Fréttablaðið - 01.11.2013, Side 18

Fréttablaðið - 01.11.2013, Side 18
1. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR FJÖLSKYLDA | 18 „Umönnunargjáin sem foreldrar þurfa að brúa frá fæðingarorlofi þar til barn kemst á leikskóla vinn- ur gegn jafnréttismarkmiðum fæð- ingarorlofslaganna um aukið jafn- rétti á heimilinu og aukið jafnrétti á vinnumarkaði. Að fresta lengingu fæðingarorlofsins er þess vegna slæmt.“ Þetta segir Edda Sigurbjörg Ingólfsdóttir félagsfræðingur sem skrifaði meistararitgerð um hvern- ig foreldrar brúa bilið. Hún flytur í dag erindið „Þetta reddast“ á Jafn- réttisþingi. „Ég bý í Svíþjóð þar sem börn- um er tryggð umönnun um leið og fæðingarorlofi, sem er 480 dagar, er lokið. Þess vegna langaði mig til þess að rannsaka hvernig íslenskir foreldrar fara að. Á Íslandi þurfa foreldrar í raun að brúa tíu mánaða bil,“ greinir Edda frá. Hún tók fimmtán viðtöl við pör og einstæðar mæður og segir að niðurstöðurnar hafi verið í sam- ræmi við könnun sem hún gerði í gegnum Félags- vísindastofn- un. „Það er yfir- leitt móðirin sem aðlagar vinnu- þátttöku sína til að brúa bilið og hún hverfur þess vegna mun lengur frá vinnu- markaðnum en faðirinn. Algengast er að mæður taki út sína þrjá mánuði og þá þrjá sameiginlegu sem foreldrarnir hafa og dreifi þeim síðan yfir lengri tíma. Dæmi eru um að þær taki 50 prósenta fæðingarorlof í eitt ár.“ Flestir feður taka út sína þrjá mánuði, að sögn Eddu. „Þeim finnst þetta mikilvægur tími. Nokkrir nefndu þó að lækkun á hámarks- greiðslu fæðingarorlofsins hefði haft áhrif á möguleika þeirra til þess að taka út orlof.“ Algengast er að dagforeldrar taki við að loknu fæðingarorlofi. „Það hafa hins vegar ekki allir efni á því að senda börnin til dagforeldra og í sumum tilvikum borgaði það sig betur að móðirin væri heima þar til barnið komst inn á leikskóla. Umönnunargjáin er fjárhagslega erfitt tímabil fyrir foreldra en auð- vitað miserfitt. Sumir foreldrar safna skuldum en aðrir klára spari- féð sitt.“ Skoðanir foreldra á því hvað eigi að taka við að fæðingarorlofi loknu eru misjafnar, að sögn Eddu. „Sumir hefðu viljað að börnin gætu byrjað- strax á leikskóla en aðrir sáu dag- foreldra sem gott millistig þar sem umönnunin væri inni á heimili og barnahóparnir minni. Allir foreldr- ar vildu samt fá pláss á leikskóla eins fljótt og mögulegt væri. Helsta ástæðan var hár kostnaður vegna gæslu hjá dagforeldrum.“ Rannsóknin leiddi jafnframt í ljós að foreldrum fannst of snemmt að senda sex til níu mánaða barn til dagforeldris þótt þeir hefðu sjálf- ir gert það. Allir voru sammála um að fæðingarorlofið ætti að vera að minnsta kosti eitt ár. „Mikilvægt er að fæðingarorlofið verði lengt en líka að leikskólar taki fyrr á móti börnum svo að foreldrar standi ekki frammi fyrir því að þurfa að brúa þetta bil sjálfir,“ segir Edda. ibs@frettabladid.is Foreldrar vilja fæðingarorlof í að minnsta kosti eitt ár Að fresta lengingu fæðingarorlofs vinnur gegn markmiðum þess um aukið jafnrétti á heimilum og á vinnu- markaði, segir Edda Sigurbjörg Ingólfsdóttir félagsfræðingur. Foreldrum finnst fjárhagslega erfitt að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Sumir foreldrar safna skuldum en aðrir klára spariféð sitt. LEIKSKÓLABÖRN Allir foreldrar vilja leikskólapláss eins fljótt og mögulegt er, samkvæmt könnun Eddu Ingólfsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA EDDA INGÓLFSDÓTTIR Um fimmtungi grunnskólanem- enda í 7.-10. bekk finnst ekki gaman í skólanum og hefur ekki áhuga á náminu. