Fréttablaðið - 22.11.2013, Page 22
22. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 22TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Innilegar þakkir til allra sem sýnt hafa okkur
samúð, hlýju og vináttu við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
MARGRÉTAR KRISTJÁNSDÓTTUR
Austurvelli, Eyrarbakka.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Ljósheima
á Selfossi.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þórhildur Gísladóttir Einar Kjartansson
Kristján Gíslason Ólöf Guðmundsdóttir
Hrafnhildur Gísladóttir Guðbjörn Ólafsson
Margrét Bragadóttir Bjarni Jakobsson
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma og systir,
ÓLÖF STEINA FRIÐRIKSDÓTTIR
Tvååker, Svíþjóð,
andaðist á sjúkrahúsinu í Varberg
hinn 19. nóvember.
Sigurður Tryggvason
Þorsteinn Sigurðarson
Ragnar Sigurðsson
Erna Sigurðardóttir
Hrefna Sigurðardóttir
Fríða Friðriksdóttir
Örn Friðriksson
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
ÞRÁINN AGNARSSON
sem lést þriðjudaginn 12. nóvember,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 25. nóvember kl. 13.00.
Guðlaug Bára Þráinsdóttir
Óskar Þór Þráinsson Anna Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ERLING STEINAR AUÐUNSSON
skipstjóri
frá Suðureyri við Súgandafjörð,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
sunnudaginn 17. nóvember. Útför hans fer fram frá
Digraneskirkju mánudaginn 25. nóvember kl. 13.00.
Brynja Unnur Magnúsdóttir
Magnús Brynjar Erlingsson Kristín Guðmundsdóttir
Þorsteinn Erlingsson Elin Anita Nilsen
Hjálmar Erlingsson Scarlet Cunillera
Unnur Sigríður Erlingsdóttir Einar Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Faðir okkar,
GUÐMUNDUR HELGASON
tæknifræðingur,
er látinn. Útförin mun fara fram í kyrrþey.
Helgi Guðmundsson
Katrín Guðmundsdóttir
Sverrir Guðmundsson
Guðmundur Guðmundsson
Eyjólfur Guðmundsson
Guðrún Guðmundsdóttir Thoroddsen
og fjölskyldur.
Ástkær móðir mín, tengdamamma
og amma,
MARGRÉT LAUFEY
INGIMUNDARDÓTTIR
áður Fellsmúla 20 og Eiðismýri 30,
Hjúkrunarheimilinu Höfða, Akranesi,
lést á Hjúkrunarheimilinu Höfða, Akranesi,
mánudaginn 18. nóvember. Útför hennar fer
fram frá Neskirkju þriðjudaginn 26. nóvember kl. 13.00.
Sigurður H. Einarsson Hrafnhildur Stella Sigurðardóttir
Ævar Þór Sigurðsson
Salka Margrét Sigurðardóttir
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar og sonur,
GAUTI GUNNARSSON
bóndi,
Læk, Flóahreppi,
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands á Selfossi
föstudaginn 15. nóvember. Útförin fer fram
frá Selfosskirkju laugardaginn 23. nóvember kl. 13.30. Blóm
og kransar eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu
minnast hans er bent á styrktarreikning í vörslu Kvenfélags
Hraungerðishrepps, 0152-05-070009, kt. 590592-2349.
Guðbjörg Jónsdóttir
Gísli Gautason
Jón Gautason
Eyrún Gautadóttir
Gunnar Mar Gautason
Sigríður Guðjónsdóttir
Ástkær móðir okkar,
SIGURBJÖRG SVEINSDÓTTIR
Lönguhlíð 3,
lést á hjartadeild Landspítalans
mánudaginn 18. nóvember.
Stella E. Kristjánsdóttir
Elsa Pálsdóttir Edvard Lövdahl
Magnús Pálsson Ingunn Vilhjálmsdóttir
Kristín Pálsdóttir Guðjón Guðlaugsson
barnabörn, langömmubörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður, faðir, afi og tengdafaðir,
ÓLAFUR RAGNARS
Miðvangi 139, Hafnarfirði,
lést þann 11. nóvember síðastliðinn.
Útför hans hefur farið fram í kyrrþey.
Svandís Ragnars
Jón Þór Ragnars Ingibjörg M. Bjarnadóttir
Hulda Hlín Ragnars Þór Bæring Ólafsson
og barnabörn.
Útför
SVEINS ÞÓRARINSSONAR
bónda, Kolsholti 1, Flóahreppi,
sem andaðist 11. nóvember, fer fram
frá Selfosskirkju 26. nóvember kl. 13.00.
Halla Aðalsteinsdóttir
Þórarinn Sveinsson Kristjana Gunnarsdóttir
Aðalsteinn Sveinsson Kolbrún J. Júlíusdóttir
Elín Bjarnveig Sveinsdóttir Einar Hermundsson
Alda Agnes Sveinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Margrét er komin út í dyr á íbúð sinni
þegar hún er trufluð með símhring-
ingu. Hún er á leið í sína daglegu sund-
ferð og er ekkert sérstaklega hrifin af
því að vera beðin um viðtal í tilefni átt-
ræðisafmælisins í dag. „En, jæja, allt
í lagi,“ segir hún eftir smá umhugsun
og bætir við. „Annars hef ég voða lítið
að segja.“
Það kemur í ljós þegar farið er að
spjalla að Margrét hefur verið dálítið
upptekin síðustu daga. Hún er nefni-
lega í leiklistarverkefni – hvað annað?
„Hún Hlín Agnarsdóttir verður sex-
tug á morgun og þá ætlum við nokkr-
ar konur að leiklesa nýtt leikrit eftir
hana í Tjarnarbíói. Það verður hennar
afmælisveisla. Við erum sex í þessu.
Þannig að ég geri ekkert á mínu afmæli
annað en vinna við það sem mér finnst
skemmtilegast,“ lýsir Margrét hress í
bragði.
Margrét á þrjú börn, átta barnabörn
og eitt barnabarnabarn og reiknar með
að hóa í ættingja og vini einhvern tíma
á næstunni í tilefni tímamótanna. Úti-
lokar heldur ekki utanlandsferð ein-
hvern tíma í vetur. Hún kveðst vera við
góða heilsu, enda hreyfi hún sig mikið.
Leiklistin heillaði Margréti snemma,
enda segist hún hafa átt foreldra sem
höfðu áhuga á leiklist. Hún var innan
við tvítugt er hún steig fyrst á svið í
Þjóðleikhúsinu, þá nemandi í skóla
hússins. Það var í sýningunni Litla
Kláusi og Stóra Kláusi. „Bessi, sem
seinna varð maðurinn minn, steig líka
sín fyrstu spor á sviði í því verki,“ segir
hún og á við hinn dáða leikara Bessa
Bjarnason, sem hún missti árið 2005.
Síðasta hlutverk Margrétar í Þjóð-
leikhúsinu var í Átta konum. Þá hafði
hún leikið yfir hundrað hlutverk þar á
54 ára ferli. „Ég er afskaplega þakklát
fyrir að hafa átt minn starfsferil í hinu
dásamlega Þjóðleikhúsi með því frá-
bæra fólki sem þar var, bæði leikurum
og öðrum.“ gun@frettabladid.is
Leikles á afmælisdaginn
Margrét Guðmundsdóttir leikkona er áttræð í dag og ætlar að verja deginum í þágu
listarinnar. Hún lék yfi r 100 hlutverk í Þjóðleikhúsinu þar sem ferillinn spannaði 54 ár.
LEIKKONAN Margrét verður við æfingu á leiklestri á afmælinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA