Fréttablaðið - 08.11.2013, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 08.11.2013, Blaðsíða 58
8. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 34 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Fræðsla 20.00 Gufinnur Jakobsson heldur fyrirlestur um Mikjál erkiengil í húsi Lífspekifélags Íslands, Ingólfsstræti 22. Tónlist 12.00 Föstudaginn 8. nóvember mun kammerhópurinn Stilla koma fram á hádegistónleikum í Háteigskirkju. Miðaverð 1.000 krónur. 20.00 Fílharmónía syngur Klezmer ásamt Ragnheiði Gröndal og hljóm- sveit í Áskirkju, föstudag kl. 20. 22.00 Ljótu hálfvitarnir stíga á svið á Café Rosenberg klukkan 22.00 í kvöld. 23.00 Magnús Einarsson syngur og leikur á Ob-La-Dí-Ob-La-Da á Frakka- stíg 8 klukkan 23.00 í kvöld. Bækur 17.00 Efnt verður til útgáfuhátíðar á Eymundsson, Skólavörðustíg klukkan 17.00 í tilefni af útgáfu bókarinnar Blindhríð eftir Sindra Freysson. Höf- undur les upp úr bókinni. Myndlist 15.30 Opnun sýningar í Norræna húsinu í tengslum við ráðstefnuna Tenging Norður 2013. 27 listamenn frá norðlægum slóðum sýna verk sem tengjast efni ráðstefnunnar; listir, list- kennsla og sjálfbærni. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@ frettabladid.is. „Ég ætla að fara yfir ferilinn í tónum og tali,“ segir Helena Eyjólfsdóttir söngkona um efni tón- leikanna í Súlnasal Hótel Sögu á laugardagskvöld- ið. Af nógu er að taka því ófáar dægurperlur hefur hún sungið um ævina. Yfirskrift tónleikanna er Syngjandi í sextíu ár enda byrjaði Helena að syngja opinberlega um tíu ára aldur og hefur því staðið á sviðinu í um sex áratugi. Með Helenu í Súlnasalnum verður einvalalið tón- listarmanna sem hún hefur unnið með í gegn- um tíðina; Jón Rafnsson bassaleikari, Sigurður Flosason blásturshljóðfæraleikari, Árni Ketill Friðriksson trommuleikari, Gunnar Gunnarsson hljómborðsleikari, Friðrik Bjarnason gítarleikari, Brynleifur Hallsson gítarleikari og Grímur Sig- urðsson gítar-, bassa- og trompetleikari. Söngv- arar með Helenu verða Þorvaldur Halldórsson og Alfreð Almarsson. - gun Helena drífur upp ball í Súlnasal Helena Eyjólfsdóttir heldur tónleika og dúndurball á Hótel Sögu annað kvöld. SÖNGKONAN Hún byrjaði tíu ára að syngja opinberlega og er enn að. MYND/AUÐUNN Skaft ahlíð 24 | 105 Reykjavík | 512 5000 | Auglýsingar 512-5401 | visir.is FRÉTTABLAÐIÐ ER HELGARBLAÐIÐ HELGARBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS Ómissandi hluti af góðri helgi VIÐ VISSUM ALLTAF AF HONUM Dætur Hemma Gunn, þær Sigrún, Edda og Eva Laufey, vöndust því að fullvöxnum systkinum fjölgaði með árunum. Málin eru oft alveg hræðileg Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari elskar starfið sitt þótt málin sem hún sækir séu oft óhugnanleg og erfið. Hún lítur björtum augum á tilveruna þrátt fyrir missi fyrsta barns síns og veikindi hinna tveggja. Vígalegu vaxtar- ræktartröllin sameinuð Sylvester Stallone og Arnold Schwarzenegger bárust lengi á banaspjót en leika nú í fyrsta sinn aðalhlutverk í sömu myndinni, Escape Plan. Staðarstolt er uppáhaldsorðið Ragnheiður Skúladóttir stýrir Leikfélagi Akureyrar út úr hol- skeflu skulda, auk þess að ala upp leikhúsfólk framtíðar. „Í tilefni frumsýningar á kvikmyndinni The Broken Circle Break- down mun Bíó Paradís, í samstarfi við Reykjavik Ink, vera með leik þar sem hægt er að vinna boðsmiða á myndina auk gjafabréfs hjá Reykjavik Ink að verðmæti 30.000 krónur,“ segir Ása Baldurs- dóttir hjá Bíói Paradís, en kvikmyndin verður frumsýnd föstudag- inn 15. nóvember. „Húðflúr er eitt af meginþemum myndarinnar og var húðflúr- meistarinn Emilie Guillaume fenginn til að hanna húðflúr í mynd- inni. Þar sem húðflúr er svona áberandi í myndinni ákváðum við að fara í samstarf við húðflúrstofu,“ útskýrir Ása. „Þannig getur fólk birt mynd í athugasemdakerfinu hjá okkur á Facebook af sínu draumahúðflúri – húðflúrið sem flestum líkar við vinnur boðsmiða og inneign á Reykjavík Ink,“ segir Ása, létt í bragði. The Broken Circle Breakdown hefur unnið til fjöldamargra verðlauna, meðal annars áhorfendaverðlauna á Berlin Film Festi- val, Norwegian International Film Festival og Cph:Pix, og Label Europa Cinemas verðlaunanna á Berlin Film Festival. Myndin er framlag Belgíu til Óskarsverðlaunanna 2014. - ósk Húðfl úrleikur af stað í Bíói Paradís Verðlaun eru 30.000 króna inneign á Reykjavík Ink. HÚÐFLÚR EITT AF MEGINÞEMUNUM Á FRUMSÝNINGU Ása Baldursdóttir hjá Bíói Paradís hvetur fólk til að setja mynd af draumahúðflúrinu í athugasemdakerfi Bíós Paradísar á Facebook. MYND/NANNADÍS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.