Fréttablaðið - 22.11.2013, Page 10
22. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
FRAKKLAND, AP Abdelhakim Dekhar var í
gær hafður í varðhaldi á sjúkrahúsi í París,
þar sem hann var ekki í ástandi til að svara
spurningum lögreglunnar um það hvers
vegna hann hafði gert skotárásir á nokkr-
um stöðum í París.
Í fórum hans fundust hins vegar tvö bréf,
heldur ruglingsleg bæði, þar sem hann
gagnrýnir fjölmiðla og kapítalismann og
minnist eitthvað á Sýrland.
Hann hefur áður komist í kast við lögin,
var handtekinn árið 1994 fyrir rán og morð
og sat inni í nokkur ár.
Hann réðst inn á skrifstofur sjónvarps-
stöðvar á föstudaginn í síðustu viku, með
hótunum og veifandi skotvopni. Síðan réðst
hann á mánudaginn inn á skrifstofur dag-
blaðs og skaut þar ungan mann, sem særð-
ist alvarlega en er að ná sér á strik. Loks
hleypti hann sama dag af skotum fyrir utan
banka og tók leigubílstjóra í gíslingu.
Mikil leit var gerð að manninum og
fannst hann loks, hálfmeðvitundarlaus eftir
að hafa reynt að svipta sig lífi. Fyrrverandi
vinnufélagi hans frá veitingastað í London
hafði borið kennsl á hann á ljósmyndum úr
öryggismyndavélum.
- gb
FISKARNIR HAFA ENGA FÆTUR EFTIR JÓN KALMAN STEFÁNSSON
D
YN
A
M
O
R
E
YK
JA
VÍ
K
D
YN
A
M
O
R
E
YK
JA
VÍ
K
★★★★★
„Þetta er bók sem hrífur og getur gert harðgerustu
lesendur klökka á köflum, en hún er aldrei yfir-
drifin eða væmin“. – JÓN YNGVI, FBL
„Hér má finna allt
það sem lesendur þekkja
frá hendi höfundarins,
magnaðan stíl og sterkar
tilfinningar...“.
JÓN YNGVI, FBL
Byssumaðurinn í París handtekinn í fyrrakvöld eftir mikla leit og færður á sjúkrahús:
Ruglingsleg bréf fundust í fórum Dekhars
ABDELHAKIM
DEKHAR Fyrr-
verandi vinnufélagi
hans bar kennsl á
ljósmyndir í fjöl-
miðlum.
FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
BRETLAND, AP Þrjár konur fengu
frelsið í lok október eftir að hafa
verið haldið föngnum í heimahúsi í
Lambeth-hverfi í London í þrjá ára-
tugi. Maður og kona, bæði 67 ára
gömul, voru handtekin í gær.
Ein kvennanna er frá Malasíu,
69 ára gömul, önnur er frá Írlandi,
57 ára gömul, og sú yngsta, sem er
bresk, er þrítug og hefur hún því
verið í haldi parsins alla ævina.
Lögreglan segir að þær hafi nán-
ast verið þrælar á heimili parsins,
sjaldan getað komist út fyrir húss-
ins dyr en engin merki finnist þó um
kynferðisofbeldi.
Það voru mannúðarsamtökin
Freedom Charity sem komust á
sporið. Þessi samtök helga starf sitt
baráttu gegn misneytingu barna,
nauðungarhjónaböndum og svoköll-
uðum heiðursmorðum.
Ein kvennanna hafði samband
við samtökin eftir að hafa séð sjón-
varpsþátt, þar sem fjallað er um
starf samtakanna.
Parið var handtekið í gær,
tæpum mánuði eftir að konunum
tókst að flýja með aðstoð lögreglu.
Konurnar þrjár hafa allar notið
aðhlynningar og áfallahjálpar á
öruggum stað í London.
Kevin Hyland, yfirmaður hjá lög-
reglunni í London, segir að samtök-
in hafi haft samband við lögregluna
í október og skýrt frá því að kona,
sem hafði verið haldið fanginni í
heimahúsi í London, hafi haft sam-
band við þau.
Töluverðan tíma tók að finna
út hvaða hús væri um að ræða. Á
meðan var reglulega rætt við kon-
urnar þrjár símleiðis.
„Það þurfti að skipuleggja það
fyrirfram hvenær þær gætu hringt
til okkar og það þurfti að gerast með
mikilli leynd, því þær mátu það svo
að þær væru í mikilli hættu, segir
Aneeta Prem, stofnandi Freedom
Charity, segir að konurnar hafi
verið í haldi í „ósköp venjulegu húsi
í ósköp venjulegri götu“.
Einnig þurfti að bíða með hand-
töku þangað til tekist hefði að ræða
almennilega við konurnar þrjár og
staðfesta frásögn þeirra.
Hyland segir að deild hans innan
lögreglunnar hafi aldrei kynnst
öðru eins máli, þrátt fyrir að hafa
árum saman fengist við mál sem
tengjast nauðungarvinnu og þræla-
haldi. Dæmi séu til þess að fólki
hafi verið haldið allt að áratug,
„en við höfum aldrei séð neitt jafn
umfangsmikið fyrr.“
gudsteinn@frettabladid.is
Frjálsar eftir
þrjátíu ár
í þrældómi
Maður og kona á sjötugsaldri voru handtekin í London.
Höfðu haldið þremur konum í þrældómi í þrjá
áratugi. Bresk mannúðarsamtök komust á sporið.
RÆTT VIÐ FJÖLMIÐLA Kevin Hyland frá Scotland Yard skýrir frá örlögum
kvennanna þriggja. NORDICPHOTOS/AFP
BANDARÍKIN, AP Kviðdómur í Kali-
forníu kvað upp þann úrskurð í
gær að Samsung þyrfti að greiða
Apple 290 milljónir dala, jafn-
virði nærri 36 milljarða króna,
fyrir framleiðslustuld.
Dómurinn snýst um nokkrar
eldri tegundir spjaldtölva og síma
frá Samsung, sem byggja á tækni
frá iPhone og iPad tækjum frá
Apple. Reiknað er með að Sam-
sung áfrýi. Í réttarhöldum í mars
verður deilt um nýrri tegundir
tækja frá Samsung. - gb
Brotið á réttindum Apple:
Samsung þarf
að greiða Apple