og varúðarreglur: Ekki nota stærri skammt en ráðlagður er. Sjúklingurinn skal leita læknis ef hann er í vafa eða ef einkenni lagast ekki eða versna innan nokkurra daga. Lyfið inniheldur ísómalt og maltitól sem geta haft væg hægðalosandi áhrif. Sjúklingar með arfgengt frúktósaóþol, sem er mjög sjaldgæft, skulu ekki taka lyfið. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi: Reckitt Benckiser Healthcare A/S. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. 20 13 R B 00 2 St re ps ils

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.