Fréttablaðið - 29.10.2013, Síða 10

Fréttablaðið - 29.10.2013, Síða 10
29. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10 Þátttakendur eru leiddir inn í leyndardóminn um hvernig á að búa til dýrindis konfekt. Hver og einn býr til sína mola úr súkkulaði frá Nóa Síríus. Farið verður í gerð fyllinga og meðhöndlun á súkkulaði og afrakstur námskeiðisins er tekinn með heim. Námskeiðin eru haldin í Hagkaup Smáralind 18:00 -20:00 skoli@hagkaup.is eða í síma 563 5066 3.990,- (greitt á staðnum) 2.990,- fyrir krakka (greitt á staðnum) Miðvikudagur 6. nóv. Þriðjudagur 12. nóv. - Krakkanámskeið Miðvikudagur 13. nóv. - Krakkanámskeið Fimmtudagur 14. nóv. - Krakkanámskeið Þriðjudagur 19. nóv. Miðvikudagur 20. nóv. Fimmtudagur 21. nóv. Þriðjudagur 26. nóv. Miðvikudagur 27. nóv. Fimmtudagur 28. nóv. Þriðjudagur 3. des. Fimmtudagur 5. des. Áskoranir á mörkuðum hafa sjaldan verið meiri en nú. Tækifærin sem þeim fylgja geta verið dýrmæt. Njóttu ráðgjafar sérfræðinga við mat á árfestingarkostum og nýttu tækifærin á verðbréfamarkaði með eignastýringu MP banka. Þjónusta okkar er sniðin að þörfum viðskiptavina og við bjóðum ölbreytt úrval árfestingarleiða til að ná ávöxtunarmarkmiðum hvers og eins. www.mp.is Hafðu sambandeinkabankathjonusta@mp.is Nánari upplýsingar um  árfestingarleiðir og verðskrá á www.mp.is eða í síma   UMHVERFISMÁL „Það gerðist nú ekki mikið,“ segir Reynir Ingi- bjartsson, einn af forsvarsmönn- um Hraunavina sem fóru á fund bæjarstjóra Garðabæjar, Gunn- ars Einarssonar, í ráðhúsi Garða- bæjar í gær. Þar komu Hraunavinir sjónar- miðum sínum áleiðis auk þess sem honum var afhent mótmælabréf. „Þar var handtökunni og meðferð mótmælenda í hrauninu mótmælt, og að ekki skuli vera hinkrað eftir dómsmálinu sem nú stendur yfir,“ segir Reynir en fyrirtaka fór fram í málinu sem um ræðir í gær. Þar var málinu frestað til 19. nóvember þar sem enn er verið að fjalla um það hvort samtökin Hraunavinir eigi lögvarða hags- muni í málinu. Mótmælendur fóru niður í Gálgahraun/Garðahraun í gær- morgun en þá var þeim tilkynnt af verkstjóra Íslenskra aðalverktaka, sem sjá um framkvæmdirnar, að einhver óprúttinn aðili hefði sett möl í bensíntanka vinnuvélanna á svæðinu. Hraunavinir sverja það af sér og segja það ekki þeirra málstað til framdráttar. Lögreglan hefur ekki rætt við Hraunavini vegna málsins en fyrstu vinnuvélarnar voru komn- ar í gagnið fyrir hádegi og þær síðustu síðdegis samkvæmt upp- lýsingum frá Vegagerðinni. „Það er enginn sem mælir fyrir skemmdarverkum þarna í hraun- inu og við leggjumst alfarið gegn slíkum aðferðum,“ segir Reynir um atvikið. Bréf Hraunavina verður tekið fyrir á bæjarráðsfundi Garða- bæjar í dag en meðal mótmæla sem var komið á framfæri var bréf sem Ragnhildur Jónsdóttir afhenti bæjarstjóranum. Þar tal- aði hún fyrir hönd álfa í hrauninu en að sögn Reynis er gömul álfa- kirkja örstutt frá framkvæmdun- um. Hann segir raunar áhöld um það hvort kletturinn sem um ræðir sé forn álfakirkja, „en Ragnhildur gekk rakleiðis að steininum og sá þar álfa,“ útskýrir hann en kirkjan er kölluð Ófeigskirkja. Hann segir að sitt sýnist hverj- um varðandi álfa, en bendir á að áður hafi menn lagt lykkju á fram- kvæmdaleið vegna slíkra kletta. - vg Hraunavinir hittu bæjarstjóra Garðabæjar: Mótmælabréf afhent RÆTT SAMAN Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, ræddi við Hraunavini. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI GEORGÍA, AP Kosningaeftirlitsmenn Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu segja forsetakosningarnar í Georgíu á sunnudag hafa farið vel fram. Þær hafi verið gegnsæjar og óspilltar. Það var Giorgi Margvelashvili sem sigraði með miklum yfirburð- um og hlaut um 62 prósent atkvæða samkvæmt bráðabirgðaniðurstöð- um. Úrslitin eru áfall fyrir Mikhaíl Saakashvili, fráfarandi forseta, en frambjóðandi á hans vegum hlaut aðeins 22 prósent í kosningunum. - gb Forsetakosningar í Georgíu fóru vel fram: Saakashvili tapaði SIGURVEGARARNIR Bidzina Ivanis- hvili forsætisráðherra ásamt Giorgi Margvelashvili, nýkjörnum forseta. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.