Fréttablaðið - 08.11.2013, Blaðsíða 64
8. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 40
Hópurinn
FÓTBOLTI Veðurspáin fyrir föstudag-
inn 15. nóvember bendir til þess að
hiti gæti orðið um frostmark og þó
nokkur vindur. Lars Lagerbäck telur
að veðrið gæti mögulega hjálpað
okkar mönnum lítillega en þó þýði
lítið að spá í það.
„Króatar spila víða um Evrópu og
eru vanir ýmsum skilyrðum. Ég held
að veðrið verði ekki aðalatriði þegar
út á völlinn verður komið,“ sagði
Svíinn.
Hann minntist þess þegar hann
stýrði sænska landsliðinu á Laugar-
dalsvelli í eitt skipti og afar hvasst
var í veðri.
„Nokkrir leikmenn kvörtuðu en þá
þurfti ég bara að minna þá á að að-
staðan væri sú sama fyrir bæði lið.“
Nauðsynlegt sé að eyða ekki orku í
að hugsa um hluti sem
ekki verði við ráðið.
„Ef þú pælir í svona
hlutum þá missirðu
sjónar á því sem
skiptir máli.“
- ktd
Veðrið er algjört aukaatriði 22 klárir í slaginn gegn Króatíu
FÓTBOLTI Landsliðsþjálfararnir Lars
Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson
tilkynntu í gær hvaða leikmenn muni
spila í umspilsleikjunum mikilvægu
gegn Króatíu. Fátt kom á óvart í valinu
en Sölvi Geir Ottesen er aftur
mættur í slaginn.
Markmenn
■ Gunnleifur Gunnleifsson,
Breiðablik
■ Hannes Þór Halldórsson, KR
■ Haraldur Björnsson, Fredrikstad
Varnarmenn
■ Birkir Már Sævarsson, Brann
■ Ragnar Sigurðsson, FC Kaupmanna-
höfn
■ Kári Árnason, Rotherham
■ Eggert Gunnþór Jónsson, Belenenses
■ Ari Freyr Skúlason, OB
■ Hallgrímur Jónasson, Sønderjyske
■ Kristinn Jónsson, Breiðablik
■ Sölvi Geir Ottesen, FC Ural
Miðjumenn
■ Aron Einar Gunnarsson, Cardiff
■ Emil Hallfreðsson , Hellas Verona
■ Helgi Valur Daníelsson, Belenenses
■ Jóhann Berg Guðmundsson, AZ
■ Birkir Bjarnason, Sampdoria
■ Rúrik Gíslason, FC Kaupmannahöfn
■ Ólafur Ingi Skúlason, Zulte Waregem
■ Gylfi Þór Sigurðsson, Tottenham
■ Guðlaugur Victor Pálsson, NEC
Sóknarmenn
■ Eiður Smári Guðjohnsen, Club Brugge
■ Kolbeinn Sigþórsson, Ajax FC
■ Arnór Smárason, Helsingborg
■ Alfreð Finnbogason, Heerenveen - ktd
SPORT
OLÍS-DEILD KARLA
FH - AKUREYRI 23-17
FH - Mörk (skot): Einar Rafn Eiðsson 6 (8),
Magnús Óli Magnússon 6 (12), Ásbjörn Friðriks-
son 4/3 (9/3), Benedikt Reynir Kristinsson 2 (2),
Atli Rúnar Steinþórsson 2 (2).
