Fréttablaðið - 29.10.2013, Síða 14

Fréttablaðið - 29.10.2013, Síða 14
29. október 2013 ÞRIÐJUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGAREFNI: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Sara McMahon sara@frettabladid.is VÍSIR: Kristján Hjálmarsson, kristjan@visir.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is Árið 2004 keypti ég efri hæð hússins að Byggðarenda 8 í Reykjavík með láni frá Íbúðalánasjóð og Íslandsbanka ásamt eigin fé. Nauðsynlegt var að endurnýja alla hæðina sem hafði verið eins frá byggingu árið 1971 ásamt því að svalir voru ónýtar og garður jafnaður út eftir margra ára órækt. Samtals settu eig- endur um 10 mkr. í eignina. Árið 2007 voru Íslandsbankalánið og framkvæmd- irnar endurfjármögnuð með láni frá Frjálsa fjárfestingabankanum, samtals 19.6 mkr. Eignin var metin á 45 mkr. Á fyrsta og öðrum veðrétt hvíldi 33 mkr. Lánin hafa hækkað um 18 milljónir frá 2004 og áhvílandi á fasteigninni eru 51,5 milljónir í dag. Þar af er Drómi hf. með 33,3 mkr. Ég ræð ekki við greiðslu byrðina af þeirri upphæð. Allar samningatilraunir mínar hafa verið hunsaðar. Í dag verður fasteignin þess vegna boðin upp að beiðni Dróma hf., sem er hlutafélag sem innheimtir lán í eigu SPRON og Frjálsa fjárfestingabankans í umboði slitastjórnar bankanna. Áætl- að söluverð á markaði er 36,5 mkr. Ég bauð Íbúðalánasjóði og Dróma samtals 6,5 mkr. til niðurgreiðslu á höf- uðstól gegn því að Drómi lækkaði sína kröfu um 6,9 mkr. ásamt viðhaldi upp á 3 mkr. krónur. Áhvílandi yrðu þá 38,6 mkr. stað 51,5 mkr. Þessu var hafnað. En Drómi tapar ekki bara pening- um í dag af því að söluverð eignar- innar er þriðjungi lægra en áhvílandi lán og afskriftir því óumflýjanlegar, heldur líka vegna þess að söluverðið er mörgum milljónum lægra heldur en kröfuhöfum var boðið. Barnafjölskylda missir allt sitt. Drómi tapar meiru en nauðsynlegt er. Slitanefndum bankanna ber að tryggja hámarks heimtur samkvæmt lögum. Gjörningurinn í dag er andstæð- ur þeim lögum. Það liggur fyrir að ég tók fullhá lán við þessi fasteignakaup miðað við þá þróun sem síðar varð. Þetta mál aftur á móti snýst ekki um mig, heldur kerfið sem feðraði Dróma; kerfi sem virkar ekki. Greiðsluvilji og geta er til staðar. Boð um bætur liggur á borðinu. Fyrir hvern er slitastjórn Dróma að vinna? Af flestu að dæma fyrir sjálfa sig, enda er fólk þar með 40.000 kr. á tímann. Sjá má lengri útgáfu greinarinnar á Vísi. Drómi tapar peningum í dag FJÁRMÁL Björn Steinbekk Kristjánsson framkvæmdastjóri ➜ Fyrir hvern er slitastjórn Dróma að vinna? Einfaldar og skýrar uppskriftir að vettlingu m fyrir fólk á öllum aldri. VETTLINGAPRJÓN er ný og stórglæsileg bók eftir höfund metsölubókanna Sokka prjón og Húfuprjón S amkomulag ríkisins og Reykjavíkurborgar um innan- landsflug er ágæt millilending í máli sem var komið upp í loft. Þar er komið til móts við sjónarmið beggja; þeirra sem vilja flugvöllinn burt úr Vatnsmýri og þeirra sem vilja að miðstöð innanlandsflugs sé áfram í Reykjavík. Samkomulagið gerir ráð fyrir að vera flugvallarins í Vatns- mýrinni sé framlengd um sex ár, til 2022. Það þýðir að fótunum verður ekki kippt undan innan- landsfluginu á næsta kjör- tímabili borgarstjórnar og leiðir reyndar líka af sér að flugvöll- urinn verður ekki kosningamál í borgarstjórnarkosningunum. Það skiptir verulegu máli að í samkomulaginu opnar ríkið á þann möguleika að innanlands- flugvelli verði fundinn nýr staður á höfuðborgarsvæðinu. Það var ágætt að Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra skyldi hvorki hlusta á Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, sem vildi skapa „sátt“ um að flugvöllurinn yrði í Vatnsmýrinni til frambúðar, né Höskuld Þórhallsson flokksbróður hans, sem vildi taka skipulagsvaldið í Vatnsmýrinni af Reykvíkingum. Þess í stað á að kanna aðra kosti og setja á stofn stýrihóp undir forystu Rögnu Árnadóttur, en hún nýtur víðtæks trausts. Til