Fréttablaðið - 01.11.2013, Blaðsíða 58
Ég var þunglyndur, misnotaði lyf
og sat bara og glamraði á gítar
allan daginn. Og svo las ég um
Grænland,“ sagði bókmennta-
verðlaunahafi Norðurlandaráðs,
Kim Leine, í viðtali við Berlingske
tidende fyrr á þessu ári um upp-
haf hugmyndarinnar að baki
verðlaunabókinni. Tilefni viðtals-
ins var að bók hans Profeterne i
Evighedsfjorden, eða Spámenn-
irnir í Botnleysufirði eins og hún
mun heita á íslensku, var tilnefnd
til bókmenntaverðlauna Norður-
landaráðs sem hún svo hlaut á mið-
vikudaginn.
Leine, sem er hjúkrunarfræð-
ingur að mennt, bjó á Grænlandi
í 15 ár og lesningin sem hann
vísar til í kvótinu hér á undan var
grein eftir Mads Lidegaard sem
fjallaði um sögu trúboðanna Maríu
Magdalenu og Habakúks sem
stofnuðu trúarsöfnuð í Botnleysu-
firði í lok átjándu aldar. „Ég vissi
ekki hvers vegna þetta var svona
mikilvægt, en sagan lá áfram í
undirmeðvitundinni og mig lang-
aði til að skrifa hana,“ segir Leine.
Lesturinn á greininni átti sér
stað árið 2002, þegar Leine hafði
enn ekki skrifað neina skáldsögu,
og það var ekki fyrr en árið 2009,
eftir að hann hafði gefið út þrjár
bækur, sem hann fór fyrir alvöru
að vinna í henni. Aðalpersónan er
danskur prestur, Morten Falck,
sem, út úr hálgerðri neyð, fer til
starfa á Grænlandi og verður for-
vitinn um sögurnar af sértrúar-
söfnuðinum í Botnleysufirði.
Leine fæddist í Noregi árið 1961
en flutti 17 ára gamall til Dan-
merkur í þeim tilgangi að kynnast
föður sínum sem hann hafði aldrei
þekkt. Faðirinn misnotaði hann
kynferðislega og til að flýja fortíð-
ina flutti Leine til Grænlands árið
1989 og bjó þar til 2004. „Græn-
land er afgerandi áhrifavaldur í
því að ég náði frelsi en samtímis
olli það krísu,“ segir Leine í við-
talinu í Berlingske og bætir við
að þegar tveir menningarheimar
mætist sé mikil hætta á vanda-
málum.
Í rökstuðningi valnefndar bók-
menntaverðlauna Norðurlanda-
ráðs fyrir því að veita Spámönn-
unum í Botnleysufirði verðlaunin
segir að bókin sé grípandi sögu-
leg skáldsaga um kúgun og upp-
reisn, margslungið verk þar sem
fram komi andúð á nýlendustefnu
og hugleiðingar um manneskjuna
sem líkama og hugsun.
Íslenskir lesendur munu geta
lesið bókina á móðurmálinu í mars
á næsta ári því rithöfundurinn Jón
Hallur Stefánsson vinnur nú af
kappi við að þýða hana. Bókaút-
gáfan Draumsýn gefur bókina út
á Íslandi og þar fengust þær upp-
lýsingar að Leine væri væntan-
legur til landsins í mars til að
fagna útgáfunni og fylgja bókinni
úr hlaði.
fridrikab@frettabladid.is
Grænland var af-
gerandi áhrifavaldur
Kim Leine hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í ár fyrir skáldsöguna
Profeterne i Evighedsfj orden. Leine bjó á Grænlandi í 15 ár og segir þá vist hafa
haft afgerandi áhrif á sig. Bókin er væntanlegu á íslensku í mars á næsta ári.
Á SIGURSTUNDU Kim Leine með verðlaunagripinn Norðurljós en auk hans hlýtur verðlaunahafinn vegleg peningaverðlaun.
MYND: MAGNUS FRODERBERG/NORDEN.ORG
GESTASÖNGKONA Ingibjörg Guðjónsdóttir
hefur ekki áður sungið með hópnum og
segist hlakka mikið til.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Listasafn Reykjavíkur og tónlistarhópurinn
Elektra Ensemble hafa um nokkurt skeið staðið
fyrir tónleikahaldi á Kjarvalsstöðum. Á þessum
fyrstu tónleikum vetrarins fær tónlistarhópur-
inn Ingibjörgu Guðjónsdóttur sópransöngkonu
til liðs við sig. Dagskrá tónleikanna er fjölbreytt;
þjóðlegur Beethoven og Bliss og amerískt hlað-
borð.
„Þetta verður glæsileg veisla fyrir kammer-
tónlistarunnendur,“ segir gestasöngkonan Ingi-
björg. „Fjölbreytt dagskrá og mjög ólík verk.“
En hvernig kom það til að hún fór að syngja með
hópnum? „Við Ástríður Alda höfum unnið dálítið
saman og þegar hún bað mig um þetta hugsaði ég
mig sko ekki um,“ segir Ingibjörg. „Það er ótrú-
lega gaman að fá að vinna með svona stórkost-
legum konum og ég hlakka mikið til.“
Elektra Ensemble er skipaður fimm ungum
tónlistarkonum, þeim Ástríði Öldu Sigurðar-
dóttur píanóleikara, Emilíu Rós Sigfúsdóttur
flautuleikara, Helgu Björgu Arnardóttur klarín-
ettuleikara, Helgu Þóru Björgvinsdóttur fiðlu-
leikara og Margréti Árnadóttur sellóleikara.
Hópurinn var útnefndur Tónlistarhópur Reykja-
víkurborgar 2009 og gekk í kjölfarið til sam-
starfs við Listasafn Reykjavíkur um tónleikaröð
á Kjarvalsstöðum. - fsb
Veisla fyrir kammerunnendur
Ingibjörg Guðjónsdóttir verður gestasöngvari með Elektra Ensemble á
tónleikum hópsins á Kjarvalsstöðum á sunnudagskvöldið.
GLÆSILEGUR HÓPUR Elektra
Ensemble og Kjarvalsstaðir hafa í
nokkur ár verið í samstarfi um tónleika-
hald.
Gámasala!
3+1+1
3 2 1+ +
Brú
nt
Sva
rt
Hvit
t
Verð 299.000 Settið
Sófasett
Höfðabakka 9
Topp Grade Leður
Sími: 864-8685
Opið Virka
daga kl 17-19
laugardaga - sunnudaga
kl 13-17
FRI HEIMSENDING
NÝ SENDING
Save the Children á Íslandi
MENNING 1. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR