Fréttablaðið - 01.11.2013, Page 2
1. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
FÓLK Aaron Fortheringham, einnig þekktur undir nafninu Wheelz, er
hluti af hópnum Nitro Circus Live sem ferðast nú um þessar mundir
um Evrópu til þess að leika listir sínar. Hópurinn vakti mikla athygli
er hann ferðaðist um Bandaríkin í fyrra enda fá glæfrabrögðin, sem
sýnd eru á hjólum, áhorfendur til þess að súpa hveljur. - nej
Hópur manna á hjólum ferðast um Evrópu með sýningu:
Sýnir glæfrabrögð í hjólastól
Á HVOLFI Wheelz lék listir sínar í Amsterdam í Hollandi í gær. MYND/AFP
Heiða, er Björt framtíð þá ekki
besti flokkurinn?
„Það er augljóst!“
Heiða Kristín Helgadóttir er framkvæmda-
stjóri Besta flokksins, en borgarfulltrúar
flokksins gengu til liðs við Bjarta framtíð í
vikunni.
DÓMSMÁL Karl Vignir Þorsteinsson var í
gær dæmdur í sjö ára fangelsi í Hæsta-
rétti. Hæstiréttur staðfesti þannig dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði áður
dæmt Karl Vigni í sjö ára fangelsi. Dóm-
urinn hækkaði einnig miskabætur til
tveggja fórnarlamba Karls Vignis sem
honum var gert að greiða.
Karl Vignir var sakfelldur fyrir að
nauðga þremur mönnum og fyrir vænd-
iskaup með því að greiða tveimur þeirra
fyrir samræðið. Frá fangelsisvistinni
dregst gæsluvarðhald sem Karl Vignir
hefur sætt frá því í febrúar. Brot gegn
fjórða manninum var talið fyrnt og þá
var Karl sýknaður af kaupum á vændi af
þriðja manninum þar sem það var ekki
lögbrot á þeim tíma sem kaupin fóru
fram.
Í dómi Hæstaréttar segir að brot Karls
Vignis séu mjög alvarleg. Þau séu mörg og
hafi staðið yfir um langt tímabil. Brota-
vilji hans hafi verið einbeittur og brotin
beinst að andlega fötluðum mönnum sem
treystu honum og litu á hann sem vin sinn.
Í dómnum segir enn fremur að Karl Vign-
ir eigi sér engar málsbætur.
- fbj
Kynferðisafbrotamaðurinn Karl Vignir Þorsteinsson greiði fórnarlömbum sínum hærri miskabætur:
Hæstiréttur staðfesti sjö ára fangelsisdóm
DÓMURINN
STAÐFEST-
UR Sjö ára
fangelsis-
dómur yfir
Karli Vigni var
staðfestur af
Hæstarétti í
gær.
MYND/ANTON
BELGÍA, AP Belgísk stjórnvöld
íhuga nú hvort heimila eigi
líknar dráp á börnum, að fengnu
samþykki foreldra, en líknardráp
á fullorðnum hefur verið heimilt
með lögum þar í landi í meira en
áratug.
Þeir sem vilja útvíkka heimild-
ina, svo hún nái einnig til barna,
telja það geta hjálpað fjölskyld-
um að takast á við sársaukafullar
aðstæður.
Málið er viðkvæmt og efasemd-
armenn segja börn engan veginn
fær um að taka ákvarðanir um að
ljúka eigin lífi, jafnvel í erfiðustu
aðstæðum. - gb
Líknardráp rætt í Belgíu:
Líknardráp nái
einnig til barna
DÓMSMÁL Manni voru í Hæsta-
rétti í gær dæmdar 150 þúsund
króna miskabætur vegna nauð-
ungarvistunar á geðdeild.
Lögreglan fór í íbúð mannsins
og kallaði til lækni sem lét færa
manninn á geðdeild til skoðunar
gegn vilja hans þar sem óttast
var um öryggi mannsins.
Hæstiréttur taldi að rétt hefði
verið að kalla eftir aðstoð læknis
en taldi tveggja klukkustunda
vistun hans á geðdeild hafa verið
ólögmæta frelsissviptingu þar
sem læknar komust að því að
maðurinn væri ekki andlega van-
heill. - fbj
Var ekki vanheill á geði:
Nauðungarvist-
un ólögmæt
➜ Allt frá árinu 1997 hefur
borgin glímt við Hrafn og
umsvif hans innan og utan
lóðar við Laugarnestanga 65.
BJÖRGUN Varðskipið Þór hefur
tekið flutningaskipið Fernöndu í
tog og mun draga það til hafnar í
Hafnar firði.
Hrafnhildur Stefánsdóttir, upp-
lýsingafulltrúi Landhelgisgæsl-
unnar, segir í samtali við Frétta-
blaðið að búist sé við því að skipin
komi til hafnar í dögun.
