Fréttablaðið - 01.11.2013, Síða 68
1. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 44
BAKÞANKAR
Kolbeins Tuma
Daðasonar
„Það er auðvitað mjög huglægt hvað
er ljótt orð, margir tengja það við
merkingu orðsins. Oft eru orðin ljót-
ari þegar þau lýsa einhverju ljótu,“
segir Viktor Orri Valgarðsson,
sem stofnaði Facebook-síðu ásamt
Garðari Þór Þorkelssyni þar sem
leitað er að ljótasta íslenska orðinu.
Þar er hægt að leggja fram tillögu
að orði og þau orð sem fá flest læk
keppa loks um titilinn.
„Þessi keppni er ágætt dæmi um
mátt samfélagsmiðlanna og er afurð
þess að við félagarnir vorum að
ræða keppnina um fallegasta orðið
sem fram fór fyrir stuttu. Okkur
þótti enn áhugaverðara að halda
keppni um ljótasta orðið,“ útskýrir
Viktor Orri.
Síðan var stofnuð fyrir skömmu og
hefur á stuttum tíma fengið tæp eitt
þúsund læk og hafa hundruð orða
verið tilnefnd.
Spurður um einkenni ljótra orða
segir Garðar: „Óheppileg samsetn-
ing hljóða, eins og tvö L líkt og í orð-
inu fjall, hljómar ekkert of vel.“
Aðstandendur síðunnar eiga þó í
stökustu erfiðleikum með að velja
ljótasta orðið sjálfir. „Orð sem erfitt
er að segja og skrifa eru mér ofar-
lega í huga, eins og gengilbeina sem
er mjög asnalegt orð, einnig eru orð
eins og geirvarta og úlnliður ofar-
lega í huga,“ bætir Viktor við.
Ljótasta orðið verður valið á degi
íslenskrar tungu, þann 16. nóvem-
ber. „Við gerum ráð fyrir fjölmennri
samkomu,“ bætir Viktor við að
lokum en frú Vigdísi Finnbogadótt-
ur verður boðið sem heiðursgesti.
- glp
Geirvarta meðal ljótustu orðanna
Tveir piltar standa fyrir keppni um val á ljótasta orði sem til er í íslensku máli.
LEITA AÐ
LJÓTASTA
ORÐINU Viktor
Orri Valgarðs-
son og Garðar
Þór Þorkelsson,
aðstandendur
síðunnar þar
sem leitin fer
fram.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Skoðanakannanir
Túrtappi
Geirvarta
Úlnliður
Trauðla
Hné
➜ Skoðanakannanir
vinsælt orð
„Ég held að við séum alveg örugg-
lega tæknilegasta hljómsveit lands-
ins,“ segir Viðar Jónsson, stofnandi
hljómsveitarinnar Þryðjy Kos-
synn! sem samanstendur af tækni-
mönnum Þjóðleikhússins.
Tæknimennirnir Axel Cortes,
Halldór Snær Bjarnason og Krist-
inn Gauti Einarsson ásamt Viðari
mynda hljómsveitina sem hefur
verið starfandi í tvö ár en þeir
leika og syngja fjölbreytta tón-
list á fimm tungumálum. „Sveitin
var stofnuð í einhverju flippi en
við syngjum lög á íslensku, ensku,
spænsku, þýsku og dönsku,“ bætir
Viðar við.
Þessir lykilstarfsmenn Þjóð-
leikhússins njóta aðstoðar ýmissa
gestasöngvara sem margir hverjir
eru þjóðþekktir og jafnvel heims-
þekktir. „Ólafía Hrönn er fastur
gestasöngvari hjá okkur en hún er
einnig umboðsmaður okkar. Það er
öllum starfsmönnum Þjóðleikhúss-
ins boðið að ganga í hljómsveitina
en við erum samt fjórir sem mynd-
um þennan kjarna,“ útskýrir Viðar.
Þryðjy Kossynn! kemur fram á
hljómleikum á Café Rosenberg á
laugardag og hefjast þeir klukkan
22. „Með okkur koma fram heims-
þekktir einstaklingar sem ég get
því miður ekki nafngreint,“ bætir
Viðar við að lokum. - glp
Tæknilegasta hljómsveit landsins
Tækni-hljómsveitin Þryðjy Kossynn! skartar tæknimönnum Þjóðleikhússins.
MIKIL TÆKNISVEIT Hljómsveitin Þryðjy Kossynn! er skipuð tæknimönnum
Þjóðleikhússins. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Góðan daginn, Tumi,“ segir brosmild-asta og skemmtilegasta afgreiðslu-
kona heimsins þegar ég legg leið mína í
Bónus úti á Granda. Allar mínar pæling-
ar um hvaða peningabatterí reki hvaða
stórverslun hafa skipt litlu máli und-
anfarin ár. Ef það er virkur dagur
og ég á ferðinni á milli 12 og 19 er
bleika svínið sótt heim. Útrætt mál.
KRAKKARNIR elska að hitta
Franciscu sem man nöfnin á þeim
og okkur hjónunum jafnvel þótt
margar vikur hafi liðið frá síðustu
heimsókn. Ekki bara á okkur held-
ur oftar en ekki fólkinu á undan
og eftir í röðinni. Brosið er
alltaf á sínum stað og spurn-
ingar um líðan. Engin tilgerð.
Bara góðmennska og kurteisi
sem fólk lærir ekki á nám-
skeiðum.
EKKI þekki ég kaup og kjör
Franciscu hjá stórversluninni
en ég vona svo sannarlega að
þau séu vel yfir meðallagi
miðað við hvað gengur og gerist í stétt-
inni. Fyrir mína parta væri ég líklegri
til að fara í næstu verslun ef ekki væri
fyrir hina yndislegu afgreiðslukonu.
Sem er líklega svo yndisleg að henni
kæmi ekki til hugar að biðja um launa-
hækkun.
EN hvaðan kemur þessi gleði í hjarta
Franciscu sem birtist í fallegu brosi og
viðmóti hennar við alla? Öll fjölskyldan í
6.000 kílómetra fjarlægð í Sambíu. Hún
í tveimur störfum og ferðast Reykavík á
enda í strætó til að komast til vinnu.
„GUÐ er eina leyndarmálið! Ef ég er
eitthvað hnuggin hugsa ég bara til Hans
og þá verð ég glöð í hvert skipti,“ sagði
Francisca í viðtali í Fréttablaðinu fyrir
fjórum árum. Þrátt fyrir að vera „gjafa-
pakkafermdur“ deili ég ekki trú á hið
heilaga. Raunar hef ég verið afar gagn-
rýninn á flest það sem við kemur trúar-
brögðum í gegnum tíðina. En þegar
birtingarmynd staðfastrar trúar er hin
heilaga Francisca á kassanum í Bónus,
þá er guð ekkert annað en hið besta mál.
Heilög Francisca
LAU & SUN: 16.00
SUN: 20.00
SJÁ SÝNINGARTÍMA Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM
SAMBÍÓA KR. 1000 Á GRÆNT OG KR. 750 Á APPELSÍNUGULT
SPARBÍÓ
THE HOLLYWOOD REPORTER
ENTERTAINMENT WEEKLY
VARIETY
LOS ANGELES TIMES
VARIETYQC
THE HOLLYWOOD REPORTER
EMPIRE
EMPIRETOTAL FILM
SMÁRABÍÓ
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
PHILOMENA KL. 8 - 10
CAPTAIN PHILIPS KL. 8 / FURÐUFUGLAR 3D KL. 6
KONAN Í BÚRINU KL. 6 / INSIDIUS CHAPTER 2 KL. 10.30
THOR 2 KL. 5.30 - 8 - 10.30
THOR 2 LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.30
FURÐUFUGLAR 2D KL. 3.20 - 5.40
FURÐUFUGLAR 3D KL. 3.20
CAPTAIN PHILIPS KL. 5 - 8 - 10.45
INSIDIUS CHAPTER 2 KL. 8 - 10.20
KONAN Í BÚRINU KL. 8 - 10.15
MÁLMHAUS KL. 5.45
TÚRBÓ 2D ÍSL.TAL KL. 3.30
Miðasala á: og
HÁSKÓLABÍÓ
PHILOMENA KL. 5.45 - 8 - 10.15
CAPTAIN PHILIPS KL. 10
FRANCES HA KL. 6
KONAN Í BÚRINU KL. 10.15
GRAVITY 3D KL. 8 - 10.50
MÁLMHAUS KL. 5.45 - 8
HROSS Í OSS KL. 6 - 8
-H.V.A., FBL - H. S., MBL EMPIRE THE NEW YORK TIMES
“SKEMMTILEGASTA
ÍSLENSKA KVIKMYND SEM
ÉG HEF SÉÐ LENGI!”
- BERGSTEINN SIGURÐS-
SON, DJÖFLAEYJAN RÚV
EMPIRE TOTAL FILM
PHILOMENA 5:50, 8, 10:10
FURÐUFUGLAR 3:50, 6 3D
FURÐUFUGLAR 3:50 2D
CAPTAIN PHILLIPS 6, 9
ABOUT TIME 9
AULINN ÉG 2 - ÍSL TAL 3:50 2D
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
The New York Times
Los Angeles Times
Empire
ÍSL TAL
5%