Fréttablaðið - 29.10.2013, Qupperneq 48
FRÉTTIR
AF FÓLKI
Mest lesið
1 Fær enga hjálp þó naglarnir standi út
2 Ókurteisi við kassastarfsmenn
matvöruverslana
3 Mjölnismenn sluppu með skrekkinn
eft ir bílveltu
4 Slegist í Smáralind
5 Skemmdarverk á vinnuvélum í Gálga-
hrauni
6 Brjálað veður í Bretlandi
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
HIGH FAT
LOW CARB
Airwaves í Hallgrímskirkju
Hallgrímskirkja verður í fyrsta sinn
notuð sem tónleikastaður fyrir
Airwaves-hátíðina á miðvikudags-
kvöld. Þar kemur fram hópur tón-
listarmanna frá útgáfunni Bedroom
Community, þar á meðal Daníel
Bjarnason, Valgeir Sigurðsson,
James McVinnie og Ben Frost. Tón-
leikarnir verða utan dagskrár og er
aðgangur því ókeypis. Heimildar-
myndin The Whale Watching Tour,
sem inniheldur tónleika útgáfunnar
í Þjóðleikhúsinu á Listahátíð 2010,
verður auk þess
sýnd í hvala-
skoðunarbátnum
Eldingu við
Reykjavíkurhöfn
á sunnudaginn.
Að sýningunni
lokinni munu
meðlimir
Bedroom
Comm-
unity
þeyta
skífur.
- fb
Furðulegt tríó
vann keppnina
Vondulagakeppnin var haldin á
skemmtistaðnum Dolly um helgina.
Tilefnið var afmæli söngkonunnar
Rósu Birgittu Ísfeld. Fjölmargir
tónlistarmenn tóku þátt í keppninni
en í dómnefndinni sátu borgar-
fulltrúinn og Baggalútsmaðurinn
Karl Sigurðsson, tónlistarkonan
Elísabet Eyþórsdóttir og Steinþór
Helgi Arnsteinsson. Það er óhætt að
segja að sigursveitin
hafi verið sérkenni-
lega samansett, en
í hljómsveitinni
voru rapparinn
Sesar A, kvik-
myndagerð-
armaðurinn
Grímur Há-
konarson
og bróðir
hans
Finnur.
- vg