Fréttablaðið - 08.11.2013, Side 34
FRÉTTABLAÐIÐ Kokteilar og ævintýri . Nanna Bryndís Hilmarsdóttir. Heimilið. Lífsstíll. Helgarmaturinn og Spjörunum úr.
6 • LÍFIÐ 8. NÓVEMBER 2013
Veitingastað-
urinn Trio er
hannaður af
Leifi Welding
og arkitektin-
um Brynhildi
Guðlaugs-
dóttur.
Konráð
Sigurðs-
son og
Þórir Karl
Celin.
„Þetta er búið að vera 12 ára verkefni síðan
ég fékk hugmyndina en handritið skrifaði
ég árið 2005,“ segir Konráð Sigurðsson, höf-
undur barnabókanna um Jóa kassa. „Mig
dreymdi að ég væri að fljúga á erni yfir skóg
og þegar ég kannaði draumabókina þá virt-
ist draumurinn benda á að ég væri með hug-
mynd í maganum. Þá fann ég þessa litla sögu
sem ég var búinn að skrifa löngu áður,“ út-
skýrir Konráð. Söguna segist Konráð hafa
búið til eitt kvöldið þegar hann ætlaði að lesa
sögu fyrir son sinn fyrir háttinn. „Það var
aldrei ætlunin að skrifa bók en sonur minn
var svo áhugasamur og spenntur fyrir Jóa
kassa að ég fór að velta því fyrir mér hvort
önnur börn myndu bregðast eins við.“ Kon-
ráð segir vini sína hafa hvatt sig til að koma
sögunni á framfæri þar sem hún tengist
mikið umhverfisvernd og náttúrunni. Útkom-
an verður 6-7 bóka sería en bækurnar sem
eru komnar út heita Jói kassi og vélarnar,
Jói kassi og bófarnir, Jói kassi og löggustöð-
in, Jói kassi og haugarnir og Jói kassi og elds-
voðinn, sem kemur út fyrir jólin.
Boltinn byrjaði hins vegar ekki að rúlla
fyrr en vinur Konráðs benti honum á teiknar-
ann, Þóri Karl Celin, sem gerði hugmyndina
að veruleika.
„Við vorum bara tveir pabbar sem vildum
gera gott lesefni fyrir börnin okkar en hann
á jafnmikið í þessu verkefni og ég. Ég er
svona eins og flugdreki sem hann heldur í og
heldur mér niðri á jörðinni,“ segir Konráð að
lokum. Í framhaldi af skrifunum ákvað Kon-
ráð að gefa út lag um Jóa kassa í samstarfi
við Snorra Snorrason og Sveppa sem syng-
ur lagið. Lagið er væntanlegt inn á tónlist.is
á næstunni. Einnig er hægt að fylgjast nánar
með bókunum á Facebook undir Jói kassi.
ÆVINTÝRIÐ
UM JÓA KASSA
Konráð Sigurðsson gekk með hugmyndina í maganum
í 12 ár áður en Jói kassi varð að veruleika
með hjálp Þóris Celin teiknara.
V
ið erum að gera nokkuð
klassískt íslenskt í bland við
norður-evrópska matargerð
og meðal annars innblást-
ur frá Þýskalandi og jafn-
vel Tékklandi. Við erum að reyna
að ná til sem flestra þannig að fólk
getið komið hvenær sem er í vikunni
og fengið góða upplifun,“ segir Kári
Björn Þorleifsson, yfirkokkur á Trio.
Hann segir hugmyndina að mat-
seðlinum margþætta, boðið er upp
á smáréttamatseðil en einnig hefð-
bundna forrétti, aðalrétti og eftir-
rétti. „Kokteilaseðilinn er einnig
mjög veglegur en Axel Aage Sciöth
yfirbarþjónn gerir flest allt hráefn-
ið frá grunni með ferskum krydd-
jurtum, ferskum djús og því er til-
valið að fólk komi snemma og fái sér
ferskan fordrykk.“
Kári Björn Þorleifsson var áður
kokkur á Lækjarbrekku en hefur
einnig starfað á Texture í London og
Aquavit í New York sem báðir skarta
Michelin-stjörnu. Veitingastaðurinn
Trio er hannaður af Leifi Welding og
arkitektinum Brynhildi Guðlaugs-
dóttur. Trio er fjölskyldurekinn stað-
ur, en eigendur staðarins eru syst-
urnar Valdís, Kolbrún og Rósa Árna-
dætur ásamt Árna Björnssyni, föður
þeirra, og eiginmanni Valdísar, Haf-
steini Kristinssyni.
TRYLLTIR KOKTEILAR
OG MARGÞÆTTUR MATSEÐILL
Veitingastaðurinn og kokteilbarinn Trio var opnaður í Austurstræti í síðustu viku með pomp og prakt.
Gestirnir voru himinlifandi með koteilana hjá Trio. María Birta leikkona, Ásdís Rán fyrirsæta og Valli sport hjá auglýsingastofunni Pipar létu sjá sig.
5 ÁRA
AFMÆLI SOHO
Grensásvegi 8 - Sími 553 7300
Opið mánudaga – fimmtudaga 12–18
föstudaga 12–19 og laugardaga 12–17 SOHO/MARKET
Á FACEBOOK
afmælisafslàttur 25%
Gerðu like à síðuna okkar à Facebook og deildu svo þú komist í pottinn
Viltu vinna hágæða
leðurtösku frà Be&De að
verðmæti 120.000 kr. ?
D
V
E
H
F.
2
0
13