Fréttablaðið - 29.10.2013, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 29. október 2013 | SKOÐUN | 15
Það er áhugavert að skoða það
álag sem er á fólki nú til dags
og hversu mörgum hlutverk-
um hver og einn er að sinna
dags daglega. Það er af sem
áður var þegar kynjahlutverkin
voru allsráðandi og hálfpartinn
meitluð í stein. Sem betur fer
hefur orðið breyting hér á
kynnu einhverjir að segja og ég
er sammála þeim. Á undanförn-
um áratugum hefur orðið hröð
umbreyting í samfélaginu og
við erum að sjá þróun þar sem
konur taka mun virkari þátt á
öllum stigum atvinnulífsins, við
höfum átt kvenkyns ráðherra
um árabil og margar konur eru
forstjórar eða framkvæmda-
stjórar sumra af stærstu fyrir-
tækjum landsins.
Það er þó enn langt í land með
þann jöfnuð sem við stefnum að
þrátt fyrir að Ísland sé í efsta
sæti hvað jafnrétti kynjanna
snertir samkvæmt skýrslu
World Economic Forum sem
birt var nýverið. Þessi árangur
okkar er eftirtektarverður og
honum ber að fagna ásamt því
að marka þá stefnu að halda
þessu toppsæti framvegis. Eitt
af lykilatriðum þessara breyttu
tíma er að með aukinni mennt-
un og möguleikum kvenna sem
og karla hefur samkeppnis-
færni landsins aukist. Þá hefur
samskiptatækni breytt miklu
þegar horft er til möguleika við
fjarvinnu, hvort heldur sem er
milli landa eða einfaldlega að
heiman.
Óskýrari mörk
Mörkin á milli vinnu og einka-
lífs verða stöðugt óskýrari vegna
þessara nýjunga og það er hægt
að ná í okkur alltaf og alls stað-
ar. Við þurfum ekki einu sinni að
mæta til vinnu til að geta lokið
verkefnum sem er bæði gott
og slæmt. Ekki má gleyma því
að hraðinn hefur aukist og þar
með álagið á einstaklinginn í
þessu umhverfi, slíkt getur leitt
til streitu og jafnvel kulnunar-
ástands sé ekki brugðist við. Við
heilbrigðisstarfsfólk þekkjum
það vel að líkamlegar kvartanir
ýmiss konar geta verið afleiðing-
ar álags um lengri eða skemmri
tíma.
Einstaklingar og fjölskyldur
þeirra fara ekki varhluta af
þessari þróun, kröfurnar sem
gerðar eru til þeirra eru miklar,
en ekki síður þær sem viðkom-
andi setur á sig sjálfur. Þannig
getur skapast ákveðið ójafn-
vægi á milli vinnu og einkalífs
þar sem vinnan er farin að taka
upp mun meiri hluta en áður og
hafa áhrif á daglegt líf viðkom-
andi. Þetta á við um bæði kynin,
einstæðinga sem og þá sem eru
í sambúð. Í þessu ójafnvægi
myndast skuld einstaklingsins
við vini, kunningja, áhugamál,
fjölskyldu og síðast en ekki síst
maka og börn. Þessu fylgir sam-
viskubit og vanlíðan sem ekki
lagast nema vítahringurinn sé
rofinn.
Jafnvægi er lykillinn
Enska heitið Work Life Balance
er notað um það jafnvægi sem
þarf að skapa milli atvinnu og
einkalífs, en í dag er þetta eitt
af þeim viðfangsefnum sem eru
hvað mest spennandi í stjórnun
og mikið rætt. Ástæðan er sú
fína lína sem þarf að finna til að
hámarka afköst starfsmannsins
eða einstaklingsins án þess að
það hafi neikvæð áhrif á líðan
hans og lífshamingju. Þessi hlið
fyrirtækjanna sem hugsa fyrst
og fremst um framlegð og hag af
rekstri sínum er ekki endilega
samrýmanleg við þarfir einstak-
lingsins. Það er þessi munur sem
oftar en ekki veldur togstreitu
bæði á vinnustaðnum sem og
heimilinu. Afleiðingarnar geta
verið umtalsverðar bæði heilsu-
farslegar en einnig félagslegar
og má eflaust færa rök fyrir því
að þessi neyslustefna útheimti
aukna vinnu og þar með meiri
fjarveru frá sínum nánustu,
bæði hjá körlum og konum.
Íslendingar eru með eitt hæsta
hlutfall í heimi þar sem báðir
foreldrar eru útivinnandi og
skilum hvað flestum klukku-
stundum á viku í vinnu. Það hlýt-
ur að vekja okkur til umhugs-
unar þegar við berum þær tölur
saman við háa tíðni skilnaða og
of mikla notkun á róandi, svefn-
og geðlyfjum hérlendis. Kannski
er meira samhengi þarna á milli
en við höfum verið reiðubúin að
viðurkenna fram til þessa, en
slíkt þarfnast frekari skoðunar.
Ef okkur á að takast að viðhalda
þeim árangri sem við höfum
náð, verðum við að tryggja að
við göngum ekki um of á okkur
í leiðinni, jafnvægi er lykillinn
að því.
Að dansa á línunni
Mörkin á milli vinnu
og einkalífs verða
stöðugt óskýrari vegna
þessara nýjunga og það er
hægt að ná í okkur alltaf og
alls staðar. Við þurfum ekki
einu sinni að mæta til vinnu
til að geta lokið verkefnum
sem er bæði gott og slæmt.
