Fréttablaðið - 08.11.2013, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 08.11.2013, Blaðsíða 32
FRÉTTABLAÐIÐ Hönnun. Kokteilar og ævintýri. Nanna Bryndís Hilmarsdóttir. Heimilið. Lífsstíll. Helgarmaturinn og Spjörunum úr. 4 • LÍFIÐ 8. NÓVEMBER 2013 BRAND-Y.R.U. Vinur minn hann- ar þessa skó og ég á nokkur pör og þessir eru uppá- halds. Fólk lítur snöggt á þá og heldur að það standi CK. Aðrir skoða lengur og svo fæ ég viðbrögð- in sem eru ýmist góð eða WHAT? Capulet- leðurjakki. Leðurjakk- ar eru minn veikleiki, ég fæ aldrei nóg af þeim. Þessum sá ég vinkonu mína í og ég varð að fá hann. Hún þekkti eiganda merkisins þannig við skelltum okkur í bíl- túr og keyptum hann og ég fékk 50% afslátt, sem er ekki leiðinlegt. Ég er ástfangin. Der- húfur eru mikið uppá hald. Sérstaklega svart- ar með einhverjum blótsyrð- um eða sjokkerandi staðhæf- ingum. Þessi er sú eina sem er frekar venjuleg en hvern- ig ég eignaðist hana er langt frá því að vera venju- legt. Gítarleikarinn Slash og ég skiptumst á. Hann fékk mína sem á stóð „FUCK EVERYTHING“ og ég hans þegar við hittumst fyrir utan Sayers Club þar sem hann kom fram seinna það kvöld með derhúfuna mína. Við getum sagt að ég hafi dáið og farið til himna það kvöld. Svört Ray Ban- sólgleraugu. Myndin segir allt sem segja þarf. É g elska súkkulaði og hef lengi hrifist af ólíkum formum þess. Þetta form sem ég valdi fyrir borð- ið 70% er kunnuglegt flest- um því þetta er líklega formið sem flestir hugsa um þegar talað er um súkkulaði,“ segir Anna Þór- unn Hauksdóttir vöruhönnuður. Anna Þórunn segir hugmyndina að 70% borðunum vera tengda góðri minningu frá æskuárum hennar þegar hún sótti balletttíma í miðbæ Reykja- víkur þar sem súkkul- aðiverk- smiðjan Nói og Sir íus var. „Þegar ég steig út úr strætó, tók þessi blíða, dísæta angan öll völd og fylgdi mér alla leið upp á fjórðu hæð en súkkul- aðiverksmiðjan var einmitt í sama húsi og ballettskóli Sigríð- ar Ármann heitinnar.“ Anna Þór- unn hefur starfað sem sjálfstæður vöruhönnuður síðan hún útskrif- aðist úr Listaháskóla Íslands árið 2007. Hún frumsýndi 70% borð- in á Hönnunarmars á þessu ári og hafa þau vakið mikla athygli. Birst hafa umfjallanir á hönnun- arbloggum á borð við Cool Hunt- ing og fleiri bloggum. Einnig hafa borðin fengið umfjöllun í króatíska blaðinu Moja, finnska hönnunar- blaðinu Glorian Koti og september- blaði Milk Decoration. „Formið er mjög stílhreint og formfagurt að mínu mati en ég leitast við að gera stílhreina hluti sem geta lifað um ókomna tíð. Ég vildi hafa fæt- urna granna þannig að borðplat- an (súkkulaðiplatan) nyti sín sem best. Útkoman er borð með sterkan karakter. Eins og með gæðasúkk- ulaði þá vildi ég hafa gegnheilan við og valdi því eik þar sem viður- inn kemur vel í ljós við yfirborðs- meðhöndlun,“ segir Anna Þórunn glöð í bragði. Borðin eru nýkomin í Epal en nánari upplýsingar fást á annathorunn.is „Minningin um gömlu súkkulaðiverk- smiðjuna í miðbænum er mér oft hug- leikin og þeir dagar þegar anganina frá framleiðslunni lagði yfir bæinn svo að maður gat allt að því bragðað á dísætu loftinu. Súkkulaðiplatan er bæði fallegt og virðulegt form sem höfðar til bragð- laukanna en ekki síður til fegurðar- skyns okkar.“ FATASKÁPURINN GRÉTA KAREN Gréta Karen Grétarsdóttir er með seiðandi söngrödd. Hún býr í Los Angeles og vinnur að tónlist. Gréta Karen er með fl ottan fatastíl og segist aldrei eiga nóg af leðurjökkum. SÚKKULAÐIVERKSMIÐJAN VAR INNBLÁSTURINN Anna Þórunn Hauksdóttir vöruhönnuður hefur hannað virðuleg borð sem líta út eins og súkkulaðiplötur. Converse. Strigaskór með háum botni eru „must-have“ fyrir dverga eins og mig. Converse eru fáanlegir í mörgum litum og standa alltaf fyrir sínu. Bolir. Bolirnir eru frá merki sem ég held mikið upp á og heitir Los Angeles based UNIF. www.unifclothing.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.