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar á starfsháttum í grunnskólum en bók er væntanleg um rannsóknina í næsta mánuði. 25 prósentum stráka finnst ekki gaman í skólanum og 14 pró- sentum stúlkna. Þrjátíu prósent stráka hafa ekki áhuga á náminu og 14 prósent stúlkna. Skólaleiði er því nokk- uð algengur á meðal grunn- skólanema en nýlega skrifaði Edda Kjartans- dóttir grein á kritin.is um nauð- syn þess að leita orsaka skólaleiða til að bregðast við honum. „Ég vildi brýna fyrir kennurum að vera vakandi fyrir því að hugs- anlega eru aðrar undirliggjandi orsakir en leti, þrjóska eða óþægð þegar nemendur virka ekki vinnu- samir í tímum. Það er mikilvægt að vita orsökina áður en gripið er inn í málið. Því það þjónar litlum tilgangi að bregðast við kvíðnu barni með því að leggja fyrir það meira ögrandi verkefni. Á sama hátt er lítils virði fyrir nemanda að stimpla hann latan ef verkefnin sem lögð eru fyrir hann eru bæði óáhugaverð og hafa lítil tengsl við raunveruleika hans.“ Í grein Eddu kemur fram að kennarar upplifi stundum óskir foreldra um að barnið þeirra fái meira krefjandi verkefni sem ásakanir um að þeir standi sig ekki vel. Eins eru foreldrar oft viðkvæmir fyrir gagnrýni kenn- arans á hegðun barnsins. Því er svo mikilvægt að unnið sé með skólaleiða nemenda markvisst og faglega. - ebg Leita orsaka áhugaleysis: Margir haldnir skólaleiða EDDA KJARTANSDÓTTIR Áætlað er að upplýsingakerfið Mentor, sem stór hluti nemenda, foreldra og kennara nota daglega, verði endurskrifað frá grunni og breytingarnar innleiddar í áföngum á þessu skólaári og því næsta. Mentor hefur nú þegar kynnt nýtt viðmót kerfisins sem var þróað sérstaklega með spjaldtölvur og snjallsíma í huga. „Spjaldtölvuvæðing í skólastarfi fer eins og eldur í sinu um allan heim. Bækur og verkefni eru að færast yfir á rafrænt form og samskipti kennara og heimila eru stöðugt að aukast,“ segir í frétt sem birtist á heimasíðu fyrirtækisins þegar nýja viðmótið var kynnt. „Við byrjum á að opna nýja kerfið fyrir nemendur og for- eldra núna í október og kennarar fylgja síðan í kjölfarið smátt og smátt,“ segir Vaka Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri Mentors á Íslandi, í fréttinni. - hg Spjaldtölvuvæðingin teygir anga sína inn í grunnskólana: Mentor-kerfið tekur breytingum BREYTT KERFI Hér má sjá skjá- skot af nýju viðmóti Mentors. Leik- og grunnskólar borg- arinnar, auk frístundaheim- ila, greiða ekki aðgangseyri í tengslum við skipulagt starf í Fjölskyldu- og húsdýragarð- inum. Gjaldtöku hefur einnig verið hætt vegna námskeiða fyrir leik- og grunnskóla sem boðið er upp á í garðinum. Á vef Reykjavíkurborg- ar eru áhugasamir kennarar hvattir til að hafa samband við fræðsludeild garðsins. Fjölskyldugarðurinn: Gjaldtöku hætt vegna námskeiða 2005 Um 20% feðra barna sem fædd eru árið 2005 tóku ekkert fæðingarorlof. 2008 Hjá feðrum barna sem fædd voru 2008 var hlut- fallið 16%. 2011 Um 29% feðra barna sem fædd eru á árinu 2011 hafa ekkert orlof tekið. 2013 Rúm 33% feðra barna sem fæddust í fyrra hafa ekkert orlof tekið. Hlutfall feðra sem ekki tóku orlof Líklegt er að hlutfallið breytist eitthvað hjá þeim þar sem frestur er ekki runninn út. Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969 | www.ils.is Kynntu þér breytingar á upplýsingagjöf til neytenda og nýja lánaskilmála Íbúðalánasjóðs vegna nýrra laga um neytendalán á www.ils.is • Greiðslumat sniðið að ákveðinni eign • Aukin upplýsingagjöf við lánveitingu • Nýir lánaskilmálar Ný lög – nýir lánaskilmálar

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.