Varin skot: Daníel Andrésson 16 (32/2, 50%)
Akureyri - Mörk (skot): Bjarni Fritzsson 6/3
(12/4), Vladimir Zejak 5 (10), Sigþór Heimisson 3
(5), Þrándur Gíslason 1 (2), Valþór Guðrúnar. 1 (3),
Varin skot: Jovan Kukobat 7 (21/1, 33%), Tomas
Olason 7 (16/2, 44%),
HAUKAR - HK 29-21
Haukar - Mörk (skot): Sigurbergur Sveinsson 6/2
(8/2), Einar Pétur Pétursson 4 (5), Adam Haukur
Baumruk 4 (7), Þröstur Þráinsson 3 (3), Árni
Steinn Steinþórsson 3 (7), Elías Már Halldórsson
2 (2), Jón Þorbjörn Jóhannsson 2 (2), Þórður Rafn
Guðmundsson 2 (4), Tjörvi Þorgeirsson 2 (6),
Varin skot: Giedrius Morkunas 15 (24, 63%),
Einar Ólafur Vilmundarson 2 (14, 14%),
HK - Mörk (skot): Jóhann Reynir Gunnlaugsson
10 (14), Atli Karl Bachmann 4 (6), Davíð Ágústs-
son 2 (2), Leó Snær Pétursson 2 (3), Tryggvi Þór
Tryggvason 1 (3), Garðar Svansson 1 (5)
Varin skot: Björn Ingi Friðþjófsson 9 (30/2, 30%),
Helgi Hlynsson 2 (10, 20%),
FRAM - ÍR 26-23
Fram - Mörk (skot): Garðar B. Sigurjónsson 7/3
(7/3), Stefán Stefánsson 6 (8), Elías Bóasson 4 (9)
Varin skot: Stephen Nielsen 20 (41/2, 49%)
ÍR - Mörk (skot): Sturla Ásgeirsson 6/2 (9/2),
Björgvin Hólmgeirsson 5 (13), Guðni Már Kristins-
son 3 (4), Sigurjón Friðbjörn Björnsson 3 (5)
Varin skot: Kristófer Fannar Guðmundsson 6
(19/2, 32%), Arnór Freyr Stefánsson 5/1 (18/3,
28%),
DOMINOS-DEILD KARLA
STJARNAN - HAUKAR 94-79
Stjarnan: Marvin Valdimarsson 32, Justin Shouse
27, Matthew James Hairston 17/11 frák, Fannar
Freyr Helgason 8/14 frák/8 stoð, Dagur Kár Jóns-
son 8, Tómas Þórður Hilmarsson 2.
Haukar: Terrence Watson 29/18 frák/4 varin,
Haukur Óskarsson 10, Davíð Páll Hermannsson
10, Sigurður Þór Einarsson 8, Emil Barja 7/6 frák.
KEFLAVÍK - ÞÓR Þ. 97-88
Keflavík: Michael Craion 22/14 frák, Darrel Lewis
19, Guðmundur Jónsson 17, Valur Orri Valsson 12,
Gunnar Ólafsson 10, Arnar Jónsson 8/10 stoð.
Þór Þ.: Nemanja Sovic 30/16 fráköst, Ragnar
Ágúst Nathanaelsson 22/16 fráköst/4 varin, Þor-
steinn Már Ragnarsson 11, Mike Cook Jr. 9.
ÍR - VALUR 99-92
ÍR: Terry Leake Jr. 26/9 fráköst/7 varin, Sveinbjörn
Claessen 25/, Matthías Sigurðarson 22/13 frák/12
stoð, Hjalti Friðriksson 8, Björgvin Ríkharðsson 7.
Valur: Rúnar Ingi Erlingsson 23, Chris Woods 16,
Oddur Ólafsson 15, Birgir Björn Pétursson 12/10
frák, Gunnlaugur H. Elsuson 9.
Ólafía Arndís er byrjuð að blogga og hlífir engum!
FÓTBOLTI Landsliðsþjálfarinn Lars
Lagerbäck var kvefaður en kok-
hraustur þegar hann tilkynnti
fjölmiðlamönnum 22 manna leik-
mannahóp fyrir landsleikina mik-
ilvægu gegn Króötum. Fyrri leik-
urinn fer fram föstudagskvöldið
15. nóvember en sá síðari í Zagreb
fjórum dögum síðar.
Fátt kom á óvart í vali Svíans
og aðstoðarmanns hans, Heimis
Hallgrímssonar, sem nýttu tímann
frekar í að velta fyrir sér styrk-
leika andstæðinganna og spá í spil-
in.
„Þetta er áhugaverð staða. Við
erum komnir í umspil fyrir HM og
hlökkum til,“ sagði Svíinn í upp-
hafi fundarins. Hann leit yfir far-
inn veg og benti á að skipst hefðu á
hæðir og lægðir í undankeppninni.
Liðið hefði hins vegar fært sig upp
á skaftið eftir sumarið og farið á
kostum ef frá er talinn fyrri hálf-
leikurinn í 4-4 jafnteflinu gegn
Sviss. Endurkoman í Sviss hafi
gefið liðinu mun meira en eitt stig.
Sjálfstraustið hafi aukist og nú viti
menn að allt sé hægt.
„Síðan þá hefur leikur okkar
stórbatnað. Við töpuðum hins
vegar of mörgum leikjum á heima-
velli til að eiga möguleika á að
vinna riðilinn.“
Heimir hefur legið yfir upptök-
um af leik Króata sem hafa verið í
fremstu röð í heiminum um árabil.
