Fréttablaðið - 08.11.2013, Side 16

Fréttablaðið - 08.11.2013, Side 16
8. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR FJÖLSKYLDAN | 16 Farsímanotendur tékka á sím- anum sínum 150 sinnum á sólar- hring samkvæmt könnun á vegum Nokia-símafyrirtækisins. Það er um það bil sjöttu hverju mínútu ef gert er ráð fyrir átta klukkustunda svefni. Börnum er farið að finnast eins og þau fái ekki næga athygli frá foreldrum sínum. „Mamma talar og talar og talar í símann og pabbi er alltaf í Star- craft,“ sagði skólastúlka í viðtali við fréttamann Stöðvar 2 á dög- unum þegar hún var spurð að því hvort foreldrar hennar notuðu mikið síma og tölvu. „Ég á það til að skrolla í snjall- símanum mínum á meðan ég held á litla barninu mínu og gef því að drekka úr pela. Þetta er auðvitað ekki eins og það á að vera. Þessa stund á maður að vera með hugann við barnið sitt,“ sagði ung móðir í spjalli við Fréttablaðið. Norski sálfræðingurinn Bettina Sunde segir í viðtali á vef norska ríkisútvarpsins að ákjósanlegast sé að hafa slökkt á farsímanum þegar maður er með börnunum sínum. „En ég hef skilning á því að það getur verið ómögulegt fyrir marga. Fyrir flesta er það hræði- lega erfitt.“ Sálfræðingurinn tekur það fram að börn þoli alveg þótt kveikt sé á farsímanum. Þau þurfi ekki allt- af að fá alla athyglina. „Oft hafa þau gott af því að bíða eftir því að röðin komi að þeim, til dæmis ef foreldrarnir eru í miðju sam- tali í símanum. Það er hins vegar vandamál ef þetta gerist þegar þess er vænst að foreldrarnir veiti börnunum sínum athygli.“ Upplifi börnin sí og æ að for- eldrarnir fylgist ekki almenni- lega með þegar börnin þeirra taka þátt í keppnum eða sýning- um þá bregðast sum við með því að vekja sérstaka athygli á sér en önnur gefast upp í samkeppninni við farsímann, að því er sálfræð- ingurinn segir. „Þá halda foreldr- arnir áfram eins og áður þar sem börnin eru hætt að þrasa. Þetta verður slæmur vítahringur,“ segir sálfræðingurinn. Hæfileiki tveggja ára barna til að læra nýtt orð minnkaði greini- lega þegar hringt var í foreldrið á meðan það var að tala við barnið sitt og kenna því orðið. Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem vís- indamaðurinn Benjamin Kenward við Háskólann í Uppsölum hefur greint frá. ibs@frettabladid.is Ertu oft í farsímanum þegar þú ert með barninu þínu? Farsímanotendur tékka á símanum sínum sjöttu hverju mínútu. Börnum finnst þau stundum afskipt. Ákjósan- legast er að slökkva á símanum þegar börnin eiga að njóta athyglinnar, segir norskur sálfræðingur. Þegar kennslustundum í tónlist var fjölgað urðu nemendurnir ánægðari með árangur sinn í skólanum auk þess sem sjálfs- traust þeirra jókst. Þetta eru nið- urstöður finnskrar samanburðar- rannsóknar sem tók til yfir eitt þúsund nemenda, níu og tólf ára, víðsvegar í Finnlandi. Mikill munur reyndist vera á ánægju þeirra sem fengu aukna tónlist- arkennslu og hinna sem fengu jafnmarga tíma og áður. Rann- sakendur, sem eru doktorsnem- ar við Háskólann í Jyväskylä í Finnlandi, benda á að tengsl séu á milli ánægju nemenda og starfs- ánægju kennara auk fjarvista þeirra vegna veikinda. Niðurstöður rannsóknar í finnskum skólum: Tónlistarkennsla gerir nemendur glaðari og eykur sjálfstraust Hugmyndasmiðja fyrir börn hefur verið opnuð á Kjarvalsstöðum. Markmiðið með henni er að bæta enn frekar aðgengi og áhuga hjá yngri gestum safnsins á list og listsköpun. „Þetta er rými sem býður upp á fjölbreytta möguleika til að upplifa og fræðast. Þetta á ekki að líkjast skólastofu, heldur höfum við feng- ið innblástur frá arabískri setu- stofu. Þarna eru til dæmis engin borð,“ segir Guðfinna Mjöll Magn- úsdóttir vöruhönnuður, sem hann- að hefur hugmyndasmiðjuna. Í hugmyndasmiðjunni er svo- kallað innblástursbókasafn með forvitnilegum bókum sem fjöl- margir listamenn og hönnuðir hafa sérstaklega mælt með til að kveikja nýjar hugmyndir og inn- blástur. Guðfinna segir að safninu sé ætlað að örva ímyndunarafl barnanna. Þarna eigi þau að geta verið í ævintýraheimi og teiknað á blað sínar eigin hugmyndir. Í vetur verða meðal annars haldnar svokallaðar örsmiðjur í hugmyndasmiðjunni þar sem öll fjölskyldan getur spreytt sig á hinum ýmsum listformum undir leiðsögn listamanna. - ibs Nýjung fyrir gesti á Kjarvalsstöðum: Hugmyndasmiðja fyrir börn á öllum aldri Á vef Barnasáttmála Samein- uðu þjóðanna, barnasattmali.is, er að finna fróðleik, gagnvirk verkefni og leiki um Barnasátt- málann og mannréttindi barna. Verkefnin eru bæði fyrir yngri og eldri börn. Meginmarkmið með vefnum er að börn og fullorðnir ● þekki Barnasáttmála Samein- uðu þjóðanna og efni hans, ● viti að börn eiga sjálfstæð réttindi, ● átti sig á að börn þurfa sér- staka vernd og umönnun umfram þá sem fullorðnir eru, ● viti að börn eiga rétt á að láta skoðanir sínar í ljós og hafa áhrif, ● skilji að Barnasáttmálinn kveður á um jafnræði allra barna. Vefur Barnasáttmála SÞ: Verkefni og leikir um réttindi barna Hágæða Fissler pottar ÚTSÖLUSTAÐIR: Fissler. Perfect every time. SUÐURLANDSBRAUT 26 - REYKJAVÍK - SÍMI 569 1500 Umboðsmenn um land allt ht.is LAUGAVEGI 178. Sími: 568 9955. RÉTTINDI Börn eiga sjálfstæð réttindi, að því er segir í Barnasáttmálanum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL UPPTEKINN Börnin eru stundum í samkeppni við farsímann. NORDICPHOTOS/GETTY Í TÓNMENNT Tónlistarkennsla í Aust- urbæjarskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Á KJARVALSSTÖÐUM Börn af leik- skólanum Austurborg í hugmyndasmiðj- unni. HILDUR KOLBRÚN ANDRÉSDÓTTIR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.