Fréttablaðið - 08.11.2013, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 08.11.2013, Blaðsíða 4
8. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 94,3% landsmanna notuðu netið til að skoða fréttavefi eða vefútgáfur fjölmiðla á síðasta ári. Fjöldinn hefur aukist jafnt og þétt, en hlutfallið var 77,6 prósent árið 2009. AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Veðurspá Sunnudagur 15-23 m/s TVÍSKIPT HELGI Fyrir þá sem ætla að nýta helgina til útiveru má mæla með morgundeginum því það gengur í S- hvassviðri eða storm á sunnudag. Bjart víða um land á morgun en nokkuð kalt. Hlýnar á sunnudag og víða úrkoma. -1° 8 m/s -1° 7 m/s -2° 6 m/s 3° 7 m/s Á morgun Fremur hægur vindur Gildistími korta er um hádegi 5° 0° 5° 2° 0° Alicante Basel Berlín 26° 14° 10° Billund Frankfurt Friedrichshafen 11° 15° 17° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 10° 10° 23° London Mallorca New York 13° 25° 10° Orlando Ósló París 24° 4° 14° San Francisco Stokkhólmur 15° 7° -4° 4 m/s 0° 11 m/s -4° 7 m/s -2° 6 m/s -3° 2 m/s -3° 4 m/s -9° 5 m/s 0° -1° -2° -5° -3° Snjólaug Ólafsdóttir veðurfréttamaður FJÖLMIÐLAR Umsóknarfrestur um stöðu dagskrárstjóra Útvarps rann út í gær. Fimmtán sóttu um stöðuna. Einungis tvær konur er að finna í hópi umsækjenda, þær Ólínu Þorvarðardóttur, fyrrver- andi alþingismann, og Áslaugu Baldursdóttur. - ka Sótt um starf dagskrárstjóra: Aðeins tvær konur á lista Eftirtaldir sóttu um starf dag- skrárstjóra Útvarps hjá RÚV: Áslaug Baldursdóttir, Davíð Þór Jónsson, Gunnar Gunnarsson, Guðni Tómasson, Helgi Péturs- son, Hjálmar Hjálmarsson, Ingi Rafn Sigurðsson, Jóhann Hauks- son, Kristján Hreinsson, Magnús R. Einarsson, Ólína Þorvarðardótt- ir, Sighvatur Jónsson, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Snorri Ásmunds- son og Þorsteinn Hreggviðsson. ➜ Umsækjendurnir DÓMSMÁL Hæstiréttur mildaði refsingu ökuníðings í sex mánaða fangelsi í stað árs eins og héraðs- dómur dæmdi. Maðurinn var ákærður fyrir akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna, hraðakstur, akstur án ökuréttinda, fíkniefnalagabrot og brot á skilyrðum reynslulausnar. Auk fangelsisvistar er maðurinn sviptur ökuréttindum ævilangt og þarf að greiða tæp sjö hundruð þúsund í sakarkostnað. - ebg Hæstiréttur mildar dóm: Fangelsi fyrir glæfraakstur LEIÐRÉTTING Mistök urðu við gerð grafs með aðsendri grein Leifs Þorbergssonar á bls. 28 í Fréttablaðinu í gær og er beðist velvirðingar á því. Rétt graf fylgir með grein Leifs á Vísi. ORKUMÁL „Það er sárt að borga áfram um eina milljón króna á dag í raforkuskatt sem átti að vera tímabundinn og þurfa á sama tíma að segja fólki upp vegna sparnaðar,“ segir Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi. Rannveig og forsvarsmenn álfyrirtækj- anna á Íslandi hafa síðustu tvö ár gagnrýnt að raforkuskattur stjórnvalda sé enn innheimtur. Upphaflegur samningur þeirra við ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, sem var undirritað- ur í lok árs 2009, gerði einungis ráð fyrir að skatturinn yrði til þriggja ára. Í desember 2012 ákvað sú ríkis- stjórn hins vegar að framlengja samninginn. Ákvörðunin var harðlega gagnrýnd af mörgum þingmönnum stjórnarandstöðu- flokkanna, þar á meðal af þeim Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, forsætisráðherra og Bjarna Bene- diktssyni, fjármála- og efnahags- ráðherra. Samkvæmt fjárlagafrum- varpi núverandi ríkisstjórnar verður framlengingin frá árinu 2012 látin standa til ársins 2015. Stóriðjufyrirtækin þurfa því að greiða um 1,7 milljarða króna í skatt vegna raforkukaupa á næsta ári. „Árið 2010 fórum við í 60 millj- arða króna fjárfestingarverkefni hér í Straumsvík og þá höfðum við skriflega staðfestingu frá Steingrími J. Sigfússyni, þáver- andi fjármálaráðherra, um að það yrði staðið við samkomulagið um þennan tímabundna skatt,“ segir Rannveig og heldur áfram. „Álverið var á síðasta ári rekið með tapi í fyrsta sinn í tuttugu ár og það er líklegt að rekstur þessa árs skili tapi upp á rúman millj- arð króna og á sama tíma er þessi skattur lagður á. Fólk verður að gera sér grein fyrir því að það að standa ekki við gefin loforð og gerða samninga er afar slæmt fyrir orðspor Íslands meðal erlendra fjárfesta,“ segir Rann- veig. Spurð hvort Rio Tinto Alcan á Íslandi ætli að skoða lagalega stöðu sína segir Rannveig að fyr- irtækið sé ekki búið að gefa upp alla von um að fyrri orð standi. „Við höfum reynt að koma okkar sjónarmiðum á framfæri og munum gera það áfram.