Ég vona að lesendur geti
með góðri samvisku svar-
að þessari spurningu ját-
andi. En hvað er jafn-
réttissinni? Í raun eru
jafnréttissinnar fylgjandi
jöfnum rétti fólks – óháð
kyni, þjóðerni, trú, kyn-
hneigð, fötlun, o.fl.
En orðið tengist í hugum
fólks fyrst og fremst jafn-
rétti kynjanna. Lög tryggja
jafna stöðu og jafnan rétt
kvenna og karla. Þó svo að
leikreglur boði jafnrétti er ekki
tryggt að jafnrétti einkenni dag-
legt lífi fólks. Við erum alla ævi
í mörgum ólíkum hlutverkum t.d.
í hlutverki maka, foreldris, laun-
þega eða vinnuveitanda. Allan dag-
inn erum við að skipta um hlutverk
og þar með endurspeglast, undir
ólíkum formerkjum, lífsgildi okkar
og afstaða til jafnréttis.
Að mínu mati er uppeldi í anda
jafnréttis grunnurinn að jafnrétt-
isvitund einstaklingsins. Allt frá
því að von er á barni fara vænt-
ingar og hugmyndir væntanlegra
foreldra til barnsins og foreldra-
hlutverksins að taka á sig mynd.
Er munur á væntingum foreldra
og getur verið að þær taki mið
af kyni barnsins? Allt í kring um
okkur eru staðalmyndir og viðhorf
sem hafa bein og óbein áhrif á for-
eldra. Hvert og eitt foreldri verður
því að horfa í eigin barm, skoða og
meta eigin viðhorf og gildi.
Fátt hefur skilað meiri árangri
í jafnréttisbaráttunni en lögin um
fæðingarorlof. Foreldrar verða að
hafa hugfast að tilgangur laganna
er m.a. að gefa báðum foreldrum
og barni tækifæri til að bindast
varanlegum tilfinningaböndum.
Það eitt og sér er ómetanlegt jafn-
réttismál. Foreldrar eru mikilvæg-
ustu fyrirmyndir barna sinna enda
endurspegla börnin oftar en ekki
ríkjandi gildismat heimilanna. Það
er mun líklegra að barn sem alið
er upp við jafnrétti feti
sömu slóð þegar út í lífið
er komið.
Keppikefli allra
Í upphafi sambúðar og í
hlutverki maka kemur jafn-
rétti strax til sögunnar.
Hvernig er skipt verkum og ábyrgð
á heimilinu? Ef barn er á heimili
reyna þá báðir aðilar að samþætta
til jafns fjölskyldulíf og atvinnulíf
s.s. hlutverk skólaforeldris eða að
vera heima með veiku barni?
Við erum flest öll í lengri eða
styttri tíma í hlutverki launþega.
Það á að vera skylda allra að láta sig
varða jafnrétti á vinnustað. Starfs-
fólk á að láta í sér heyra ef ekki er
unnið í anda jafnréttisáætlunar, ef
minnsti grunur er um kynbund-
inn launamun, ef vart verður við
kynferðislega áreitni eða ofbeldi
og nýta þá aðstoð og ráðgjöf sem
stendur til boða. Það hvílir mikil
ábyrgð á vinnuveitendum og þeim
sem semja við starfsfólk um kaup
og kjör. Lykillinn að varanlegum
launajöfnuði er í þeirra höndum og
því er hlutverkið mjög mikilvægt.
Fyrir utan mörg og ólík hlut-
verk í lífinu erum við almennir
borgarar með þeim réttindum og
skyldum sem því hlutverki fylgja.
Það á að vera keppikefli allra jafn-
réttissinna að taka afstöðu í málum
sem upp koma og tengjast jafnrétti
kynjanna. Ég fagna jafnréttis-
vikunni þar sem jafnréttismálin
eru skoðuð frá ólíkum hliðum og
vona að fólk leggi við hlustir, lesi
og ræði það sem fram hefur komið.
Jafnréttisviku lýkur 1. nóv. með
Jafnréttisþingi, sjá upplýsingar
um þingið á heimasíðu velferðar-
ráðuneytis.
Ertu jafnréttissinni?
HEILSA
Teitur
Guðmundsson
læknir
JAFNRÉTTI
Fanný
Gunnarsdóttir
formaður Jafn-
réttisráðs
➜ Fátt hefur skilað
meiri árangri í jafnrétt-
isbaráttunni en lögin
um fæðingarorlof.
Komdu núna og kynntu þér 100 ára afmælistilboð Ford. Gerðu líf þitt þægilegra með Ford Kuga.
Skynvætt fjórhjóladrif er staðalbúnaður ásamt Ford SYNC samskiptakerfinu. Með raddstýringu
getur þú hringt og beðið um óskalög. Í neyð hringir kerfið sjálfkrafa eftir aðstoð. Ford Kuga er
svo snjall að í raun er hann snjalljeppi. Komdu og prófaðu.
MEÐ DÍSILVÉL FRÁ
MEÐ BENSÍNVÉL FRÁ
FORD KUGA
5.790.000 KR.
6.190.000 KR.
ford.is
AFMÆLISPAKKI AÐ VERÐMÆTI 520.000 KR.
FYLGIR FORD KUGA Í OKTÓBER
Ford Kuga AWD 2,0 TDCi dísil 140 hö. 6 gíra beinsk./sjálfskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 5,9/6,2 l/100 km. Losun koltvísýrings CO2 154/162 g/km.
Ford Kuga AWD 1,6i EcoBoost bensín 182 hö. sjálfskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 7,7 l/100 km. Losun koltvísýrings CO2 179 g/km. Tökum allar
tegundir bíla upp í nýja. Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður og gerð getur verið frábrugðin mynd í auglýsingu.