Fréttablaðið - 29.10.2013, Page 18

Fréttablaðið - 29.10.2013, Page 18
FÓLK| Jólapeysan sem fyrirbæri hefur alltaf verið hallærislega töff í ljótleika sínum. Jóla- peysan 2013 er hins vegar bara töff,“ segir Ragnheiður Eiríks- dóttir, prjónahönnuður hjá Knitt- ing Iceland, en hún hannaði og prjónaði Jólapeysuna 2013 fyrir samtökin Barnaheill – Save the Children á Íslandi. Jólapeysan er hluti af söfnunar- átaki Barnaheilla sem hefst í nóvember og mun uppskriftin að peysunni verða seld á útsölustöð- um Lopa um allt land. Hluti ágóð- ans af sölunni rennur til Barna- heilla og segir Ragnheiður að allir ættu að ráða við prjónaskapinn. „Uppskriftin er einföld. Peysan er prjónuð að ofan, byrjað á háls- málinu og prjónað niður. Það er minni frágangur eftir á þegar sú aðferð er notuð. Ég held að flestir sem kunna að fitja upp og prjóna slétt og brugðið ættu að ráða við þessa peysu,“ segir Ragnheiður. Munstrið er röð af jólatrjám á axlarstykkinu og er öll peysan hressilega skreytt með glimmer- garni, bjöllum, pallíettum og jóla- kúlum sem saumaðar eru í eftir á. Allt skraut fylgir með þegar uppskriftin er keypt. Þetta er fyrsta jólapeysan sem Ragnheiður hannar og segir hún áskorunina hafa verið þrælskemmtilega. „Þetta var æðislega gaman og svolítið ævintýralegt því ég hafði einn og hálfan sólarhring til að hanna og prjóna peysuna. En ég hef einmitt svo gaman af verkefnum sem virðast nánast ómöguleg,“ segir hún hlæjandi. „Það var lítið sofið meðan á þessu stóð og úr varð að bolurinn og ermarnar voru prjónuð á hand- prjónavél, svo allt gengi upp. Það reyndist mjög snjallt en það sést nánast enginn munur á þeim hluta og þeim sem prjónaður var í höndunum,“ segir Ragnheiður. „Jón Gnarr borgarstjóri mun fá þessa peysu til eignar og hann var hæstánægður þegar hann mátaði hana,“ bætir hún við og segir verkefnið í heildina bæði hlýlegt og skemmtilegt. „Það að prjóna fallega jóla- peysu við kertaljós og halda svo jólapeysuboð og safna fyrir góðum málstað er frábær hug- mynd. Það verða alls ekki bara prjónanördar sem munu stökkva á þetta, heldur getur hver sem er haldið jólapeysupartý. Ég mun pottþétt halda peysupartý sjálf.“ JÓLAPEYSA BARNAHEILLA BARNAHEILL KYNNA Samtökin Barnaheill – Save the Children á Íslandi fengu Ragnheiði Eiríksdóttur prjónahönnuð til að hanna Jólapeysu ársins 2013. Hluti ágóðans af sölu prjónauppskriftarinnar rennur til Barnaheilla. JÓLAPEYSAN 2013 Ragnheiður Eiríksdóttir prjónahönnuður hannaði jólapeysu ársins fyrir Barnaheill – Save the Children á Íslandi. MYND/STEFÁN BARNA- HEILL – SAVE THE CHILDREN Barnaheillum Jól með ■ SAMTÖKIN Barnaheill – Save the Children á Íslandi eru frjáls félagasamtök sem stofnuð voru árið 1989. Samtökin reiða sig á frjáls framlög frá einstak- lingum og úr fjáröflunum. Helstu áherslur í starfi samtakanna eru að standa vörð um mannréttindi barna, barátta gegn ofbeldi á börnum, heilbrigðismál og að rödd barna heyrist betur í íslensku samfélagi. Á erlendum vettvangi taka Barnaheill þátt í neyðaraðstoð og mann- úðarstarfi þar sem stríðs- átök eða hörmungar hafa gengið yfir samfélög.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.