“ haraldur@frettabladid.is Fækka fólki en borga háar upphæðir í raforkuskatt Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi, vonar að staðið verði við samning um að orkuskattur verði ekki framlengdur. Skatturinn verður látinn standa til ársins 2015, þvert á fyrri orð leiðtoga stjórnarflokkanna. RANNVEIG RIST SKJALIÐ Skriflega staðfestingin frá Steingrími J. Sigfússyni, þáverandi fjár- málaráðherra, um að skatturinn yrði ekki framlengdur. „Ég vil þó nota tækifærið til að nefna eitt atriði hér í lokin vegna þess að það sýnir– það er ekki hægt að kalla það annað en ósvífni núverandi ríkisstjórnar. Það er framganga stjórnarinnar varðandi skatt á raforku, raforkuskattinn, þar sem búið var að gera samkomulag við fyrirtæki sem góðfúslega tóku þátt í því að fjármagna framkvæmdir eða útgjöld ríkisstjórnarinnar, jafnvel með því að greiða skatta fyrir fram til nokkurra ára eins og sum stóriðjufyrir- tækin gerðu samkvæmt samningi um að það yrði bara til ákveðins tíma. Svo kemur hæstvirtur forsætisráðherra, eftir að hafa framlengt þessa skattlagningu, og segir að víst hefði verið staðið við samkomulagið, samkomulagið hefði verið að hafa þetta bara til ákveðins tíma en nú sé sá tími liðinn og þá sé hægt að setja skattinn á aftur. Þessir útúrsnúningar eru náttúrlega svo ósvífnir og grófir að þeir eru til þess fallnir að hræða hvern þann sem hefur verið að velta fyrir sér að fjárfesta í atvinnuuppbyggingu á Íslandi frá því. Vonandi verður skaðinn ekki langvarandi, vonandi tekst nýrri ríkisstjórn fljótt að sýna fram á að hún haldi loforð og samninga betur en sú sem ég vona að fari frá næsta vor.“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Alþingi, 6. desember 2012. „Fyrir nokkrum vikum síðan bar ég það upp við hæstvirtan atvinnuvegaráðherra hvernig á því stæði að það væri ekki staðið við gefin loforð til stóriðjunnar um að hann [raforkuskatturinn] væri tímabundinn skattur. Með þessu fjárlagafrumvarpi er verið að framlengja sérstakan skatt af seldri raforku. Þetta er í raun og veru skattur sem átti einungis að gilda tímabundið og er fyrst og fremst greiddur af stóriðjufyrirtækjunum. Svikin loforð á borð við þetta eru, ásamt öðru, til þess fallin að fæla menn frá því að koma með fjármagn til Íslands.“ Bjarni Benediktsson, Alþingi, 3. desember 2012. ➜ Viðbrögð forsvarsmanna ríkisstjórnarinnar við framlengingu samningins um raforku- skatt árið 2012. SIGMUNDUR D. GUNNLAUGSSON BJARNI BENEDIKTSSON EFNAHAGSMÁL Jesper Rangvid, prófess- or í fjármálum við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn, segir ábyrgð dönsku bankanna á kreppunni allt aðra en þeirra íslensku. „Dönsku bankamennirnir ráku kannski bankana illa á tímabili en siðferðis- lega gerðu þeir ekki mikið rangt. Enginn dómur hefur fallið í Danmörku í tengslum við kreppuna en þau dómsmál sem verða rekin verða af allt öðrum meiði og ekki eins alvarleg og á Íslandi,“ segir Jesper. Jesper er formaður nefndar sem rannsakaði orsök og afleiðingar fjármálakreppunnar í Dan- mörku og kynnti hann helstu niðurstöður nefndar- innar í Seðlabankanum í gær. Hann segir að á meðan framþróun sé í efnahagsmálum á Íslandi sé efnahags- kerfi Danmerkur nú að taka á sig skell- inn. „Atvinnuleysi eykst enn í Danmörku og afleiðingar hrunsins eru enn áber- andi í samfélaginu. Íslendingar geta aftur á móti stjórnað gjaldmiðli sínum sem kemur sér vel fyrir til dæmis ferðaþjón- ustu og útflutning. Að sama skapi var það íslenska krónan sem olli því hversu djúpt krísan risti á Íslandi,“ segir Jesper. -ebg Dómsmál vegna bankahrunsins í Danmörku af öðrum meiði en á Íslandi: Ábyrgð íslenskra banka meiri JESPER RANGVID STJÓRNSÝSLA Yfirfasteignamats- nefnd segir eiganda íbúðar á Vatnsstíg eiga að borga fasteigna- gjðld sem hún væri atvinnuhús- næði en ekki íbúarhúsnæði. Borgin hækkaði gjöld á íbúðinni úr 0,2 prósentum í 1,65 prósent þar sem hún er leigð til ferðamanna þegar eigandinn er að heiman. „Óumdeilt er að kærandi hefur boðið ferðamönnum gistingu í íbúð sinni gegn endurgjaldi og hefur hann til þess tilskilið rekstrar- leyfi,“ segir matsnefndin. - gar Úrskurður um fasteignamat: Borgi meira af íbúð í gistingu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.