Fréttablaðið - 08.11.2013, Blaðsíða 26
FÓLK|HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn
Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
■ FJÖRUFERÐ
Fjörur landsins eru vanmetin náttúru-
paradís og ævintýraland fyrir fróðleiks-
fúsa krakka. Þar má safna kuðungum,
skrifa í sandinn og pota í ýmislegt mið-
ur kræsilegt. Ekki sakar að taka með
gott nesti, til dæmis heitt kakó.
■ FERÐ Í DÝRABÚÐ
Langflest börn elska dýr. Höfuðborgar-
búar, sem ekki hafa aðgang að sveit,
þurfa þó ekki að leita langt eftir dýrum.
Dýrabúðir geta verið prýðis áfanga-
staður í helgarrölti fjölskyldunnar.
Fiskar, hamstrar, kanínur og páfagauk-
ar gleðja geðið.
■ NÝTUM BÓKASÖFNIN
Bókasöfn eru heillandi staður bæði
fyrir börn og fullorðna. Þar má kúra sig
niður með góða bók. Einnig má athuga
á vefsíðum bókasafnanna hvort þau
bjóði upp á sögustund um helgina.
■ GÖNGUTÚRINN KLIKKAR EKKI
Útivera göfgar manninn og ekki síður
krakkana. Sama hvort gengið er innan-
bæjar eða ekið út fyrir bæinn þá hressir
góður göngutúr alla við. Þegar heim er
komið mætti síðan bjóða upp á kræsingar.
■ SPILAÐ Á SPIL
Þegar veðrið býður ekki upp á annað
en inniveru er tilvalið að grípa í spil.
Ólsen ólsen og veiðimaður standa fyrir
sínu en þeir sem eiga borðspil sem
henta fjölskyldunni ættu endilega að
nýta sér þau.
■ BÖKUNARSTUND
Mörg börn hrífast af eldamennsku og
vilja ekkert fremur en hjálpa mömmu
og pabba við hana. Því getur verið
gaman að baka með þeim brauð eða
kökur sem auðvelt er að eiga við.
■ HEIMSÓKNARTÍMI
Svo má alltaf skella sér í heimsókn til
vina og ættingja enda lyftir það geði
allra að eiga góð samskipti.
FRÍTT FJÖLSKYLDUFJÖR
Helgarfrí er framundan og fjölskyldan getur átt gæðastundir saman. Ýmislegt er
hægt að bralla saman sem kostar lítið sem ekkert.
FJÖRUFERÐ
Strendur landsins eru
vanmetin náttúruperla
og útivistarparadís.
NORDICPHOTOS/GETTY
Þórey Sigþórsdóttir, leikkona og raddþjálfi, er með námskeiðið Konur á tímamótum í Skálholti um
helgina. „Námskeiðið hefst í kvöld og er
ætlað konum sem standa á tímamótum
og vilja öðlast tól og tæki til að tengja sig
við líkama og rödd,“ útskýrir Þórey. „Ég
er að tengja raddþjálfun og líkama til að
styrkja konur að koma fram og tjá sig.
Þess utan gefst tækifæri til að slappa af,
njóta fallegrar náttúru og borða hollan
og ljúffengan mat,“ segir Þórey.
Lögð verður áhersla á að konur geti
með þessu námskeiði styrkt nærveru
sína í gegnum einfalda hugleiðslu, önd-
unaræfingar, vinnu með orku raddarinn-
ar og líkamsæfingar. „Þetta er tækifæri
til að tengja sig og þjálfa í samskiptum.
Við munum opna röddina í gegnum
rétta öndun en æfingarnar eru einfaldar.
Einnig verður gestafyrirlesari, Jóhanna
Magnúsdóttir, guðfræðingur og leiðbein-
andi hjá Lausninni, sem útskýrir hvað
það er sem hamlar manni þegar tekist er
á við nýjar eða krefjandi aðstæður í líf-
inu. Hvernig maður geti látið rödd sína
heyrast í amstri dagsins, hvort sem þarf
að standa frammi fyrir fólki, koma fram
í fjölmiðlum eða í fag- eða persónulegu
lífi. Einnig fjallar hún um meðvirkni.
Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir
fjallar um mataræði og fléttar fróðleik
um jurtir saman við. Kolbrún hefur
stúderað mataræði og lífsstíl. Hún
ræðir einnig breytingaskeið kvenna og
fjallar um það á víðan hátt,“ segir Þórey.
„Hópurinn á námskeiðinu verður ekki
stór þannig að allar konurnar ættu að fá
mikið út úr því.“
Þórey hefur ekki áður haldið slíkt
námskeið en hún segir að það verði vel
séð um konurnar. „Þetta verður dásam-
leg helgi og ég vonast til að geta haldið
fleiri svona námskeið. Ég hlakka mikið
til helgarinnar,“ segir hún.
KONUR STYRKJA
SIG Í SKÁLHOLTI
GÆÐAHELGI Konur ætla að efla hug, anda og rödd í Skálholti um helgina á
sérstöku námskeiði sem nefnist Konur á tímamótum. Námskeiðið er ætlað
öllum konum.
EFLA ANDANN
Þórey Sigþórsdóttir leik-
kona stýrir námskeiðinu
í Skálholti.
MYND/GVA
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
Ný búð opnar
20% afsláttur
af öllum vörum
til 9. nóvember
Opnunar-
tilboð
Finndu þinn eigin stíl
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
laugard. 11-16
Landsins mesta úrval
af sófum og sófasettum
Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum
Lyon
Save the Children á Íslandi
Kringlunni
heyrnarstodin.is
HEYRNARSTÖ‹IN