Fréttablaðið - 01.11.2013, Side 36
FRÉTTABLAÐIÐ Tíska og hönnun. Gómsæti og dans. Dr. Bragi. Eva Dögg Sigurgeirsdóttir. Hrekkjavakan. Hrekkjavökukökur. Förðun. Helgarmaturinn og Spjörunum úr
4 • LÍFIÐ 1. NÓVEMBER 2013
Ég hef ferðast víða
um heiminn svo að
matarþekking
mín er mjög
víðtæk. Ég
ákvað að
bókin
myndi
inni-
halda
upplifan-
ir mínir
af góm-
sætum mat
sem passar
við ýmis tilefni
„Þetta er svolítið nýtt og spennandi fyrir mig
en bókin var skrifuð í stíl við sjónvarpsþáttinn
minn, Framandi og freistandi, sem sýndur var
á RÚV, segir Yesmine Olsson og bætir við: „Ég
hef ferðast víða um heiminn svo að matarþekking
mín er mjög víðtæk. Ég ákvað að bókin myndi inni-
halda upplifanir mínir af gómsætum mat sem
passar við ýmis tilefni,“ útskýrir hún. Bókin
heitir Í tilefni dagsins og er væntanleg á
næstunni. Hún er ætluð sem hvatning
til fólks að skella sér í eldamennskuna
og styðjast við uppskriftir í bókinni
sem henta viðkomandi degi vikunn-
ar. „Ég er búin að byggja þetta upp
í tíu mismunandi kafla en er með
sömu áherslu og áður á krydd-
aða rétti.“ Yesmine segir bók-
ina hafa verið stórt og mikið
verkefni en hún slær hvergi
slöku við því í nóvember
mun hún vinna þétt með
kokkunum í Hörpudiskn-
um í Hörpu með uppskots-
matseðli af réttum úr bók-
inni. Jafnframt heldur hún
áfram að bjóða upp á ind-
versk matreiðslunámskeið
heima hjá sér. Hægt er að
panta námskeið á yesmine.is
Flest fólk elskar súkkulaði
og segist hún því hafa fengið þá
skemmtilegu hugmynd að koma með
sitt eigið eftirréttasúkkulaði á mark-
að sem mun vera stökkt hreint chili-súkkulaði.
„Þetta verður fáanlegt í Hörpudisknum og á
völdum kaffihúsum því ég verð jú að hafa tíma
til að búa þetta til,“ segir hún að lokum.
GÓMSÆTI FÓLK
ELSKAR SÚKKULAÐI
Listakokkurinn Yesmine Olsson hefur nóg fyrir
stafni en hún gefur út matreiðslubókina Í til-
efni dagsins, heldur námskeið heima hjá sér og
kemur með nýtt chili-súkkulaði á markað.
„Við erum að bjóða upp á krefj-
andi danstíma fyrir þá sem eru í
atvinnumennsku, að klára dans-
listarnám og þá sem eru lengra
komnir. Kameron Bink kennir
þessa tíma en hann á glæsileg-
an feril að baki og er hokinn af
reynslu,“ segir Nanna Ósk Jóns-
dóttir eigandi Dance Center
Reykjavík. Hann dansar með
ballettflokknum Rock the ballet
og hefur tekið þátt í fjölmörg-
um uppfærslum víða um heim.
Árið 2007 komst hann á topp
tíu-lista í alþjóðlega sjónvarps-
þættinum So You Think You Can
Dance en sú reynsla kom honum
á kortið. Nanna segir Bink vera
mjög fjölhæfan kennara þar sem
hann kenni bæði nútímadans,
hip hop og djassfunk. Hún telur
Bink vera einn af fáum dönsurum
sem geta dansað bæði klassísk-
an dans og hipphopp. „Oft eru
dansarar mjög sérhæfðir í einum
stíl en svona menn opna náttúru-
lega dyrnar fyrir dansara sem
vilja komast út í heim þar sem
samkeppnin er gríðarlega mikil,“
útskýrir hún. Aðspurð segir hún
þau vera að reyna að tengja ís-
lenska dansara í atvinnumennsku
við erlenda markaðinn og því
ætti fólk að nýta sér þetta tæki-
færi. Nánari upplýsingar fást á
dancecenterreykjavik.is
HREYFING
DANSAÐU Á TOPPNUM
Nanna Ósk Jónsdóttir rekur dansskólann
Dance Center Reykjavík og hvetur dansara
til að dansa með Kameron Bink.
Nanna Ósk Jónsdóttir, eigandi Dance Center Reykjavík, og Kameron Bink dansari.
WWW.FASHIONACADEMY.IS - INFO@FASHIONACADEMY.IS - 571 5151
Á„ ður en ég hóf nám í snyrtifræði skoðaði ég vel þá valkosti
sem voru í boði. Fashion Academy varð fyrir valinu o g stóð
undir öllum mínum væntingum. Aðbúnaður er til fyrirmyndar
og aðstaðan glæsileg. Skipulag, námsefni og kennsla er með
besta móti. Ég mæli 100% með Fashion A cademy Reykjavík.“
Ágústa Árnadóttir, útskrifuð úr snyrtifræði frá
Fashion Academy mars 2013
Nám í snyrtifræði
Eins árs nám í snyrtifræði á framhaldskólastigi
Allir kennarar eru faglærðir
Tækjakostur skólans er glænýr
Námið er lánshæft hjá LÍN
Skólinn býður nemendum upp á fjármögnun skólagjalda
NÝJAR ANNIR HEFJAST Í NÓVEMBER - MARS - ÁGÚST