Fréttablaðið - 01.11.2013, Page 26

Fréttablaðið - 01.11.2013, Page 26
1. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| SKOÐUN | 26 Flestir Íslendingar vilja standa vörð um rétt allra landsmanna til að njóta góðrar og öflugrar heil- brigðisþjónustu, óháð búsetu og efnahag. Heil- brigðiskerfið er mikil- vægasti hlekkur velferð- ar og við erum sammála um að ríkisvaldið beri ábyrgð á fjármögnun heilbrigðisþjónustunnar. En við erum kannski ekki öll talsmenn þess að kosti fjölbreyttra rekstrarforma eigi að nýta til þess að ná árangri jafnt í þjónustu við fólkið og hagkvæmni í rekstri. Á Reykjalundi í Mosfellsbæ er rekin stærsta endurhæfingar- miðstöð Íslands, endurhæfingar- miðstöð í eigu SÍBS, og tók hún til starfa árið 1945 og hefur verið rekin allar götur síðan. Þjón- ustusamningur um starfsemina er gerður við Sjúkratryggingar Íslands en meginbakhjarl starf- seminnar hefur verið í gegnum tíðina Happdrætti SÍBS. En annar dyggur bakhjarl Reykja- lundar í gegnum árin er Styrktar- og sjúkrasjóð- ur verslunarmanna og félagar þar eru hvata- menn að stofnun hollvina- samtakanna. Á Reykjalundi er rekin afar merkileg starfsemi sem er kannski ekki mörgum kunn utan þeirra sem þar hafa notið marg- víslegrar þjónustu. Þar vinna um 200 manns í 160 stöðugildum og árlega njóta um 1.200 sjúklingar endurhæfingar í fjórar til átta vikur í senn og á göngudeild Reykjalundar koma fjögur til fimm þúsund manns á hverju ári, alls staðar að af land- inu. Á Reykjalundi hafa þúsundir einstaklinga náð heilsu á ný eftir áföll af ýmsu tagi og er meðalald- ur þeirra sem þangað sækja ein- ungis um fimmtíu ár. Starfsemin á Reykjalundi er í raun þjónusta í þína þágu á hvaða aldri sem þú ert. Því er það ljóst að Reykja- lundur gegnir gífurlega mikil- vægu samfélagshlutverki í endur- hæfingu sem gerir einstaklingum kleift að komast aftur út á vinnu- markaðinn og verða virkir í sam- félaginu á nýjan leik. Að undanförnu hefur komið saman hópur fólks, m.a. þeir sem notið hafa endurhæfingar á Reykjalundi og aðrir velunn- arar með hlýjar taugar til starf- seminnar undir Helgafelli í Mos- fellsbæ, til að undirbúa stofnun hollvinasamtaka Reykjalund- ar sem verða stofnuð formlega á hátíðarfundi að Reykjalundi laugar daginn 2. nóvember. Ég ætla að verða hollvinur Reykjalundar og vona að það vilj- ir þú líka. Reykjalundur fyrir þig og mig Allraheilagra- og allra- sálnamessa hafa fengið nýtt líf í kirkju og sam- félagi síðustu árin sem minningardagar látinna. Sá siður hefur breiðst út í kirkjustarfi hér á landi að gefa þeim sem hafa misst einhvern nákominn tæki- færi til að koma og heiðra minningu þeirra með því að tendra ljós í kirkjunni. Slíkir siðir sem tengjast dauðanum hjálpa fólki að takast á við sorgina. Það er í anda fagnaðarerindis kristinnar trúar að hlúa að syrgj- endum. Jesús segir í fjallræðunni „sælir eru syrgjendur því þeir munu huggaðir verða“. Þörf þeirra sem hafa misst er oft mikil. Eftir því sem missir- inn er nær, eftir því sem hann er ótímabærari eða skyndilegri, þeim mun meira verður áfallið og sorgin í kjölfarið. Sleit mar bönd minnar ættar snaran þátt af sjálfum mér Segir Egill Skalla- grímsson í Sonartorreki þegar hann tekst á við dauða sonar síns Böðvars. Reynsla skáldsins kallast á við reynslu allra þeirra sem missa ótímabært ein- hvern sem stendur þeim nærri. Eftir slíkt andlát getur það tekið þau mörg ár að ná aftur jafnvægi á líf sitt og þó hverfur sorgin aldrei. Þær stofnanir sem veita syrgj- endum stuðning eru einkum heilbrigðiskerfi og þjóðkirkj- an, einnig í nokkrum mæli skóli og félagsþjónusta. Í hugum alls þorra fólks er sá stuðningur sem prestar og djáknar veita syrgj- endum mikils virði og fólk er oftast mjög þakklátt fyrir. Fag- fólk sem kemur að stuðningi við syrgjendur hefur gert sér