Varðskipsmenn og slökkviliðs-
menn frá Slökkviliði höfuðborgar-
svæðisins fóru um borð í skipið í
gær til að tryggja aðstæður áður
en hafist var handa við að draga
skipið af vettvangi.
Fernöndu hafði rekið talsvert í
norðvestur og var skipið statt um
25 sjómílum suður af Grindavík.
Hrafnhildur segir að ekki sé
enn ljóst hvort eldur sé slokkn-
aður í skipinu, varðskipsmenn
og slökkviliðsmenn hafi farið um
borð til að kanna aðstæður en
ekki tekið neina áhættu og lokað
öllu til að koma í veg fyrir að
eldur breiddist út ef enn leyndust
glæður í skipinu. Þór sigli á um
fimm hnúta hraða enda sé ekki
þorandi að fara hraðar af því
að eldurinn geti magnast upp sé
farið of hratt.
Rannsóknarnefnd sjóslysa mun
skoða skipið í Hafnarfirði. - fbj
Óljóst hvort enn logar í skipinu sem verður rannsakað í Hafnarfirði:
Þór dregur Fernöndu til hafnar
SLÖKKVISTARF Áhöfn Þórs slökkti eldinn um borð í Fernöndu. Rannsóknarnefnd
sjóslysa mun rannsaka skipið í Hafnarfirði. MYND/LANDHELGISGÆSLAN
SPURNING DAGSINS
60 ára og eldri
Aukinn styrkur, betra jafnvægi
og frábær félagsskapur
Hefst 4. nóvember (4 vikur)
Mán. og mið. kl. 11:00 eða 15:00
Þri. og fim. kl. 10:00
Verð kr. 9.900
FRAMKVÆMDIR Skipulagssvið borg-
arinnar íhugar nú til hvaða ráða
eigi að grípa vegna óleyfisfram-
kvæmda Hrafns Gunnlaugssonar
kvikmyndaleikstjóra í Laugarnesi.
Allt frá árinu 1997 hefur borg-
in glímt við Hrafn og umsvif hans
innan og utan lóðar við Laugar-
nestanga 65. Í kjölfar þess að í
ljós kom að Hrafn hafði í leyfis-
leysi komið upp eins konar báta-
skýli í fjöruborðinu framan við
lóð sína og húskofa inni á lóðinni
samþykkti skipu-
lagsráð vorið
2010 um að þau
mannvirki yrðu
að hverfa. Um
þetta sama leyti
var gæsatjörn og
-hólar ofan við
hús Hrafns jafn-
aðir út.
Hrafni var
gefinn frestur til andmæla og til
þess að fjarlægja byggingarnar
sjálfur. Að öðru kosti myndi borg-
in láta ryðja þeim burt og senda
Hrafni síðan reikninginn.
Þrátt fyrir þessa ákvörðun og
viðvaranir hefur ekkert gerst í
málinu, þremur og hálfu ári síðar.
Í fyrra barst borginni kvörtun
undan aðgerðaleysinu frá ein-
staklingi sem ekki býr í Laugar-
nesi samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins. Sá hinn sami kvartaði
síðan á þessu ári undan málsmeð-
ferðinni til embættis umboðs-
manns borgarbúa.
Í júlí í sumar tók byggingar-
fulltrúi saman greinargerð um
„lausn fyrir umhverfi lóðarinn-
ar og framkvæmdir sem þar eru
án leyfis“, eins og sagði í fundar-
gerð umhverfis- og skipulagsráðs
þar sem greinargerðin var kynnt í
síðustu viku. Engin ákvörðun var
tekin í ráðinu um framhald máls-
ins.
Afrit af greinargerðinni hefur
ekki fengist afhent hjá borginni
með þeirri skýringu að hún sé
aðeins vinnuskjal. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins er þar
reyndar enga sérstaka lausn á
málinu að finna. Aðeins er undir-
strikað að komast þurfi að niður-
stöðu um það hvort fylgja eigi
ákvörðuninni frá 2010 eða ekki.
Sérstaklega mun vera litið til þess
innan borgarkerfisins að margir
telja lítinn skaða af framkvæmd-
um Hrafns sem þess utan dragi til
sín fjölda áhugasamra gesta.
Hvorki náðist tal af Hrafni
Gunnlaugssyni né Birni Stefáni
Hallssyni byggingarfulltrúa.
gar@frettabladid.is
Klagar borgina fyrir
linkind í Laugarnesi
Byggingarfulltrúinn í Reykjavík glímir enn og aftur við óleyfisbyggingar Hrafns
Gunnlaugssonar í Laugarnesi. Umboðsmaður borgarbúa skoðar kvörtun vegna
aðgerðarleysis borgarinnar sem skipaði Hrafni 2010 að rífa bátaskýli og steinkofa.
HRAFN
GUNNLAUGSSON
BÁTASKÝLIÐ Langt utan við mörk lóðar sinnar hefur Hrafn Gunnlaugsson reist
bátaskýli í fjöruborðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL