Fréttablaðið - 01.11.2013, Síða 48
Lífi ð
FRÉTTABLAÐIÐ Tíska og hönnun. Gómsæti og dans. Dr. Bragi. Eva Dögg Sigurgeirsdóttir. Hrekkjavakan. Hrekkjavökukökur. Förðun. Helgarmaturinn og Spjörunum úr
HELGAR MATURINN SÚKKULAÐIKÓKOSOSTAKAKA
Hvern faðmaðir þú síð-
ast? Strákana mína áður en
þeir fóru í skólann.
En kysstir? Manninn minn
áður en ég fór í vinnuna.
Hver kom þér síðast á
óvart og hvernig? Þegar
Heiðar bauð mér og vinkonu
minni til NY á tónleika sem
mig langaði rosalega til að
fara á. Frábær ferð. (Takk
fyrir mig, Heiðar minn.)
Hvaða galla í eigin
fari ertu búin að um-
bera allt of lengi? Á erf-
itt með að treysta, vil helst
gera allt sjálf svo að hlutirn-
ir séu alveg eins og ég hugs-
aði þá.
Er óþolinmóð og vil að hlut-
irnir gerist strax!
Ertu hörundsár? Nei,
það þekkist ekki á okkar
heimili að fara í fýlu eða
vera sár. Við bara ræðum
hlutina.
Dansarðu þegar eng-
inn sér til? Ég dansa alla
daga, ein og þegar aðrir
sjá til. Kemur manni í gírinn.
Hvenær gerðirðu þig
síðast að fífli og hvern-
ig? Mér finnst gaman að
gera mig að fífli og fá aðra
til að hlæja. En ætli það
hafi ekki verið þegar ég var
nýflutt heim og fór öfugan
hring á hringtorginu í Kópa-
voginum og mætti bíl.
Hringirðu stundum í
vælubílinn? Nei, það geri
ég ekki. Það er minn stærsti
kostur.
Tekurðu strætó? Nei, ég
keyri bíl og hjóla mikið.
Hvað eyðirðu mikl-
um tíma á Facebook á
dag? Allt of miklum. Hætti
á Facbook í byrjun árs og
eyddi 70% vina og kolféll
svo og byrjaði aftur. Face-
book er ávanabindandi.
Ferðu hjá þér þegar þú
hittir fræga eða heils-
arðu þeim? Heilsaði
þeim þar sem það var dag-
legt brauð að hitta þekkt-
ar manneskjur meðan við
bjuggum úti en þegar ég
hitti Gary Barlow þá titraði
ég og hafði enga stjórn á
taugunum.
Lumarðu á einhverju
sem fáir vinir þínir vita
um þig? Nei, ég er eins
og opin bók. Hef ekkert að
fela.
Hvað ætlarðu alls ekki
að gera um helgina? Ég
ætla ekki að baka og alls
ekki að taka til.
Eik Gísladóttir
ALDUR: 38 ára
STARF: Sit í ritstjórn Kvenna-
blaðsins. Menntuð grafísk-
ur hönnuður og hárgreiðslu-
kona.
...SPJÖ
RU
N
U
M
Ú
R
Botn:
80 g Now-möndlumjöl (Fjarðarkaup, Hag-
kaup, Lifandi markaður)
20 g kókoshnetuhveiti
12 g Fiber
Sprinkle (má
líka nota mulið
hrökkbrauð)
1 eggjahvíta
1 dl möndlumjólk
Fylling:
450 g kotasæla
250 g kvark/hreint skyr/grísk jógúrt (1%)
2 msk. Now-erythriol (Fjarðarkaup, Hag-
kaup, Lifandi markaður)
1 msk. Walden Farms Marshmallow Dip
(má sleppa)
1 tsk. súkkulaði, sykurlaust Jello-pudding-
mix
1,5 msk. Hershey‘s ósætt kakó (Kostur)
Now-kókoshnetudropar
Aðferð
1. Hræra allt gumsið sem fer í
botninn saman þar til það verð-
ur að deigi og hnoða í kúlu.
2. Setja kúluna á smjörpapp-
írsklæddan botn úr smelluformi (20-25 cm
í þvermál).
3. Setja annan smjörpappír yfir kúluna
og fletja út með kökukefli þar til botninn
hefur fyllt út í kantana.
4. Henda lummunni í 160°C heitan ofn í
um 10 mínútur meðan fyllingin er gerð.
5. Hræra fyllinguna saman með töfra-
sprota.
6. Hella yfir botninn sem ætti nú að vera
orðinn fallega gullinbrúnn.
7. Inn í ofn í 30-35 mínútur. Kakan á að
vera aðeins „wobbly“ þegar hún kemur
úr sólbaðinu.
Ragnhildur
Þórðardóttir
einkaþjálfari
http://ragganagli.
wordpress.com/