Fréttablaðið - 01.11.2013, Side 40
FRÉTTABLAÐIÐ Tíska og hönnun. Gómsæti og dans. Dr. Bragi. Eva Dögg Sigurgeirsdóttir Hrekkjavakan. Hrekkjavökukökur. Förðun. Helgarmaturinn og Spjörunum úr
8 • LÍFIÐ 1. NÓVEMBER 2013
E
va Dögg er borgarbarn í
húð og hár en hún ólst upp í
Reykjavík hjá móður sinni,
Eddu Björgvinsdóttur leik-
konu, og Gísla Rúnari Jóns-
syni, stjúpföður sínum. Leik-
listin heillaði ekki og sem barn
þráði hún að ferðast um heiminn
og verða flugmaður en fyrst og
fremst vildi hún verða ofurskvísa,
rétt eins og amma Gréta. Um
nokkurra ára skeið bjó Eva Dögg
í Santa Fe í Kaliforníu í Banda-
ríkjunum og lærði Fashion Merc-
handising og útskrifaðist árið
2011 með MBA-gráðu í viðskipt-
um og stjórnun frá Háskólanum í
Reykjavík.
Hefurðu verið eitthvað í leik-
listinni? Lékstu ekki örlítið í
myndinni Hrafninn flýgur? „Mín
fyrsta reynsla í sjónvarpi var
þegar ég var plötuð til að leika
í sjónvarpsmynd sex ára gömul
og foreldrar mínir lofuðu mér að
fara í margar dótabúðir ef ég bara
leiddi hermann yfir torg. Ef vel
er að gáð þá sést hermaður leiða
barn sem lítur út fyrir að vera
eskimói sökum grátbólgins and-
lits. Það var ég. Svo var ég pínd í
áramóta skaup og þjáðist fyrir það
þegar mér var strítt í skólanum út
af því. Mig langaði aldrei að verða
leikkona því mér fannst þetta
alveg hræðilegt enda alveg nóg af
leiklist allt í kringum mig,“ segir
hún brosandi.
Þú hef gjarnan nefnt að
mamma þín, Edda Björgvinsdótt-
ir, sé sú sem að þú lítur mest upp
til. Er það ekki rétt? „Ég lít upp
til allra jákvæðra dugnaðarforka
og mamma tilheyrir þeim hópi.
Mér finnst í raun íslenskar konur
ótrúlega duglegar konur og í senn
þær glæsilegustu í heiminum. Ef
konur eru jákvæðar, sjálfum sér
samkvæmar og góðar manneskj-
ur þá lít ég upp til þeirra. Mamma
er mjög skemmtileg og á það til
að ráðleggja mér því hún veit allt-
af betur. Það héldu allir að það
væri bara áramótaskaup alla daga
á mínu heimili þegar ég var barn
en, ó nei, mamma mín var ábyggi-
lega strangasta mamman á svæð-
inu.“
Fyrsta tískublogg landsins
Hefur þú ætíð verið meðvituð um
tískustrauma? „Það má segja að
ég hafi verið meðvituð um tísku-
strauma frá blautu barnsbeini.
Ég man að foreldrar mínir, sem
voru róttækir hippar, áttu ekki
orð þegar ég fimm ára stóð uppi
á steini á leiðinni yfir Kjöl og
ímyndaði mér að ég væri á hælas-
kóm. Ég talaði stanslaust um skó
sem ég hafði sé í glugga í verslun
Steinars Waage á Laugavegi. Þeir
voru úr gallaefni með gulu blómi
og smáhæl. Vá hvað mig dreymdi
um að eignast þá.“
Nú rekur þú tískuvefinn tíska.
is. Hvað varð til þess? „Ég opnaði
fyrst tiska.is árið 1999 en þá var
þetta í raun fyrsta netverslunin á
Íslandi sem seldi fatnað, fylgihluti
og snyrtivörur. Þá var orðið blogg
ekki til og því má segja að þetta
hafi verið fyrsta tískubloggið á Ís-
landi því við vorum einnig með
tískufréttir. Eftir að ég eignað-
ist litlu prinsana mína ákvað ég að
vinna heima í stað þess að fá mér
au-pair því ég uppgötvaði að ég
gæti ekki unnið fullt starf sem úti-
vinnandi framakona. Ég ákvað að
opna vefinn á ný og í dag erum við
sjö sem stöndum að honum. Það
eru Dóra Lind, Sigga Kling, Edda
EVA DÖGG KONUR ERU MEÐ
HUNDRAÐ HLUTVERK Í DAG
Eva Dögg Sigurgeirsdóttir er stórglæsileg fjögurra barna móðir. Hún rekur sinn eigin tískuvef og á næstunni kemur út fyrsta bókin hennar, Tískubókin – í stíl
við þig. Lífi ð ræddi við Evu Dögg um stórbrotið fjölskyldulíf, barneignir á miðjum aldri, vonbrigði með skólakerfi ð og listina að lifa fyrir daginn í dag.
NAFN: Eva Dögg Sigurgeirsdóttir.
ALDUR: 43 ára.
STARF: Ritstjóri og mamma
HJÚSKAPARSTAÐA: Í sambúð með
Bjarna Ákasyni
BÖRN: 4 – Fannar Daníel 20 ára,
Sara Ísabella 14 ára, Bjarni
Gabríel 5 ára og Viktor Áki 2
ára. Svo á ég þrjár stjúpdætur
IÐA-bókakaffi Vesturgata 2a 101 Rvk.
opið til 22 alla daga.