„Þeir eru svona stríðsþjóð með
gríðarlegan metnað,“ sagði Heimir
um þá rauð- og hvítklæddu. Lars
þekki vel til nýs þjálfara liðsins,
Niko Kovac, sem geti komið sér
vel. Sömuleiðis sú staðreynd að
hann hafi stýrt sænska liðinu gegn
Króötum og þekki vel til liðsins og
aðstæðna í Zagreb.
„Króatar hafa verið á meðal
tíu efstu á styrkleikalista FIFA
síðastliðin fjögur ár. Það er fyrst
núna sem aðeins hefur dregið af
þeim,“ sagði Heimir um stöðug-
leika Króata sem sitja í dag í 18.
sæti listans.
„Á sama tíma hefur gengi
Íslands verið meira eins og línurit
hjá hjartasjúklingi,“ sagði Heim-
ir og uppskar hlátur nærstaddra.
„Bilið á milli þjóðanna er alltaf að
minnka og við förum óhræddir í
þennan bardaga gegn þeim.“
Óvissa ríkir um það hver muni
manna stöðu hægri bakvarðar í
fjarveru Birkis Más Sævarsson-
ar sem tekur út leikbann. Nokkrir
möguleikar eru í stöðunni þótt lík-
legast megi telja að það komi í hlut
Hallgríms Jónassonar, Ólafs Inga
Skúlasonar eða Rúriks Gíslasonar.
„Króatarnir hafa eyru,“ sagði
Heimir og vildu þeir félagar ekk-
ert gefa upp um væntanlegt útspil
sitt. kolbeinntumi@frettabladid.is
Óhræddir við Króata
Ísland á möguleika gegn Króötum en ómögulegt er að fullyrða um hve miklir
þeir eru að sögn Lars Lagerbäck. Ekkert gefi ð upp um hægri bakvarðarstöðuna.
SAMVINNA Gagnkvæm virðing lýsir vel samskiptum þjálfaranna Lars og Heimis sem ná vel saman. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Átta leikmenn Íslands
eru einu gulu spjaldi frá því að
fara í leikbann í undankeppn-
inni. Fái þeir gult spjald í fyrri
leiknum á Laugardalsvelli er ljóst
að þeir missa af síðari leiknum í
Zagreb.
„Það hafa alltof margir leik-
menn okkar verið í banni í und-
ankeppninni,“ segir Lars Lag-
erbäck. Jafn lítið land og Ísland
megi ekki við því að margir leik-
menn fari í leikbann.
„Agi leikmanna í undanförnum
leikjum hefur þó verið til fyrir-
myndar,“ segir Svíinn og tölfræði
lýgur ekki.
Liðið hefur fengið fjögur gul
spjöld í síðustu fjórum leikjum
en átján gul og eitt rautt í leikj-
unum sex á undan. Birkir Már
Sævarsson verður níundi leik-
maðurinn sem tekur út leikbann
hjá Íslandi í undankeppninni. Sví-
inn segir gulu spjöldin ekki munu
hafa áhrif á liðsvalið í leiknum á
Laugardalsvelli.
„Við munum velja besta liðið
í fyrri leikinn óháð spjöldunum.
Það er mikilvægt að að vinna
fyrri leikinn heima. Til þess
þarftu þitt sterkasta lið til að
stjórna leiknum. Það væri líka
yndislegt ef Króatar myndu ekki
skora.“
Heimir Hallgrímsson, aðstoð-
armaður Svíans, minnti á að gul
spjöld væru ekki aðeins áhyggju-
efni Íslendinga.
„Þeir eru með ellefu leikmenn á
gulu spjaldi þannig að við getum
ekki grátið yfir þessu,“ segir
Heimir. Nítján leikmenn eru því
á hættusvæði í fyrri leiknum.
Lagerbäck fagnar því að dóm-
ari leiksins, Alberto Undiano, er í
hæsta gæðaflokki. Í fyrsta skipti
í undankeppninni verður maður-
inn með flautuna úr hæsta styrk-
leikaflokki dómara. - ktd
Þeir eru á hættusvæði
■ Aron Einar Gunnarsson
■ Sölvi Geir Ottesen
■ Gylfi Þór Sigurðsson
■ Alfreð Finnbogason
■ Kári Árnason
■ Eggert Gunnþór Jónsson
■ Emil Hallfreðsson
■ Kolbeinn Sigþórsson
Nítján leikmenn á hættusvæði
Íslensku landsliðsmennirnir hafa bætt sig mikið varðandi spjaldasöfnun.
PASSA SIG Gylfi er á gulu spjaldi.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
KOLBEINN SIGÞÓRSSON.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM