Fréttablaðið - 08.11.2013, Blaðsíða 2
8. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
FÓLK Auk þess að sinna starfi sínu
sem forstjóri Latabæjar er Magn-
ús Scheving vinsæll fyrirlesari og
líklega eftirsóttasti íslenski fyrir-
lesarinn í útlöndum.
Magnús er reglulega pantaður
á ráðstefnur þar sem fjallað er um
ýmislegt sem viðkemur viðskipt-
um og leiðtogahæfni. Fyrirlestr-
ana sitja forstjórar, markaðsstjór-
ar og aðrir stjórnendur fyrirtækja.
Hann hefur haldið fyrirlestra og
verið á pallborðum með þekktum
einstaklingum á borð við Colin
Powell, fyrrverandi varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, og Paul
Grugman, Nóbelsverðlaunahafa í
hagfræði. Þá hefur Magnús talað
fyrir þjóðarleiðtogum og kónga-
fólki, til dæmis Filipusi, ríkisarfa
Spánar, á góðgerðarsamkomu þar
í landi. Nýlega kom hann svo fram
á ársþingi hjartalækna í Róm – svo
verkefnin eru fjölbreytt.
Magnús er nýkominn heim frá
Noregi og Mexíkó. Þangað var
hann fenginn til að halda hvetjandi
ræður á ráðstefnum og í háskólum
um markmiðasetningu.
„Markaðssamtök Noregs báðu
mig um halda fyrirlestur á árlegri
ráðstefnu sinni eftir að hafa horft
á mig tala með Seth Godin á ráð-
stefnu ÍMARK á Íslandi,“ segir
Magnús.
„Þá lá leiðin suður til Mexíkó
þar sem ég talaði meðal annars
á leiðtogaráðstefnu fyrir framan
tvö þúsund yfirmenn í viðskiptalíf-
inu,“ segir Magnús en ráðstefnan í
Mexíkó er sú allra stærsta í Suður-
Ameríku og margir heimsþekktir
einstaklingar stíga þar á svið.
„Í þetta sinn talaði ég ásamt
Felix Baumgartner,“ segir Magn-
ús, en Baumgartner vakti athygli
heimsbyggðarinnar þegar hann
rauf hljóðmúrinn í frjálsu falli úr
39 kílómetra hæð í fyrra.
Þaðan hélt Magnús áfram ferð
sinni um Mexíkó og hélt meðal
annars ræður fyrir starfsmenn
stórrar hótelkeðju þar í landi og
hjá einum virtasta viðskiptahá-
skóla í Mexíkó, Monterey School
of Technology.
Í næstu viku heldur Magnús til
Rússlands þar sem hann á að tala
fyrir fréttamenn og sjónvarpsfólk
þar í landi og eftir áramót er fyr-
irlestur í Washington DC í Banda-
ríkjunum á döfinni, sem er liður í
samstarfi Magnúsar og Michelle
Obama – að gera Ameríku heilsu-
samlegri.
Aðspurður segist Magnús ekki
getað annað eftirspurn. „Ég hef
gert þetta í tuttugu ár og undan-
farin fimm ár hafa þetta verið um
tíu ráðstefnur á ári – meira kemst
nú ekki fyrir í dagskránni hjá
mér vegna anna við annað,“ segir
Magnús. olof@frettabladid.is
Heldur ræður fyrir
kóngafólk og forstjóra
Magnús Scheving er eftirsóttur fyrirlesari og heldur hvatningarræður um allan heim,
stundum með heimsþekktu fólki á borð við Felix Baumgartner ofurhuga. Magnús
segist ekki anna eftirspurn. Næst á dagskrá er heilsuefling í Washington DC.
GETUR EKKI ANNAÐ EFTIRSPURN Magnús er vinsæll fyrirlesari, en hann hefur um
tveggja áratuga reynslu af því að halda ræður og fyrirlestra um allan heim. WOBI/SCHEVING
Í pallborði með fyrirmennum
Magnús hefur haldið fyrirlestra og verið á pall-
borðum með þekktum einstaklingum á borð við
Colin Powell, fyrrverandi varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, og Paul Grugman, Nóbelsverð-
launahafa í hagfræði.
REYKJAVÍK „Þetta hefur auðvitað tekið sinn tíma en okkur miðar vel
í heildina. Við stefnum að því að vera búin um næstu mánaðamót en
umferð verður hleypt um gatnamót Vitastígs og Hverfisgötu á allra
næstu dögum,“ segir Jón Halldór Jónasson, upplýsingafulltrúi Reykja-
víkurborgar.
Framkvæmdir hafa staðið yfir á Hverfisgötu frá því í sumar en
unnið er að endurnýjun götukaflans á milli Klapparstígs og Vitastígs.
„Hverfisgatan er hægt og bítandi að rísa upp úr jörðu og í sína endan-
legu mynd.“ - ka
Nú sér fyrir endann á framkvæmdum við Hverfisgötu:
Verklok ætluð í lok mánaðarins
MENN AÐ STÖRFUM Verslunareigendur við Hverfisgötu geta brátt tekið gleði sína
á ný því lok framkvæmda við götuna eru í augsýn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Drífa, var þetta bara error?
„Þetta var tölvuvírus.“
Drífa Hjartardóttir er sveitarstjóri Rangár-
þings ytra. Þar voru keyptar tölvur án útboðs
fyrir grunnskólann á Hellu fyrir þrjú hundruð
þúsund krónur umfram leyfilegt hámark.
ALÞINGI Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson forsætisráðherra segir
undirbúning skuldaaðgerða ríkis-
stjórnarinnar á áætlun. Þetta kom
fram í máli hans á Alþingi í gær.
Von er á tillögum frá sérfræðinga-
hópi um höfuðstólslækkun lána í
lok þessa mánaðar. Þegar er hafin
vinna við gerð frumvarps um málið.
„Þó að tillögurnar séu ekki full-
kláraðar þá viljum við nýta tímann
til þess að undirbúa þetta þann-
ig að það þurfi ekki að líða langur
tími eftir að til-
lögurnar birtast
áður en hægt er
að leggja fram
frumvörp,“ segir
Sigmundur.
Stjórnarand-
staðan gagn-
rýndi ráðherra
fyrir innihalds-
lausa skýrslu.
Árni Páll Árna-
son, formaður Samfylkingarinnar,
sagði ríkisstjórnina ekki ætla að
efna kosningaloforð um skuldaleið-
réttingu. „Það eru ekki bara nefnd-
ir og engar efndir heldur enn fleiri
nefndir,“ sagði Árni.
Helgi Hjörvar, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, tók í sama streng og
sagði skýrslu forsætisráðherra svo
ómerkilega að ráðherrar Sjálfstæð-
isflokksins hafi ekki nennt að sitja
undir henni. „Formaður Sjálfstæð-
isflokksins, Bjarni Benediktsson,
yfirgaf húsið klukkan hálf tólf og
er ekki viðstaddur umræðuna. Fjar-
vera formanns Sjálfstæðisflokksins
við þessa umræðu er auðvitað hróp-
andi,“ sagði hann.
Sigmundur segir þó ekkert
óvenjulegt við fjarveru ráðherra
Sjálfstæðisflokks. „Það er ekkert
nýtt að ráðherrar sem ekki eru að
taka þátt í tiltekinni umræðu séu
ekki viðstaddir. Ráðherrar eru oft
að vinna á nokkrum stöðum sam-
tímis og því á þetta ekki að koma á
óvart,“ segir Sigmundur. - hks
Forsætisráðherra flutti á Alþingi skýrslu um aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna skuldavandans:
Segir vinnu við skuldaaðgerðir á áætlun
SIGMUNDUR
DAVÍÐ
VÍSINDI Kúfskelin sem fannst við norðurströnd
Íslands árið 2006 er mun eldri en talið var í fyrstu.
Vísindamenn hafa nú komist að því að kúfskelin er
í raun 507 ára gömul og ekki 405 ára eins og áður
var haldið fram. Skelin er langlífasta dýr jarðar
og þegar hún drapst árið 2006 fékk hún viðurkenn-
ingu þess efnis í Heimsmetabók Guinness.
Aldur skeljarinnar er reiknaður með því að
telja hringi hennar, líkt og þekkist með tré, en
var vitlaust reiknaður í upphafi þar sem árhring-
irnir voru það þétt saman að erfitt var að greina
nákvæman aldur. „Við höfðum rangt fyrir okkur í
byrjun og vorum kannski örlítið fljótfærir þegar
við birtum niðurstöðurnar fyrir nokkrum árum.
En nú erum við alveg viss um að við erum búin að
komast að hinum rétta aldri,“ segir Paul Butler,
einn þeirra vísindamanna sem rannsakað hafa
kúfskelina. Kúfskelin var síðar nefnd Ming, eftir
Mingveldinu í Kína, en skelin vaknaði til lífsins á
svipuðum tíma og keisaraættin komst til valda.
Vísindamennirnir segja að með hjálp kúfskelj-
anna sé einnig hægt að komast að því hvernig hita-
stig sjávar hafi þróast síðustu árhundruð. - ka
Kúfskelin sem fannst við norðurströnd Íslands er eldri en raun bar vitni:
Íslenska kúfskelin er 507 ára
ELSTA DÝR JARÐAR Halldór Pálmar Halldórsson líffræðingur
hefur rannsakað kúfskelina. Skelin er 507 ára en ekki 405 ára
eins og áður var talið. MYND/HALLDÓR PÁLMAR HALLDÓRSSON
GRIKKLAND, AP Gríska óeirða-
lögreglan rýmdi eldsnemma í
gærmorgun höfuðstöðvar gríska
ríkisútvarpsins ERT í Aþenu.
Starfsemi stöðvarinnar var lögð
niður í sumar.
Fyrrverandi starfsmenn stöðv-
arinnar lögðu húsið undir sig í
júní ásamt velunnurum sínum
ýmsum. Þeir höfðu haldið áfram
að senda út efni á netinu, þar á
meðal fréttir og heimildarþætti.
Enn eru fyrrverandi starfs-
menn ERT að senda út efni á net-
inu á nokkrum stöðum í Grikk-
landi, þar sem útvarpið var með
smærri starfsstöðvar. - gb
Starfsmenn fjarlægðir:
Óeirðalögregla
rýmdi húsnæði
DANMÖRK Það er ekki alltaf tekið
út með sældinni að eiga fína bíla.
Það upplifði miðaldra maður einn
í smábæ á Norður-Sjálandi í vik-
unni.
Hann settist út í Ferrari-bíl sinn
í rólegu hverfi, en ekki vildi betur
til en svo að rafbúnaður í sætum
bilaði með þeim afleiðingum að
sætið þrýstist fram og negldi
manninn fastan upp við stýrið.
Þar sat maðurinn fastur í hálfa
aðra klukkustund þar til nágranni
varð loks var við neyðaróp hans
og gat gert lögreglu viðvart.
Manninum varð annars ekki
meint af. - þj
Óheppinn bíleigandi:
Fastur í Ferrari
í á annan tíma
SPURNING DAGSINS
Verður haldinn laugardaginn 9. nóvember frá kl. 13 - 16 í
húsi Rauða kross Íslands, Efstaleiti 9. Á boðstólum verða fallegir
handunnir munir er tengjast jólunum og heimabakaðar gómsætar
kökur. Þá verða bútar af Héðinsfjarðartrefli til sölu.
Kaffisala.
Verið velkomin.
Ágóði af sölunni rennur til Fjölskyldumiðstöðvar
sem rekin er af Rauða krossinum í Reykjavík með
aðkomu Reykjavíkurborgar og velferðarráðuneytisins.
Nánari upplýsingar á raudikrossinn.is/reykjavik
Jólabasar
Kvennadeildar
Rauða krossins