Fréttablaðið - 01.11.2013, Qupperneq 32
FÓLK|
Loftgæði skipta fólk miklu máli. Við öndum inn og út um 20 þúsund sinnum á hverjum degi sem gerir
um 12.000 lítra af lofti. Því er mikil-
vægt að loftgæði séu góð svo þau vinni
ekki gegn heilsu fólks. „Við Íslendingar
erum svo heppnir að búa við hreint
og gott loft. En kannski er það þess
vegna sem við hugum ekki nægilega vel
að loftgæðum inni á heimilum okkar,“
segir Ólafur Óskarsson, verslunar-
stjóri Bosch-búðarinnar í Hlíðasmára
3. Mikil umræða hefur verið í íslensku
samfélagi um myglusvepp, sem getur
verið afar erfitt vandamál. Ólafur segir
fólk hins vegar ekki gera sér grein fyrir
að loftgæði versni til muna á veturna.
„Rakastigið utandyra lækkar mikið yfir
vetrartímann á norðurslóðum,“ útskýrir
hann og bætir við að því hjálpi ekki að
opna glugga. „Loft utandyra sem er við
frostmark (0°C) getur aðeins innihaldið
fjögur grömm af vatni á hvern rúm-
metra en í innilofti við 20 gráður geta
verið 20 grömm af vatni á rúmmetra,“
segir Ólafur. Mælt er með því að raka-
stig á heimilum sé á bilinu 40-60% en
yfir vetrartímann er ekki óalgengt að
rakastig á íslenskum heimilum falli
niður undir 30%. „Rakaskort á heimilum
á vetrartíma er til dæmis hægt að yfir-
vinna með hjálp rakatækis. Best er síð-
an að hafa bæði raka- og lofthreinsitæki
á heimilum til þess að stemma stigu við
m.a. myglusvepp, ryki, bakteríum og
þurru lofti.“
Bosch-búðin selur raka- og loft-
hreinsitæki frá svissneska fyrirtækinu
Stadler Form. Fyrirtækið hefur fimmtán
ára reynslu á þessum markaði og fram-
leiðir breiða línu af rakatækjum sem eru
seld út um allan heim. „Lofthreinsi- og
rakatækin frá Stadler Form eru vönd-
uð og fagurlega hönnuð eins og fjöldi
verðlauna ber vitni um,“ segir Ólafur,
en nánari upplýsingar um fyrirtækið má
nálgast á www.stadlerform.ch. Þá má
einnig nálgast upplýsingar um framboð
og verð á www.bosch.is.
Rakatækin hafa öll silfurkubb sem
eyðir bakteríum ef frá er talið minnsta
tækið, sem er ferðarakatæki. Rakatækin
eru af nokkrum gerðum, bæði tæki sem
gefa frá sér gufu og hljóðbylgur og tæki
sem gefa frá sér raka á náttúrulegan
hátt í gegnum síu þar sem engin gufa er
sjáanleg. Lofthreinsitækin draga að sér
loft sem fer í gegnum öflugar síur sem
hreinsa loftið. Einnig er hægt að fá sam-
byggt raka- og lofthreinsitæki.
VINNUR GEGN MYGLU-
SVEPP OG BÆTIR LOFT
BOSCH-BÚÐIN KYNNIR Kjörrakastig á heimilum er milli 40 til 60% en
algengt rakastig á íslenskum heimilum að vetrarlagi er undir 30%. Góð leið til
að auka loftgæði er að hafa bæði raka- og lofthreinsitæki á heimilum.
ÓLAFUR ÓSKARSSON
KOSTIR ÞESS AÐ HAFA KJÖRRAKASTIG (Á MILLI 40 TIL 60%) ERU MEÐAL ANNARS:
• Nef, augu og húð finna ekki fyrir
þurrki.
• Hættan á að smitast af flensu
minnkar: Veirur og bakteríur lifa
í styttri tíma í lofti með hærra
rakastigi.
• Minna álag á slímhúð sem
minnkar líkur á veikindum.
• Betri svefn.
• Minni þreyta og betri ein-
beiting.
• Ryk minnkar: Þeir sem þjást
af einhvers konar ofnæmi geta
dregið andann djúpt því raki
bindur ryk.
• Ver húsgögn, viðargólf og mál-
verk gegn sprungum og aflögun.
• Stilling hljóðfæra breytist síður.
LOFTHREINSITÆKI:
• Hreinsar loftið og stuðlar að
góðri heilsu.
• Eyðir ólykt, ryki, svifryki,
bakteríum, veirum, frjókornum,
rykmaurum og öðrum örverum í
híbýlum okkar.
EYKUR LOFTGÆÐI
Rakatæki af gerðinni Oskar má sjá hér
á myndinni. Á neðri myndinni er loft-
hreinsitæki af gerðinni Viktor.
Barnaheillum
Jól með
30 % afsláttur
af öllum vörum
föstudag og laugardag
Langur laugardagur
Lagersa a
Seljum nokkrar gerðir af ljósmyndavörum
með góðum afslætti í dag
og á morgun kl. 10-16
Myndavélar, töskur, þrífætur,
skannar, flöss, vatnsheld hús, filterar o.fl.
www.fotoval.is • mail: fotoval@fotoval.is