Fréttablaðið - 08.11.2013, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 08.11.2013, Blaðsíða 36
FRÉTTABLAÐIÐ Nanna Bryndís Hilmarsdóttir. Heimilið. Lífsstíll. Helgarmaturinn og Spjörunum úr. 8 • LÍFIÐ 8. NÓVEMBER 2013 N anna Bryndís er með báða fætur á jörðinni þrátt fyrir að upplifa smjörþef- inn af heimsfrægð ásamt hljómsveitarmeðlimum sínum í Of Monsters and Men. Eftir að hafa spilað saman í ein- ungis tvær vikur vann hljóm- sveitin Músíktilraunir. Þau höfðu enga hugmynd um hvað væri handan við hornið enda kom frægðarljóminn skyndi- lega. Hvað dreymdi þig um að verða þegar þú varst yngri? „Mig lang- aði að verða tónlistarkona og var alltaf með litlar textabækur þar sem ég skrifaði niður texta á ensku en ég var kannski bara níu ára. Svo þegar ég komst á ung- lingsárin þá kom áhuginn fyrir alvöru og ég fór að læra á gítar í tónlistarskóla í nokkur ár. Það er mikið af íþróttafólki í fjölskyld- unni minni sem hefur áhuga á fótbolta þannig að tónlistaráhug- inn hjá mér kom eins og þruma úr heiðskíru lofti.“ Hætti í myndlist fyrir tónlistina Nanna Bryndís ólst upp og bjó í Garðinum þar til hún varð 18 ára. Þaðan flutti hún til Kefla- víkur, bjó á vellinum í stúdenta- görðunum og fór í Fjölbrauta- skóla Suðurnesja. Þegar hún fluttist búferlum til Reykjavík- ur fór hún að vinna í leikskóla og vídeóleigu til að geta leigt íbúð með vinkonu sinni. Áhug- inn á að skapa togaði í hana og þegar hún var komin í myndlist- arskólann gripu örlögin í taum- ana og leiddu hana á vit tónlist- arinnar. Nú tilheyrir hún hljóm- sveitinni Of Monsters and Men ásamt Brynjari Leifssyni, Ragn- ari Þórhallssyni, Arnari Rós- enkranz Hilmarssyni og Krist- jáni Páli Kristjánssyni. Þeirra fyrsta plata, My Head Is an Ani- mal, náði toppsæti á vinsælda- lista í Ástralíu, Íslandi, Írlandi og US Rock and Alternative Charts og lagið Little Talks var á topp-tíu listanum hjá flestum alþjóðlegum útvarpsstöðum. Hvernig varð hljómsveit- in Of Monsters and Men til? „Ég kynntist Brynjari í fram- haldsskóla en við vorum vön að hittast í geymslu heima hjá afa hans, sitja á teppi og spila,“ segir hún og hlær. „Ég var oft að spila ein og var orðin leið á því svo ég hvatti hann oft til að spila með mér. Raggi var feng- inn til að spila með okkur á Airwaves árið 2009 á Hressó. Arnar trommari kom svo í bandið því hann var vinur hans Ragga. Í raun voru þeir bara að hjálpa mér í byrjun en í kring- um Músíktilraunir vorum við Raggi farin að semja saman og við ákváðum í sameiningu að verða hljómsveit.“ Hvaðan kemur nafnið, Of Monsters and Men? „Það kemur frá Ragga en við vorum með ýmsar hugmyndir en hann var kominn með þetta nafn. Við vorum ekkert að hugsa út í það að þetta yrði nafnið sem myndi standa á plötuumslögum og skiltum úti í heimi.“ Heimfrægð handan við hornið Árið 2010 unnuð þið Músíktil- raunir og hluti af verðlaunum ykkar var að spila á Air waves. Var það ykkar stökkpallur út í tónlistarlífið erlendis? „Við vorum náttúrulega nýbyrjuð þegar við unnum Músíktilraunir en við vorum ekki búin að vera hljómsveit nema í tvær vikur. Þarna sáum við möguleika á því að fá smá umfjöllun og láta taka eftir okkur. Við vorum ekki að búast við því að vinna og því var þetta voðalega skrítið og nýtt allt saman. Eftir það spiluðum við á stofutónleikum á Air waves og útvarpsstöðin frá Seattle KEXP tók upp lagið Little Talks. Í framhaldi af þessu voru margir þættir sem gerðu það að verkum að við fengum tækifæri erlendis. Þetta gerðist svo hratt allt saman.“ Hver er svo leiðtoginn í band- inu, hver stjórnar, ert það þú? „Nei, ég ætla ekki að segja það. Það er enginn einn sem stjórnar. NANNA BRYNDÍS ÞETTA ER SKEMMTILEGASTA STARF Í HEIMI Nanna Bryndís Hilmarsdóttir er konan í hljómsveitinni Of Monsters and Men. Aðeins 24 ára er hún búin að ferðast og spila víða erlendis með strákunum í bandinu og segist vera að upplifa drauminn. Lífi ð rædddi við Nönnu Bryndísi og spurði hana út í upphafi ð að ævintýrinu, tónlistarlífi ð og hvernig það er að vera komin heim eftir 18 mánaða tónleikaferðalag um heiminn. Uppáhalds MATUR? Kjúklingur í mangósósu með banönum og kókós, mmm DRYKKUR? Morgunsafi VEITINGAHÚS? Bæjarins beztu VEFSÍÐA? Ég er pínu háð tumblr.com VERSLUN? Undanfarið þykir mér gaman að kíkja í Iðu og sjá allar fínu bækurnar. HÖNNUÐUR? Jör, ég er mjög spennt fyrir kvenfatalínunni sem er að koma. HREYFING? Jóga DEKUR? Hanga undir sæng í vondu veðri og horfa á eitthvað gott. NAFN: Nanna Bryndís Hilmarsdóttir ALDUR: 24 ára STARF: Tónlistarkona HJÚPSKAPARSTAÐA: Er í sambandi Það vekur alltaf athygli að vera stelpan í bandinu þrátt fyrir að ég hafi aldrei hugs- að um sjálfa mig sem stelpu í tón- list frekar en að vera strákur í tónlist IÐA-bókakaffi Vesturgata 2a 101 Rvk. opið til 22 alla daga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.