grein fyrir að fylgja þarf syrgjendum mikið lengur en áður var talið. Þegar um erfið, ótímabær andlát er að ræða, s.s. við barnsmissi, sjálfsvíg, andlát maka eða for- eldris þá varir fylgdin stundum nokkur ár. Kappkostum að sinna vel köllun okkar að ganga í fótspor Krists, sem fagfólk í stofnunum sam- félagsins, sem aðstandendur og vinir og uppfylla þannig boð hans um að hugga syrgjendur. Sorgin tekur tíma Öryggisdagar Strætó og VÍS hefjast í dag. Þetta er í fjórða sinn sem dag- arnir eru haldnir og reynslan sýnir, svo ekki verður um villst, að átak sem þetta skilar veru- legum árangri. Árið 2010 voru skráð 157 aksturs- tjón hjá Strætó, en árið 2012 hafði þeim fækkað niður í 73, eða um rúm- lega helming. Þetta sýnir okkur að þegar allir leggjast á eitt við að fækka slysum, þá fækkar þeim. Árangurinn er enn eftirtekt- arverðari í ljósi þess að árið 2012 óku vagnar Strætó mun fleiri kílómetra á götum höfuð- borgarsvæðisins en árið 2010, þjónustutími var lengri og farþegum hafði fjölgað mikið. Fækkun slysa á sama tíma ber því vott um þann góða árang- ur sem vagnstjórar hafa náð þegar kemur að öryggi í umferðinni. En umferðaröryggi er ekki átaksverkefni. Við þurfum að sýna árvekni og vinna saman að því að fækka slysum alla daga ársins. Þar ganga atvinnubílstjórar á undan með góðu fordæmi og vagnstjórar Strætó hafa sýnt það á síðustu árum að hægt er að fækka slys- um. Við getum verið stolt af þeim árangri sem náðst hefur, en um leið er möguleiki á að gera enn betur. Það má þó ekki gleyma því að við berum öll ábyrgð í umferð- inni. Fækkun slysa verður trauðla náð nema allir ökumenn leggist á eitt. Við munum gera okkar, en við biðlum til allra um að taka þátt í þessu verkefni með okkur. Við biðjum ykkur um að virða forgang Strætó og sýna því skilning þegar vagnar þurfa að komast út af biðstöðvum og inn í umferðina á ný. Aukinn skiln- ingur okkar allra í umferðinni er forsenda þess að við getum fækk- að slysum, ekki síst í ljósi þess að umferðin eykst ár frá ári. Við erum öll hluti af þeirri umferð og sem samfélag þurfum við öll að taka ábyrgð. Strætó bs. og VÍS munu huga að öryggis- málum næsta mánuðinn. Við munum gefa skilaboð til starfs- fólks okkar, farþeganna, en einn- ig annarra í umferðinni. Vertu með okkur í átakinu og gerum alla daga að öryggisdögum. Allir dagar eru öryggisdagar ➜ Á Reykjalundi hafa þúsundir einstaklinga náð heilsu á ný eftir áföll af ýmsu tagi og er meðalaldur þeirra sem þangað sækja einungis um fi mmtíu ár. ➜ Þær stofnanir sem veita syrgjendum stuðning eru einkum heilbrigðiskerfi og þjóðkirkjan, einnig í nokkr- um mæli skóli og félags- þjónusta. ➜ En umferðaröryggi er ekki átaksverkefni. Við þurfum að sýna árvekni og vinna saman að því að fækka slysum alla daga ársins. HEILBRIGÐIS- MÁL Ragnheiður Ríkharðsdóttir alþingismaður SAMFÉLAG Halldór Reynisson prestur og formaður Nýrrar dögunar UMFERÐ Reynir Jónsson framkvæmdastjóri Strætó bs. Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Hetjan Snowden Það er algjörlega að koma í ljós að Edward Snowden ætti að fá að snúa aftur til Bandaríkjanna sem hetja. Gott ef hann er ekki verðugur þess að fá heiðursmerki– eða skrúð- göngu fyrir sig á Broadway. Uppljóstranir hans sýna að stjórnendur njósnaþjónusta hafa gjörsamlega gengið af göflunum. Þar er fremstur í flokki Keith Alexander, forstjóri NSA. Þar á bæ voru menn að hlera allt og alla, nú kemur í ljós að páfinn var í þeim hópi. Uppljóstranir Snowdens birtast í virtum blöðum eins og Washington Post, það bendir ekki sérstaklega til þess að þær séu glæpsamlegar. Það er alltaf varasamt þegar leyniþjónustur eru orðnar ríki í ríkinu– við þekkjum mörg dæmi þess. http://eyjan.pressan.is/silfuregils/ Egill Helgason AF NETINU

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.