liðs við hópinn verða fengnir innlendir sérfræðingar og alþjóðlegt ráðgjafafyrirtæki „með víðtæka reynslu af skipulagi og hönnun flugvalla“. Áherzla er lögð á að skoða þætti sem ekki hafa komið til athugunar áður þegar skoðaðir hafa verið nýir staðir fyrir flugvöll og hvatt til þess að í endurskoðun á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins verði möguleg ný flugvallarstæði ekki útilokuð. Svo fá hagsmunaaðilar að fylgjast náið með. Þetta er jákvæð nálgun, sem nær vonandi umræðunni um flugvöllinn upp úr skotgröfunum sem hún var komin í. Með því að vinna á þessum nótum ætti að vera hægt að finna beztu lausnina, sem felst í að tryggja að miðstöð innanlandsflugs verði áfram á höfuðborgarsvæðinu, en að jafnframt víki flugvöllurinn úr Vatns- mýri til að gefa Reykjavíkurborg svigrúm til að þéttast og þróast. Þannig verður til öflugri höfuðborg, sem rækir þjónustuhlutverk sitt við landsbyggðina og getur jafnframt boðið upp á fjölbreyti- legri búsetu- og samgöngukosti fyrir borgarbúa framtíðarinnar. Samkomulagið er ekki gallalaust; áfram er gert ráð fyrir að hæstu trén í einum elzta útivistarskógi borgarbúa verði söguð niður og sett ljót lendingarljós á annað útivistarsvæði við Skerja- fjörð. Það er ákveðin huggun að í samkomulaginu er kveðið á um að gera ljósin minna ljót og takmarka skógarhöggið. Þessi atriði varpa þó ljósi á það sem lítið hefur verið rætt; að Reykjavíkurflugvöllur er aðþrengdur og getur lítið þróazt. Í sam- komulaginu stendur að skoða eigi sóknarfærin sem nýr flugvöllur með þróunarmöguleika til framtíðar hafi í för með sér. Það er í rauninni óhugsandi annað en að á höfuðborgarsvæðinu sé til annar staður fyrir flugvöll en Vatnsmýrin. Ef lítið kemur út úr útlendu ráðgjöfunum má kannski bara prófa að athuga hvort það er ekki einhver á lífi úr brezku verkfræðingasveitunum sem hönnuðu og lögðu flugvöllinn og spyrja hann: „Ef Vatnsmýrin hefði verið fullbyggð 1940, hvar hefðuð þið haft flugvöll?“ Samkomulag ríkis og borgar um innanlandsflug: Millilending í flugvallarmáli Synd Ákveðið hefur verið að auglýsa til sölu 15.000 fermetra lóð við hliðina á Hörpu sem Landsbankinn hafði augastað á undir höfuðstöðvar sínar. Það er synd, því að tillagan sem bar sigur úr býtum í hönnunar- samkeppni um nýjar höfuðstöðvar bankans var frábær. Hún gerði ráð fyrir húsi úr gleri sem átti að líta út eins og risavaxinn straumlínulagaður borgarísjaki og hefði gnæft yfir vegfarendur í miðbænum og glatt öll skilningarvit. Nú er útlit fyrir að svo verði ekki og það hljóta allir að sýta. Á móti Brynjari Níelssyni finnst forgangsröðun lögreglu vera röng. Í stað þess að færa alla þá í járn sem hala niður höfundarréttarvarið efni á netinu standi hún í því að nappa menn sem hafi ekkert sér til saka unnið annað en að kaupa sér kynlífsþjónustu af fullveðja kvenfólki. Það má alltaf treysta á Brynjar til að verja óvin- sælan málstað, en stundum er nánast eins og hann velji sér baráttumálin gagngert til að fá alla upp á móti sér. Hæpið Brynjar rökstyður þessa skoðun sína meðal annars með því að þyngri refsingar liggi við því að dreifa höfundarréttarvörðu efni en að kaupa sér vændi. Það er út af fyrir sig rétt. Til hins er að líta að nú hafa nokkrir menn hlotið dóma fyrir vændiskaup og refsingin í öllum tilvikum verið sektir upp á nokkra tugi þúsunda. Síðan er líka til hæstaréttardómur fyrir brot gegn höfundalögum– kenndur við skráaskiptiforritið DC++– og hvernig skyldi mönnum hafa verið refsað þar fyrir að gera höfundar- réttarvarið efni aðgengilegt öðrum netnotendum? Svarið er að þeim var ekki refsað– þeir voru sakfelldir en því frestað að gera þeim refsingu. Höfuðpaurinn fékk reyndar 30 daga skilorð, en gera má ráð fyrir að höfuðpaurinn í vændismálinu eigi enn þyngri refsingu yfir höfði sér verði hann fundinn sekur. Þetta er því hæpin full- yrðing hjá Brynjari. stigur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.